24 stundir


24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 62

24 stundir - 26.01.2008, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 24stundir „Mér sýnist aðallega blóðlaust fólk með uppþornuð kynfæri kalla lætin í Ráðhúsinu „skríls- læti“. Körlunum í spinning gat þó ekki verið meira sama. Ég held að þó að kjarnorkusveppur birt- ist yfir Keili myndu þeir samt halda áfram að tala um hvernig Liverpool og Arsenal gekk í gær. “ Gunnar Lárus Hjálmarsson eyjan.is/goto/drgunni „Í Frakklandi þykir það ekkert tiltökumál þegar bændur sturta kúaskít við innganginn á þing- húsinu. Í gær stöðvuðu mótmæl- endur fund í borgarstjórn. Það þykir slíkur glæpur að heill hóp- ur fjölmiðlamanna keppist við að úthrópa þetta fólk sem annars flokks þegna og ofbeldismenn.“ Grímur Atlason eyjan.is/grimuratlason „Of stór hluti íslenskra mótmæl- enda er skælbrosandi meðan þeir mótmæla. Skælbrosandi manneskja virkar sátt. Sáttur mótmælandi virkar eins og kjúklingabóndi í dýra- verndunarsamtökum.“ Baldur McQueen baldurmcqeen.com BLOGGARINN Eftir Ragnheiði Eiríksdóttur heida@24stundir.is „Það er um hálfs árs biðlisti eftir borði föstudag eða laugardag, en það er hægt að komast að fyrr í miðri viku,“ segir Bogi Jónsson, veitingamaður í Gullna hliðinu á Álftanesi. Bogi og Narumon, kona hans, kynntust á Taílandi árið 1988 og fluttust til Íslands ári síðar eftir að þau giftu sig. Bogi er ekki ókunnugur veitingarekstri en hann var fyrst með Bogarúllur, vagn sem seldi kínarúllur á Lækjartorgi árið 1985. Veitingahúsið Thailandi fylgdi í kjölfarið og árið 2003 opnaði hann Gullna hliðið. Bjóst ekki við að fá leyfi „Mig langaði að gera eitthvað öðru- vísi,“ segir Bogi, en Gullna hliðið býður upp á heimaveit- ingar í húsi þeirra hjóna. Aðeins er tekið á móti einum hópi í einu þar sem lágmark sex og mest 16 geta snætt saman. „Ég hélt að ég fengi ekki leyfi á staðinn og opnaði því fyrst án leyfis. Ég vildi að fólk fengi fílinginn eins og það væri inni á sveitaheimili. Eftir að stað- urinn fékk umfjöllun í Innlit/Útlit komu menn frá eftirlitunum að kíkja á staðinn. Þeir sáu að það var verið að gera hlutina af alvöru og fundu leiðir til að veita leyfi.“ Maturinn sem er á boðstólum í Gullna hliðinu er tal- inn vera með betri austurlenskum mat á Íslandi. Spurður um leynd- armál matargerð- arinnar stendur ekki á svari. „Ef þú hefur borðað mat sem einhver hefur eldað í brjáluðu skapi veistu að hann er ekki bragð- góður,“ segir Bogi. „Við gerum þveröfugt. Þegar maður gefur sér góðan tíma í eldamennskuna og getur undirbúið og unnið að mat- reiðslunni með æðruleysi og í jafn- vægi þá skilar það sér í matinn. Undirbúningur fyrir kvöldverðinn hefst klukkan 10 að morgni og því er nægur tími fyrir matinn að verða svona góður á bragðið.“ Nægir að vera hamingjusamur Bogi segist ekki hafa búist við þessari miklu aðsókn í veitinga- staðinn þegar hann fór af stað. „Ég er gífurlega bjartsýnn maður að eðlisfari, en þetta sló þó allt út.“ Aðspurður hvort hann sé ekki orð- inn rosalega ríkur á veitingarekstri slær hann á létta strengi. „Ég reyndi í mörg ár að verða ríkur, en nú læt ég mér nægja að vera ham- ingjusamur.“ Taílenskt leyniveitingahús á Álftanesi nýtur vinsælda Hálfs árs bið eftir borði um helgar Bogi Jónsson og Nar- umon reka veitingastað- inn Gullna hliðið á Álfta- nesi. Þau taka á móti einum hópi í einu og bið- listinn teygir sig marga mánuði fram í tímann. Fallegt umhverfi Gullna hliðið er á góðum stað. Fjölskyldan Bogi ásamt fjölskyldu sinni. HEYRST HEFUR … Mosfellingar halda árlegt þorrablót sitt í kvöld og búist er við að hátt í 1000 manns mæti á svæðið. Í Mosfellsbæ hugsa menn stórt þar sem sú saga geng- ur manna á milli að barinn á blótinu verði sá stærsti á landinu, um 20 metra langur. Ræðumenn kvölds- ins, trymbillinn Kalli Tomm og alþingismaðurinn Ragnheiður Ríkharðs, ættu því ekki því ekki að verða þyrst og geta einbeitt sér að kjömmunum. afb Lítið fer fyrir Framsókn eftir brotthvarf Björns Inga Hrafnssonar úr flokknum. Athygli vekur að fámennt er úr röðum framsóknarmanna í nýskip- uðum nefndum Reykjavíkurborgar. Ekki tók betra við þegar hringt var í skrifstofu flokksins fyrir há- degi í gær. Símsvari flokksins var á og sagði lokað milli jóla og nýárs, síðan heyrðist eitthvað í þessa veru: Flokkurinn óskar þér og þínum gleðilegs árs.“ Ofurbloggarinn og gervigrasafræðingurinn Jens Guð fer heldur betur óhefðbundna leið í markaðs- setningu nýjustu plötu Lay Low, Ökutímum. Jens segir í fyrirsögn: „Kaupið plötuna Ökutíma eða ég lem ykkur!“ Að vísu biðst hann afsökunar á hót- uninni, en óhætt er að segja að hann hrífist af plöt- unni, sem er önnur sólóplata söngkonunnar og kom í verslanir í vikunni … tsk „Hljómsveitin The Killers sótti í mörg ár um að koma áður en hún varð fræg,“ segir Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Iceland Airwa- ves-hátíðarinnar. „Okkur fannst tónlistin alltaf hálfleiðinleg, en við nöguðum okkur smá í handarbökin eftir á,“ segir Eldar. Og ekki að ástæðu- lausu. The Killers hefur notið gríð- arlegra vinsælda um allan heim eftir að hljómsveitin sló eft- irminnilega í gegn með laginu Mr. Brightside og síðar Somebody Told Me árið 2004. Sigurganga The Kill- ers hélt áfram árið 2006 með breiðskífunni Sam’s Town sem hefur selst í meira en fjórum millj- ónum eintaka um allan heim. „Þeir [The Killers] eru hættir að sækja um,“ segir Eldar í léttum dúr. „Þrátt fyrir að vera með rosa- lega gott úrval og að vera stundum á undan tónlistarheiminum að uppgötva ný bönd eru hliðarspor inni á milli þegar eftir á að hyggja hefði verið betra að segja bara já, komið yfir.“ Vel yfir 200 erlendar hljóm- sveitir hafa sótt um að spila á Ice- land Airwaves-hátíðinni sem fer fram dagana 15. til 19. október í miðborg Reykjavíkur. Íslenskum hljómsveitum verður gefinn kostur á að sækja um á næstu vikum að sögn Eldars, en á síðasta ári skiptu íslenskar umsóknir hundruðum. atli@24stundir.is The Killers vildi spila á Iceland Airwaves Sótti um áður en hún varð fræg Stórir The Killers hafa slegið í gegn um allan heim síðustu ár. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 7 2 8 6 3 9 5 4 1 5 9 3 4 1 2 6 7 8 1 4 6 5 7 8 9 2 3 8 5 4 7 2 1 3 6 9 6 3 2 8 9 5 4 1 7 9 7 1 3 4 6 8 5 2 2 1 5 9 6 3 7 8 4 3 6 7 1 8 4 2 9 5 4 8 9 2 5 7 1 3 6 Hver var það sem að sagði: Enginn er eyland? 24FÓLK folk@24stundir.is a Það eru allir velkomnir í Borgarleikhúsið. Jæja Magnús, kemst Jón Viðar aftur á gestalistann? Magnús Geir Þórðarson er nýráðinn Borgarleikhússtjóri. Forveri hans brást illa við gagnrýni Jóns Viðars leik- húsgagnrýnanda og hætti að bjóða Jóni á frumsýningar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.