24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 34

24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur iris@24stundir.is Einar Geirsson útskrifaðist úr menntaskóla árið 2006 og ákvað að taka sér námsfrí í eitt ár áður en hann hæfi háskólanám. „Ég byrjaði á því að leita að tungumálaskólum í Brazilíu en þangað hafði mig allt- af langað að fara. Fyrir einhverja tilviljun rakst ég á vefsíðu AUS og var fljótur að sjá að þetta væri eitt- hvað fyrir mig,“ segir Einar en hann hélt af stað til Brasilíu í ágúst árið 2006. „Ég fékk starf á frístundarheimili fyrir börn úr fátækari hluta borg- arinnar. Krakkarnir komu til okkar eftir skóla en þau áttu flest við ein- hverja erfiðleika að stríða á heim- ilinu. Mörg þeirra voru börn ein- stæðra foreldra en önnur bjuggu hjá ömmu sinni og/eða afa. Ég held að börnin hafi öll gengið í skóla en ég varð allavega ekki var við nein götubörn í þessum hópi.“ Kostnaðurinn við ferð á borð við þá sem Einar fór vex mörgum í augum enda um dágóða fjárhæð að ræða. „Mér fannst gjaldið ekki hátt miðað við allt það sem ég fékk í staðinn. Ég lærði nýtt tungumál og ferðaðist í 2 mánuði um Brasilíu auk þess sem ég dvaldi í 5 mánuði hjá frábærri fjölskyldu sem tók mér mjög vel. Ég mæli eindregið með sjálfboðaliðastarfi,“ segir Einar að lokum. Hress vinahópur Einar með rauða hettu í hópi sjálfboðaliða. Íslendingar ferðast um allan heim til að hjálpa bágstöddum Starfaði með fátækum börnum Ævintýraþráin er okkur í blóð borin og við leitum stöðugt að nýjum leiðum til þess að fá útrás. Sjálf- boðaliðar slá tvær flugur í einu höggi þar sem þeir geta bæði kynnst fram- andi menningu og hjálp- að bágstöddum. Playa Las Tortugas, eða Skjald- bökuströndin, í Norður-Mexíkó er afar vinsæll áfangastaður ferða- manna frá öllum heimshornum, enda þekkt fyrir einstaka nátt- úrufegurð, veðurblíðu og fjöl- breytta afþreyingamöguleika. Fátt situr þó eins lengi eftir í hugum ferðamanna sem þangað hafa farið eins og dýralífið á svæðinu. Fjöld- inn allur af litskrúðugum og fal- legum fuglategundum heldur sig á svæðinu í kringum ströndina að ógleymdum sæskjaldbökunum sem verpa við sjávarmálið. Sæ- skjaldbökur eru í útrýming- arhættu, meðal annars vegna mengunar hafsins, en lifa góðu lífi við Skjaldbökuströnd. Ferðamenn þurfa að umgangast svæðið með mikilli aðgát, en þeir geta gert gagn með því að bjarga skjaldbökueggj- um og setja nýútskriðna skjald- bökuunga á blautan sandinn við sjávarmálið. Það er afar vinsæl af- þreying meðal ferðamanna sem margir hverjir koma ár eftir ár á Skjaldbökuströnd fyrst og fremst til þess að geta dundað sér við að leita uppi litlar skjaldbökur og koma þeim til bjargar. Playa Las Tortugas í Mexíkó Litlum skjaldbökum hjálpað Sæskjaldbökur Bíða þess að kom- ast til síns heima. LÍFSSTÍLLFERÐIR ferdir@24stundir.isBúlgaría MasterCard Mundu ferðaávísunina! E N N E M M / S IA / N M 3 29 63 Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000 www.terranova.is · Akureyri, sími: 461 1099 B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. T er ra N o va á sk ilu r sé r ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . BEINT MORGUNFLUG Golden Sands í Búlgaríu hefur slegið í gegn hjá Íslendingum. Þessi einstaki sum- arleyfisstaður býður þín með með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi af- þreyingarmöguleika, fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf. Athugið að það er mjög takmarkaður fjöldi flugsæta og gistingar í boði á þessu einstaka tilboðsverði! Perla Svartahafsins – glæsilegur aðbúnaður í fríinu Bókaðu núna! www.terranova.is - síðustu sætin í júní & júlí 150 sæti á frábæru sértilboði • Sól og frábær strönd • Ótrúlega hagstætt verðlag • Endalausir möguleikar á afþreyingu • Spennandi skoðunarferðir Þú færð hvergi meira frí fyrir peninginn! Hotel Perla Vinsælt hótel með stórum og góðum sundlauga- garði og fjölbreyttri og mjög góðri sameiginlegri aðstöðu. Stórt og gott móttökusvæði með bar, veitingastað o.fl. Herbergi eru rúmgóð og loftkæld, öll með baðherbergi og eru nýlega endurnýjuð á smekklegan hátt með síma og sjónvarpi. Hótel með fína aðstöðu og gott andrúmsloft. Morgunverð- arhlaðborð innifalið í gistingu. Frá kr. 54.990 í viku Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á Hotel Perla í viku, 16., 23. eða 30. júní og 7. eða 21. júlí. Glarus – íbúðir / Club Paradise Park – íbúðir Frábærar íbúðir Club Paradise Park Huggulegt nýlegt (2006) íbúðahótel efst í bænum, í fallegu skógi vöxnu umhverfi, 600 m. frá strönd og miðbæ. Móttaka opin allan sólarhringinn, veitinga- staður, bar og líkamsrækt. Góður sundlaugagarður með barnalaug. Íbúðirnar eru með 1 eða 2 svefn- herbergjum og eru rúmgóðar og vel búnar með sjónvarpi, loftkælingu, síma, ísskáp, örbylgjuofni og öryggishólfi. Svalir með húsgögnum. Góðar íbúðir og aðbúnaður fyrir gesti. Glarus Glarus er nýlegt (2006) íbúðahótel norðarlega við Golden Sands ströndina. Góður sundlaugagarður með barnalaug og sólbekkjum og veitingastaður hótelsins er opinn inn í garðinn. Líkamsræktar- aðstaða, snyrtistofa og heilsulind. Íbúðir eru loftkældar með einu svefnherbergi, baðherbergi með hárþurrku og stofu með eldunaraðstöðu. Sími og gervihnattasjónvarp er á öllum íbúðum. Örygg- ishólf í gestamóttöku. Mjög góður kostur! Frá kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð á Glarus íbúðahótelinu eða Club Paradise Park íbúða- hótelinu í viku, 16., 23. eða 30. júní og 7. eða 21. júlí. Aukavika kr. 15.000. Kveðjupartí Einar ásamt „fjölskyldu“ sinni en hún reyndist honum mjög vel. Paradís Einar með Ríó í bakgrunni. Strandbolti Einar spilaði fótbolta á ströndinni með Jair vini sínum.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.