24 stundir - 22.02.2008, Blaðsíða 27

24 stundir - 22.02.2008, Blaðsíða 27
Pífur og tjull í kílóavís Díana og Karl Bretaprins á fögrum sumardegi 29. júlí 1981. Er mögulegt að vera kyn- þokkafull í púffermum og kjól sem mætti líkja við rjómatertu, hlöðnum blúndum og pífum? Svo virðist vera sem hinn hefð- bundni brúðarkjóll sé á hraðri útleið. Að minnsta kosti safna púfferma-kjólarnir ryki á brúð- arkjólaleigunum. Konur vilja vera kynþokkafyll- ar á brúðkaupsdegi sínum og taka fremur mið af tískustraum- um en hefðum. Stuttir brúðar- kjólar þykja ekki afkáralegir lengur og konur gefa skít í að lit- ir í brúðarkjól séu einhver sér- stök auðmjúk yfirlýsing um vel- sæmi þeirra í kynferðismálum. Konur velja bara nákvæmlega það sem þær vilja og gefa skít í hefðir og þau gildi sem hafa lengi einkennt brúðkaup og þá mynd sem konan á að gefa af sér sem hrein, rómantísk, hátíðleg og saklaus. Þessi ímynd er gam- aldags og höfðar ekki lengur til kvenna. Óhamingja pökkuð í pífur Díana prinsessa þótti fögur og tignarleg í mikilúðlegum brúð- arkjól sínum er hún giftist Karli Bretaprinsi. Hún er táknmynd hinnar hreinu og sak- lausu brúðar. Nú mörgum árum seinna þegar alheimi er ljós óhamingja draumaparsins virðist sem Díana sé á brúðarmyndum sínum rækilega fangelsuð í píf- um og tjulli. Þrátt fyrir að brúð- kaupið hafi átt sér stað á fögrum sumardegi, 29. júlí 1981, virðast byrðar hjónabandsins nærri því eiga sér upphaf í stífum og þungum kjólnum. En kjóllinn líkst helst risavaxinni rjómatertu, þungur og með margra metra slóða til að tryggja að brúðurin hlaupi nú ekki burt frá altarinu. dista@24stundir.is Hættum þessum tepruskap, meydómurinn er löngu farinn! Brúðir vilja vera kynþokkafullar 24stundir FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 27 Primordiale Skin Recharge frá Lancôme dregur úr fínum lín- um, minnkar svitaholur og jafn- ar áferð húðarinnar. Húðin verður fíngerðari og kremið endurnýjar húðljómann ásamt því sem það veitir húðinni nær- ingu og nauðsynlegan raka. Í kreminu eru efni sem verja húð- ina gegn myndun sindurefna og hámarka endurnýjun húðfrum- anna, húðin verður sléttari og fallegri fyrir vikið. Endurnýjar húðljómann Með tímanum dregur úr fyllingu varanna og þær verða þynnri, auk þess sem aukning verður á fínum lín- um í kringum þær. Kollagenist Lip Zo- om frá Helenu Rubinstein var þró- að til þess að vinna á móti þessu en það gefur vörunum aukna fyllingu og gerir þær þrýstnar og mjúkar. Í krem- inu eru efni sem auka kollagen- framleiðslu ásamt því að það nærir varirnar og veitir þeim raka. Þrýstnar og fallegar varir ? Fyrsta flokks gæði og frábær verð Laugavegi 87 • símar 551 8740 & 511 2004 Fermingartilboð Gefðu hlýju Árshátíðir - Fundir - Ráðstefnur Treystu fagfólki fyrir þínu teiti � � � � Hjá okkur færðu sali, veitingar, tæknibúnað og viðburðarstjórnun. Ef þú hefur salinn, getum við sent veitingar með eða án þjónustu. Þú mætir á staðinn, allt er tilbúið og þú hefur engar áhyggjur. 20 ára reynsla skilar þér vönduðum og eftirminnilegum viðburði. Teiti, veisluþjónusta Broadway Ármúla 9 108 Reykjavík - Sími: 533-1100 - teiti@teiti.is - www.teiti.is Skoðaðu árshátíðar vídeóin á teiti.is Sendu okkur fyrirspurn á teiti.is Veisluþjónusta Broadway

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.