24 stundir - 22.02.2008, Blaðsíða 11
24stundir FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 11
Félagsráðgjafafélag Íslands og
Félags stjúpfjölskyldna heldur
málþing í dag í samvinnu við
Rannsóknarsetur í barna og
fjölskylduvernd, Háskóla Ís-
lands, Háskólann í Reykjavík,
Heimili og skóla, Bisk-
upsstofu, Mentor og Samtökin
78. Á þinginu verður rætt
hvernig efla megi velferð
stjúpfjölskyldna á Íslandi og
hvaða veruleiki blasir við fólki
sem á í stjúptengslum. Mörg
erindi verða haldin á þinginu.
Málþingið fyrsta sinnar teg-
undar á Íslandi. Valgerður
Halldórsdóttir, félagsráðgjafi
er formaður Félags stjúpfjöl-
skyldna, flytur erindið „Stjúp-
tengsl - vannýtt auðlind.“ og
Dr. Sigrún Júlíusdóttir ræðir
þróunina frá reynslusögum til
rannsókna. bee
Björg Magnúsdóttir stjórn-
málafræðinemi tók við sem
formaður stúdentaráðs Há-
skóla Íslands í gær.
Nýtt stúdentaráð var kosið í
háskólanum fyrir tveimur vik-
um. Skiptafundur ráðsins fór
fram í fundarherbergi á þriðju
hæð í Háskólatorgi. Þar lét af
embætti Dagný Ósk Aradóttir.
Björg er áttunda konan sem
tekur við embætti formanns
SHÍ, og aldrei áður hafa tvær
konur gegnt embættinu tvö ár
í röð. Björg Magnúsdóttir er
blaðamaður í hlutastarfi á 24
stundum. bee
Kaka þessa árs hefur þegar ver-
ið valin og hún er hafnfirsk.
Jón Karl Stefánsson, bakari í
Bæjarbakaríi í Hafnarfirði,
sigraði í árlegri keppni Lands-
sambands bakarameistara um
köku ársins. Kakan góða sam-
anstendur af súkkulaðibotn-
um, hnetubotni, hvítri súkku-
laðimús með kaffikeim og er
hún hjúpuð með hvítu súkku-
laði. Þrír dómarar völdu þessa
köku úr sætum hópi kakna, en
sala á kökunni hefst um allt
land á konudaginn og stendur
allt árið. bee
Stjúpfjölskyldur
Málþing um
stjúptengsl
Björg Magnúsdóttir
Nýr formaður
stúdentaráðs
Hvít mús og súkkulaði
Hafnfirðingur
á köku ársins
„Ég veit að sum hús er verið að
tæma til að gera upp, þannig að ef
þau standa auð er það ekki vegna
þess að þau séu dauð,“ segir Snorri
Freyr Hilmarsson, formaður Torfu-
samtakanna, en DV vakti athygli á
því í síðustu viku að mörg hús
standa auð við Laugaveg.
„Laugavegur fjögur til sex stendur
auður núna af augljósum ástæðum
en þar var fólki hent út sem vildi
halda áfram starfsemi. Á Hverfisgötu
er búið að hreinsa innan úr húsum
sem stendur til að rífa og standa
auð,“ segir Snorri og bætir við að
það séu frekar hús sem verktakar
hafa keypt sem eru auð en að fólk
vilji ekki vera þar, fólk sem vilji hafa
starfsemi í húsunum sé rekið þaðan
út.
Á reitnum á horni Laugavegar og
Klapparstígs standa nú mörg auð
hús, þar á meðal þau sem hýstu
Hljómalind og Sirkus. Langur tími
getur liðið þar til framkvæmdir
hefjast þar en Hanna Birna Krist-
jánsdóttir sagði í 24 stundum fyrr í
mánuðinum að teikningar að því
sem til stendur að byggja hefðu enn
ekki verið lagðar fyrir skipulagsráð
Reykjavíkur. Mánuðir geta liðið frá
því teikningar eru lagðar fyrir ráðið
þar til framkvæmdir hefjast en
þangað til standa húsin tóm. aak
Auð hús við Laugaveg bíða niðurrifs
Fólk vill leigja en er rekið út
Gamall heimur genginn úr
skorðum Ágreiningur er um
uppbyggingu miðbæjarins.