24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 54
54 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Hann missti meðvitund við höggið.
Hann var meðvitundarlaus í þrjár
mínútur og það var mikið af blóði.
NÝTT:
Gjafahaldarar, flottir fyrir og eftir:
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Styður vel og er flottur í D,DD,E,F
skálum á kr. 5.990,- buxur fást í stíl
Mjúkir og æðislegir í D,DD,E,F skálum
á kr. 5.990,- buxur fást í stíl
Sexí og BARA sætur í D,DD,E,F skálum
á kr. 5.990,- buxur fást í stíl
Mjúkur og þægilegur í vænum
stærðum D,DD,E,F,FF,G,GG,H
skálum á kr. 5.990,-
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Flott rauður í D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 4990,-
Á Organ var hvorki húllumhæ í fyrsta né síðasta skipti síðasta miðviku-
dag. Aðalskipuleggjandi og partíkóngurinn Gylfi Blöndal segir að herleg-
heitin hafi miðað að því að skyggnast inn í blómlega hiphop-senu Reykja-
víkur, „sem hefur verið að lifna við á nýjan leik eftir áralangan doða.“
Hljómsveitirnar Poetrix, 1985! og Original Melody stigu á stokk. „Peotrix
gaf nýverið út frumraun sína Fyrir lengra komna og Original Melody gaf
út sína, Fantastic Four, í apríl 2006 og hefur síðan þá komist í hóp vinsælli
hiphop-sveita landsins,“ er haft eftir herra Gylfa. Bandið 1985! skipa þeir
Dóri DNA og Danni Deluxxx, rímnaprinsar og hefur hljómsveitin nafn
sitt beint frá fæðingarári piltanna. bjorg@24stundir.is
Hipphopp og hipp
og hoppandi fólk
Árvakur/Árni SæbergDökkhærðar píur og kappklæddar
Þær Ríkey Júlíusdóttir og Fanney Ragnarsdóttir kynntu sér hiphopið
Agnes, Ösp, Thelma og Björk
Saumaklúbburinn fór í vettvangsferð og svartur er aðaltískuliturinn
Oddný Davíðsdóttir og Dagný Ósk Ungæðislegar skvísur á
Organ nutu rímna og samvista við aðra gesti
Gæi mundar gítarinn Hvort það voru
hiphop-grip skal ósagt látið.
Unnur Hafstað, Erla Huld og Edda Garðarsdóttir Sparibrosum og hvítvínsglasi, í
bland við smá hopp, var skellt fram á köldum janúardegi
Fréttamaðurinn John Gibson hefur beðist formlega afsökunar á um-
mælum sínum í útvarpsþætti þar sem hann hæddist að andláti leik-
arans Heath Ledger. 24 Stundir greindu frá því í gær að Gibson, sem er
fréttaþulur hjá Fox fréttastofunni, hefði sagt að Ledger hefði verið
furðufugl og grínast ítrekað með að hann hefði framið sjálfsmorð
vegna hinna og þessa hluta, svo sem lækkandi gengis verðbréfa. Gib-
son sagði í beinni útsendingu að hann iðraðist orða sinna. vij
Gibson biðst afsökunar
Tónleikar Indie-sveitarinnar Brit-
ish Sea Power í Leeds Irish Centre
fengu heldur snögglegan endi
þegar flytja þurfti hljómborðs-
leikara sveitarinnar, Phil Sumner,
með sjúkrabíl á spítala eftir mis-
heppnaða sviðsdýfu.
Sumner hafði klifrað upp á ríf-
lega þriggja og hálfs metra hátt
hátalarakerfi, fleygði sér niður til
áhorfenda og ætlaðist til þess að
þeir myndu grípa sig. Fyrirætl-
anir hans gengu ekki eftir, áhorf-
endum mistókst að grípa hann og
Sumner lenti á hausnum.
„Hann missti meðvitund við
höggið. Hann var meðvitund-
arlaus í þrjár mínútur og það var
mikið af blóði,“ sagði talskona
sveitarinnar í viðtali við BBC.
Sumner hlaut ekki varanlegan
skaða af þessu uppátæki sínu,
einungis brotna tönn og nokkra
skurði, og nokkrum dögum síðar
sneri hann aftur á svið með
hljómsveit sinni.
Sumner hefur þó lært eina mik-
ilvægustu lexíu rokksins. Ef þú
ætlar að fleygja sjálfum þér í
áhorfendur þá skaltu vera alveg
viss um að þeim finnist þú vera
þess virði að vera gripinn. vij
Misheppnaðir stælar
Rotaðist eftir sviðsdýfu
British Sea Power Ættu
að hugsa aðeins áður en
þeir fleygja sér af sviðinu.
Rapparinn Busta Rhymes slapp
með skrekkinn þegar dómstóll í
New York-fylki dæmdi hann fyrir
margar sakir en Rhymes var með-
al annars dæmdur fyrir líkams-
árás og fyrir að keyra undir áhrif-
um áfengis. Rhymes sleppur við
að þurfa að fara í steininn en
hann mun vera á skilorði næstu
þrjú árin. Honum var einnig gert
að fara í áfengismeðferð. vij
Rhymes sleppur
við steininn
Leikarinn Milo
Ventimiglia, sem
er þekktastur fyr-
ir hlutverk sitt í
Heroes-þáttaröð-
inni, hefur gengið
til liðs við fram-
leiðslu mynd-
arinnar Armored.
Ventimiglia er þar kominn í góð-
an félagsskap því á meðal annarra
leikara í myndinni má nefna
stjörnur á borð við Skeet Ulrich,
Matt Dillon, Laurence Fishburne
og Jean Reno. Myndin segir frá
ungum öryggisverði sem ákveður
ásamt kollegum sínum að ræna
brynvarinn bíl sem þeim var falið
að vernda. vij
Breytist hratt
úr hetju í skúrk
Þríeyki, afar dularfullt á svipinn Piltarnir Brynjólfur Jó-
hannsson, Reynir Þór og Sturla Óskarsson.