24 stundir - 08.04.2008, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundirI . Í
LAGADEILD
HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
Við lagadeild HR er í boði metnaðarfullt og nútímalegt laganám, sem miðar að því að
útskrifaðir nemendur verði framúrskarandi lögfræðingar og í fremstu röð á sínu sviði.
Hlutverk lagadeildar HR er að skapa og miðla þekkingu í umhverfi sem hvetur til
frumkvæðis, gagnrýninnar hugsunar og vísindalegra vinnubragða og auka þannig
lífsgæði og samkeppnishæfni í samfélaginu.
Lagadeild HR er brautryðjandi í nútímavæðingu laganáms hér á landi, hvort sem litið
er til skipulags námsins, kennsluaðferða eða þeirra miklu krafna sem gerðar eru til
nemenda á öllum námsstigum.
Grunnnámið tekur 3 ár og að því loknu gefst nemendum kostur á 2ja ára framhalds-
námi til meistaraprófs í lögfræði.
Kynntu þér spennandi og krefjandi laganám við Háskólann í Reykjavík á vef lagadeildar,
www.lagadeild.is.
Flest finnum við innra með
okkur þann kjarna sannfæringar
og lífsgilda, þá grundvallandi vit-
und siðgæðis og mannlegrar
breytni sem við hvikum ekki frá.
Arfur af hjörtum foreldra okkar,
numið af visku meðbræðra okk-
ar, ástargjöf til barnanna okkar.
Sú lífssýn sem gefur lífinu gildi,
sem réttlætir tilveru okkar og
færir okkur skilning á því hver
við erum.
Við mörkum okkur skil í hug-
anum, drögum línu í sandi sálar-
innar og segjum hingað og ekki
lengra. Yfir þessar línu fer ég
ekki, handan þessara skila líð ég
engum að vera. Við finnum hvert
um sig þau mörk sem skipta
okkur máli, sem skilgreina okkur
og gefa okkur tilverurétt.
Engum skal því undra það þótt
mönnum sárni þegar ráðist er að
þessum grunngildum þeirra, þau
hædd og lítilsvirt.
Andúð á ofbeldi
Sjálfsþekking eykst með aldr-
inum, maður áttar sig á kostum
sínum og göllum og því sem
skiptir mann máli þegar allt
kemur til alls. Kjarni lífsgildanna
styrkist og verður sýnilegri hverj-
um og einum.
Sjálfur hef ég áttað mig á því
að djúpt í huga mínum hvílir
óhagganleg sú sannfæring að eitt
það mikilvægasta í lífinu sé frelsi
hvers einstaklings til lífs og lima,
frelsi til hamingju, frelsi til at-
hafna og ásta. Hvers kyns kúgun
og misrétti er mér sem eitur í
beinum, helsi hugmyndakerfa
jafnt sem hlekkjar harðstjórans.
Ekkert vekur mér þó jafnmikla
óbeit og ofbeldi í hvaða mynd
sem er, hvort heldur andlegt eða
líkamlegt. Andúð mín á ofbeldi
er í raun það sem skilgreinir
minn innsta sannfæringarkjarna.
Ofbeldið gert heilagt
Myndbirtingar ofbeldis eru
hvarvetna í kringum okkur.
Fréttir og frásagnir af ofbeldi eru
óþægilegur raunveruleiki lífsins
en gerir vonandi það gagn að
minnka þol okkar gagnvart vald-
beitingu og misþyrmingum, enda
fer ofbeldi minnkandi í samfélagi
okkar og reyndar á heimsvísu
líka, þrátt fyrir á stundum nei-
kvæðan fréttaflutning.
En eitt er það sem særir mína
dýpstu vitund meira en nokkuð
annað og það er tilbeiðsla of-
beldis. Þegar pyntingar og dauði
eru gerð að trúaratriði, réttlætt
með vísun til einhverra æðri
máttarvalda, með tilheyrandi
myndbirtingum. Dauðadýrkun er
einkamál hvers og eins, svo lengi
sem hann gengur ekki á rétt ann-
arra. En að þurfa að flagga þess-
um ósóma, jafnvel af stolti, slík
hegðun vekur með mér viðbjóð.
Sjöfalt í yfirstærð
Öll minnumst við barnstrúar-
innar með hlýhug, sakleysi
bernskunnar þegar jólasveinar
gefa í skóinn og jesúbarnið liggur
í jötunni, táknmyndir alls hins
góða í lífinu. Kannski er
barnstrúin æfing þess að við get-
um, sem fullorðið fólk, verið
sannfærð um tilvist mannúðar og
ástar og réttlætis? Barnatrúna
eigum við öll, með einum eða
öðrum hætti, og flest þroskumst
við frá henni til ábyrgs lífernis.
Lífið er stórkostlegt, ást og
gleði, jafnvel sorg og mótlæti eru
eldiviður reynslunnar, og börnin,
þetta stórkostlega kraftaverk
náttúrunnar, gefa tilverunni gildi.
Við fögnum lífinu og höldum
hátíðir því til heiðurs enda þarf
ekki að leita lengi að táknmynd-
um frjósemis innanum jólatré og
páskaegg.
Ein er þó sú hátíð, eða væri
nær að kalla það lágtíð, þar lífið
er fjærri en dauðinn er lofsung-
inn, píningin dásömuð og
barnatrúin negld á staur.
Andaktugir lesa menn hina
listilega skrifuðu Passíusálma,
ekki til að gleðjast yfir kveð-
skapnum heldur til að fagna pín-
ingunni. Stórkostleg myndlist er
innblásin af þjáningum dauða-
stríðsins og hengd upp í helgi-
dóminum miðjum til átrúnaðar.
Sjöfalt og í yfirstærð.
Svo er sagt frá þessu í fréttum,
hér fagna menn dauðanum, þar
gleðjast menn yfir píningunni,
þessir syngja þjáningunni lof,
hinir mæra sárin og blóðið.
Traðkað á dýpstu sannfæringu
allra þenkjandi manna, grunn-
gildi samfélagsins að engu höfð.
Að þjást og þola
Eilífar opinberar myndbirting-
ar þessarar ofbeldisdýrkunar
valda mér þjáningum. Að ég sé
móðgaður er vægt til orða tekið.
En ég þoli þetta, ég lít undan og
vona með sjálfum sér að þessu
linni einn daginn. Frelsi til tján-
ingar er mér dýrmætt og þá um
leið frelsi til að tjá aðrar skoðanir
en þær sem ég tel réttar.
Því fylgir einnig frelsi til að tjá
sig opinberlega, til að boða sína
trú og sínar sannfæringar hverj-
um þeim sem heyra vill, full-
orðnum einstaklingum vel að
merkja. Trúboð gagnvart börnum
er siðleysa eins og allir sjá.
Það er mín von að sem flestir
frelsist frá því helsi sem þessi
dauðadýrkun felur í sér. Að einn
daginn þyki það ekki lengur sjálf-
sagt að fagna píningu og dauða,
að birta myndir af blæðandi lík-
um á opinberum vettvangi, kalla
það heilagt og finnast það gott.
Höfundur leggur stund á ritstörf
Móðgandi myndbirtingar
UMRÆÐAN aBrynjólfur Þorvarðarson
Ein er þó sú
hátíð, eða
væri nær að
kalla það
lágtíð, þar líf-
ið er fjærri en
dauðinn er
lofsunginn, píningin dá-
sömuð og barnatrúin
negld á staur.
Trú „Það er mín von að
sem flestir frelsist frá því
helsi sem þessi dauða-
dýrkun felur í sér.“
Viðskiptabankarnir hafa rass-
skellt okkur árum saman, við höf-
um þurft að borga þeim miklu
hærri vexti en þeir rukka í ná-
grannalöndunum og nú eigum við
að kyssa vöndinn og bjarga þeim
með okkar skattfé eftir að þeir hafa
ár eftir ár grætt á okkur með okri.
Halda þeir að við séum aumingjar
sem þorum ekki að gera neitt og
kyssum bara vöndinn? Það er auð-
velt að féfletta hrædda þjóð og
hræðsluraddirnar segja að ef rík-
issjóður fleyti ekki bönkunum
munu þeir stranda og brotna í fjör-
unni sem komi sér illa fyrir okkur
öll.
Hálfur sannleikur
En það er bara hálfur sannleik-
urinn. Það væri slæmt fyrir okkur
öll ef bankarnir brotna og leysast
algerlega upp en ef þeir sigla í
gjaldþrot og ríkið tekur yfir
þrotabúið þá þurfa bara eigendur
bankanna, stjórnir þeirra og
stjórnendur að taka ábyrgð á eigin
ákvörðunum og ganga plankann.
Ef stjórnendur bankanna sigla
þeim í þrot sendir ríkið landhelg-
isgæsluna á strandstað, kaupir
þrotabúið, skipar tímabundið nýj-
an skipstjóra, togar bankana á flot
og siglir þeim þar til hærra verð
fæst en fór í kaupin. Til að ná þessu
fram þarft þú og þitt fólk að verja
skattfé ykkar og segja ríkisstjórn-
arþingmönnum í þínu kjördæmi
að svona skuli þeir verja því ef þeir
vilja fá atkvæðin ykkar aftur. Síma-
númer þeirra og vefföng eru á
heimasíðu Alþingis, www.althingi-
.is, undir „þingmenn“ og svo
„kjördæmi.“
Veðja stórt
Hvaða skilaboð sendum við
bönkunum ef við stöðvum ekki
áform ríkisstjórnarinnar um að
bjarga þeim og senda okkur reikn-
inginn? Ef bankarnir mega setja
gróða góðra veðmála í eigin vasa og
ríkið tryggir að tapið af þeim
slæmu megi þeir taka úr okkar vös-
um, þá er hagkvæmast fyrir bank-
ana að halda áfram að veðja stórt.
Og þeir eru að veðja stórt, þeir eru
að veðja á að íslenska þjóðin þori
ekki að verja skattfé sitt og kyssi
frekar vöndinn.
Höfundur er viðskiptafræðinemi
Veðjað á að við
kyssum vöndinn
UMRÆÐAN aJón Þór Ólafsson
Ef bankarnir
mega setja
gróða góðra
veðmála í
eigin vasa og
ríkið tryggir
að tapið af
þeim slæmu megi þeir
taka úr okkar vösum, þá
er hagkvæmast fyrir
bankana að halda áfram
að veðja stórt.
Fé „Það er
auðvelt að fé-
fletta hrædda
þjóð.“