24 stundir - 22.02.2008, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Ég reyni að mæta í hvern leik með það hug-
arfar að gera sem best og gera allt sem ég
get til að hjálpa liðinu mínu til að vinna, enda
finnst mér ekkert leiðinlegra en að tapa.
Hinn 34 ára gamli RyanGiggs hefur hug á aðgerast
knatt-
spyrnuþjálfari
eftir að hann
hefur lagt skóna
á hilluna. Mikil
spenningur er
fyrir þessum
fréttum í heimalandi hans, Wa-
les, enda ljóst að maður með
hans reynslu ætti að geta gert
góða hluti fyrir knattspyrnuna
þar í landi.
Kolo Toure, varnarmaðurArsenal, verður frákeppni
í þrjár vikur hið
minnsta vegna
meiðsla í kálfa.
Toure er lands-
liðsmaður í
sínu heima-
landi, Fílabeins-
ströndinni, og þjálfari Arsenal,
Arsene Wenger, segir meiðsl
leikmannsins hafa hlotist í Afr-
íkumótinu sem fram fór í Gana
á dögunum.
Manchester United hef-ur lagt fram kvörtuntil
UEFA vegna
þess að leysi-
geisla var beint
að Christiano
Ronaldo í upp-
hitun liðsins
fyrir leikinn
gegn Lyon í Frakklandi, sem
endaði með jafntefli, 1-1. UEFA
mun nú rannsaka málið með
því að skoða sjónvarpsupptökur
frá leiknum.
Innan Stoke City vinna mennhörðum höndum að því aðfá í sínar raðir stórt nafn til
að gegna stöðu „lykilleikmanns“
liðsins. Nokkur
nöfn hafa verið
nefnd til sög-
unnar sem
mögulegir
framtíð-
arleikmenn
Stoke, þar á
meðal nafn hins unga leikmanns
Chelsea, Scotts Sinclairs. Þjálfari
Stoke, Tony Pulis, verst þó allra
frétta og vill ekkert gefa upp um
hverjir eru í sigtinu hjá liðinu.
Þjálfari AC Milan, CarloAncelotti, segist að hálfuleyti ánægður með
frammistöðu síns liðs í leiknum
gegn Arsenal
sem fram fór í
Emirates Stadi-
um síðastliðinn
miðvikudag, en
sá leikur endaði
með marka-
lausu jafntefli.
Hann segir leikmenn Arsenal
hafa verið í mun betra formi í
leiknum enda mikið um meiðsl
hjá Milan þessa dagana, en að
sínir menn hafi þrátt fyrir erf-
iðleikana staðið sína plikt í
vörninni.
Vera má að bæði JohnTerry og Frank Lamp-ard
þurfi að sitja á
bekknum í leik
Chelsea gegn
Tottenham
næstkomandi
sunnudag. Sá
fyrrnefndi er
enn að jafna sig eftir að hafa fót-
brotnað í desember.
Fyrrverandi knattspyrnuhetjan Paul Gascoigne á
ekki sjö dagana sæla. Lögreglan í bænum Gateshead í
Englandi sótti hann á hótel þar í bæ síðastliðið mið-
vikudagskvöld eftir að hafa fengið ábendingu þess efn-
is að hann hegðaði sér á undarlegan hátt en lögregl-
unni er heimilt að handtaka fólk sem grunað er um
geðveilu.
Nýlega gekkst Cascoigne undir skurðaðgerð á
mjöðm í Newcastle, og frá því að hann útskrifaðist af
spítalanum hefur hann dvalið á hótelum í nærliggjandi
bæjum, spilað tölvuleiki og lítið sem ekkert yfirgefið
herbergi sín.
Hinn fertugi Gascoigne var á sínum tíma talinn einn
efnilegasti knattspyrnumaður heims, en þrálát meiðsl,
áfengisvandamál og þunglyndi vörpuðu skugga á feril
hans og kostuðu hann loks atvinnumennskuna. Hann
veitti lögreglu enga mótspyrnu þegar hún sótti hann
og færði í vörslu sína. Hann fær nú viðeigandi aðstoð.
Paul Gascoigne í vanda
Gamla kempan í haldi lögreglu
Helena Sverrisdóttir körfuknatt-
leikskona hefur verið að gera það
gott með körfuboltaliðinu TCU.
Hún er fædd árið 1988 en lauk
stúdentsprófi á þremur árum hér
heima og stundar nú kennslurétt-
indanám við Texas Christian Uni-
versity (TCU)-háskólann. „Skól-
inn hafði verið í sambandi við mig
síðan ég var 14 ára en þeir fréttu af
mér þegar ég var að spila með
undir 16 ára landsliðinu. Þá tók
þjálfari skoska liðsins eftir mér og
hafði samband við þjálfara TCU,
en hún þekkti einn þeirra vel. Eftir
það kom ég hingað í körfubolta-
búðir og leist strax ótrúlega vel á
skólann, þjálfarana og aðstöðuna,“
segir Helena. Hún segir mikið lagt
upp úr körfuboltastarfinu í Banda-
ríkjunum og að þær stelpurnar lifi
eins og prinsessur. Margar þeirra
klári hins vegar sinn körfuboltafer-
il eftir útskrift fari þær ekki til Evr-
ópu í atvinnumennsku. Viðhorfið
til körfuboltans sé einfaldlega ann-
að í Bandaríkjunum og lítið af
tækifærum í atvinnumennsku.
Íþróttafjölskylda
Helena byrjaði snemma að æfa
körfubolta og hefur spilað með
Haukum frá upphafi en stóri
bróðir hennar og mamma æfðu,
auk þess sem pabbi hennar var
formaður hjá Haukunum. Segist
hún ekki sjá fyrir sér spila með
öðru liði á Íslandi. Árið 2007 var
Helena valin íþróttamaður Hafn-
arfjarðar og var yngsti leikmað-
urinn sem hafði verið valinn í A-
landsliðshóp Íslands í hópíþrótt –
aðeins 14 ára gömul.
Góður árangur
Helena hefur átt mikilli vel-
gengni að fagna með TCU og hef-
ur tvisvar í röð verið útnefnd leik-
maður vikunnar í Mountain
West-deildinni, en það er afar fá-
títt að nýliði á fyrsta ári leiki jafn
stórt hlutverk í sínu liði og raunin
hefur verið hjá henni í vetur. Mót-
herjar Helenu eru sagðir óttast
hana mjög en aðspurð um hvort
hún sé hörð á vellinum segir Hel-
ena að hún reyni að mæta í hvern
leik með það hugarfar að gera sem
best og gera allt sem hún geti til að
hjálpa liðinu sínu til að vinna,
enda finnist sér ekkert leiðinlegra
en að tapa.
Öflug Helena hefur staðið
sig mjög vel með liði sínu
TCU en hún stundar nám
við háskólann.
Gerir allt sem
hún getur
Helena Sverrisdóttir körfuknattleikskona stendur sig vel
með liði TCU-háskólans í Bandaríkjunum
➤ Hefur æft körfubolta frá ungaaldri en hún kemur úr körfu-
boltafjölskyldu.
➤ Finnst ekkert leiðinlegra enað tapa og gerir því sitt besta
til að vinna.
➤ Hefur tvisvar í röð verið út-nefnd leikmaður vikunnar í
Mountain West-deildinni.
➤ Var valin íþróttamaður Hafn-arfjarðar árið 2007.
HELENA SVERRISDÓTTIR
Grunnskólamót Miðgarðs í
skák fer fram í Egilshöll í dag.
Þátttakendur eru frá sex skól-
um úr Grafarvogi og Kjal-
arnesi og er hver sveit skipuð
átta keppendum. Mótið hefst
klukkan 10 og þetta er þriðja
árið sem það er haldið. Öflugt
skákstarf fer fram í skólum
hverfanna og hafa nemendur
frá grunnskólum Grafarvogs
og Kjalarness unnið til fjöl-
margra verðlauna á skákmót-
um.
Skákmót í dag
Tilkynnt var um val á úr-
valsliði 10-18. umferðar N1-
deildar kvenna í gær. Pavla
Nevarilova úr Fram var val-
in besti leikmaður umferð-
anna og Einar Jónsson úr
Fram besti þjálfarinn. Þá
fékk Valur viðurkenningu
fyrir bestu umgjörð á leikj-
um.
Úrvalslið 10.-
18. umferðar
Fyrstu Ólympíuleikar ung-
menna verða haldnir árið
2010, en um er að ræða
smækkaða útgáfu af Ólympíu-
leikum þar sem ungmenni á
aldrinum 14 til 18 ára frá öll-
um heiminum etja kappi. Í
gær var tilkynnt um val á gest-
gjafa þessa viðburðar og það
var Singapore sem var fyrir
valinu. Alls er reiknað með
um 3.200 keppendum á
mótinu.
Singapore
2010
Bjartmar Örnuson úr UFA
bætti eigið unglingamet (19 til
20 ára) í 800 metra hlaupi á
opna danska meistaramótinu
í Skive um síðastliðnu helgi.
Hann hljóp á 1:55,38 mín-
útum, en gamla metið hans
var 1:55,39 mínútur. Bjartmar
varð í fjórða sæti í hlaupinu.
Bætti eigið
met
SKEYTIN INN