24 stundir


24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 52

24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Helst líklegir til að ógna Loeb eru þeir MIkko Hirvonen hjá BP Ford og Daniel Sordo hjá Citröen Total nema hvað Sordo er liðsfélagi Loeb. Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Hver og einn einasti þeirra er sam- mála. Það er aðeins eitt keppikefli í heimsmeistarakeppninni í rall- akstri þetta árið að mati fjórtán keppenda af fimmtán; að sigra Se- bastien Loeb, fjórfaldan heims- meistara. En vilji er einfaldlega ekki nóg til frama í hörðum heimi íþrótta eins og sást kannski best hjá íslenska landsliðinu í handbolta á EM. Þegar 24 stundir fóru í prent- un var Loeb fremstur í fyrsta ralli ársins í Monte Carlo. Blikur á lofti Helsti andstæðingur Loeb síð- ustu árin hefur verið Marcus Grönholm en sá hefur tekið fótinn af bensíngjöfinni hinsta sinni nema á fjölskyldubílnum. Vandséð er hver á að taka við kyndlinum sem helsti andstæðing- ur Frakkans en allmargir hafa reynt árangurslaust að koma honum af toppnum síðustu árin. Helst er nefndur Mikko Hirvonen hjá BP Ford en hann hefur náð miklum frama á skömmum tíma. Daniel Sordo er einnig nefndur nema hvað Sordo er liðsfélagi Loeb hjá Citroën Total. Þó ekki sé nema þess vegna er ólíklegt að Sordo beiti sér sérstaklega fyrir sigri sé Loeb fram- ar þegar lítið er eftir af keppnum. Er það sami hörgull og í Formúlu þar sem oftar en ekki gefa menn eftir þegar um samherja er að ræða fyrir framan. En andstæðingar Loeb þekkja vel hans styrk- og veikleika. Hann er langfremstur meðal jafningja á malbiki en honum fipast oftar en ekki á malarvegum. Klárt sóknar- færi þar enda helmingur keppnis- leggja á slíkum vegum. Sebastien Loeb Langbesti rallöku- maður heims og líklegur til að vinna heimsmeistaratitilinn í fimmta skipti. Lánið leikur við Loeb  Rallárið hafið á ný  Loeb maðurinn sem allir vilja vinna en vilj- inn ekki nægur sé miðað við fyrstu tölur frá Monte Carlo Citroën Total Með Loeb undir stýri er allt hægt þar á meðal fimmti titillinn. BP Ford Hirvonen er ungur og bráður en fljótur að læra og verður skeinuhættur. Subaru Norðmaðurinn Petter Solberg er frábær ökumaður en of sveiflukenndur. Nýr stjóri Tottenham, Ju-ande Ramos, er hægtog síg- andi að brýna tennur liðsins að sínu skapi og vart verður við stöku sjálfs- traust í síðustu leikjum liðsins. Nú skal hamra járnið og ætlar Ramos að fá til sín Jonathan Woodgate til að fylla í skörðin í vörninni. Woodgate er kominn í sitt gamla form á ný eftir lang- varandi meiðsli sem héldu hon- um úti um tveggja ára skeið en hann hefur meiri metnað en að hanga hjá Middlesbrough. Enginn efast um hæfniWayne Rooney á grænugrasi en það er fleira sem hann er þekktur fyrir. Meðal annars að vera form- lega ljótasti knatt- spyrnumaður heims. Fékk hann 33 prósent atkvæða í breskri könnun þar að lútandi og skaut Car- los Teves og Ronaldinho ref fyrir rass. Atkvæði 24 stunda færi nú frekar til Jolean Lescott … Theo Walcott var ekki bú-inn að vera fimm mín-útur á lánslista Arsen- al áður en fyrr- um Íslend- ingalið Stoke bar í hann víur. Ólíklegt að hann fari þang- að en engu að síður metn- aðarfullt skref. Bestu skautahlaupararnir í NHL-deildinni þykja flottir setji þeir eitt til tvö mörk í leik og eins og eina stoðsendingu með. Fyrirliði Ottawa Sena- tors, Svíinn Daniel Alfreds- son, skautaði sýnu lengra í fyrrinótt þegar hann skoraði sjálfur þrívegis og lagði upp fjögur í viðbót fyrir félaga sína í 8-4 sigri liðs síns á Tampa Bay. Funheitur á frostinu Þeir sem fylgjast grannt með viðburðum í tennisheimi vita mætavel að vart hefur verið haldin úrslitakeppni þar síð- ustu fimm árin án þess að annaðhvort Roger Federer eða Rafael Nadal hafi komið við sögu. Þess vegna er Opna ástr- alska mótið sem nú stendur yfir nokkur vendipunktur enda féllu báðar risastjörn- urnar úr leik í undanúrslitum. Federer gegn þeim sem situr í þriðja sæti heimslistans en Nadal lá fyrir óþekktum frönskum kappa. Nýir kappar að taka við kyndlinum? Ár og dagur SKEYTIN INN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.