24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 25
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 25
Á ári hverju verðlaunar dekkja-
framleiðandinn Goodyear „hetju
hraðbrautanna“ í Bandaríkjunum
og Kanada. Útnefning ársins
2007 fór fram í lok marsmánaðar
síðastliðins. Athöfnin var að sögn
viðstaddra afar tilfinningaþrung-
in enda ljóst að enginn hörgull er
á hetjum á vegum úti. Ýmsir
voru tilnefndir til verðlaunanna í
ár og bar mönnum saman um að
hver og einn þeirra ætti allan
heiður skilinn fyrir afrek sín.
Meðal tilnefndra var kanadískur
bílstjóri, David Virgoe. Hann lét
lífið í kjölfar þess að hann ók bíl
sínum út í skurð til þess að verj-
ast árekstri við bíla sem komu
aðvífandi á ógnarhraða á móti
honum, en bílstjórar þeirra
reyndust vera í kappakstri.
Sá sem útnefninguna hlaut var
hins vegar bandaríski bílstjórinn
Richard Filiczkowski. Þann 26.
apríl 2007 var hann sofandi í bíl
sínum og eiginkona hans sat við
stýri. Hún vakti hann með látum
og sagði að annar bílstjóri hefði
misst stjórn á bifreið sinni með
þeim afleiðingum að hann hafn-
aði úti í tjörn. Filiczkowski lét
ekki segja sér það tvisvar heldur
hljóp að tjörninni, stakk sér ofan
í hana og synti af stað. Hann
kom auga á litla stúlku sem barði
á bakglugga bílsins í mikilli ör-
væntingu. „Það eina sem ég
hugsaði um var að ég yrði að
bjarga henni út úr bílnum. Ég
synti eins hratt og ég gat af því að
ég veit að við svona aðstæður
skiptir hver einasta sekúnda
máli,“ sagði hann þegar hann
lýsti atvikinu. Honum tókst að
bjarga hinni 9 ára gömlu Abby út
úr bílnum, en föður hennar sem
var undir stýri tókst því miður
ekki að bjarga.
Abby og móðir hennar voru
viðstaddar athöfnina hjá Good-
year til heiðurs bjargvættinum.
Goodyear verðlaunar bílstjóra á ári hverju
Hetjur á vegum úti
Goodyear Dekkjaframleiðandinn hefur útnefnt hetju hraðbrautanna árlega í 25 ár.
Það eru ekki bara vörubílstjórar
á Íslandi sem mótmæla hækk-
andi eldsneytisverði. Bandarískir
starfsbræður þeirra hafa gripið til
svipaðra aðgerða víða um landið
undanfarna daga. Engin skipu-
lögð samtök eru að baki mót-
mælaaðgerðunum heldur hafa
bílstjórarnir gripið til þeirra að
eigin frumkvæði. Þó svo að mót-
mælin skili ekki árangri á einni
nóttu er ljóst að bandarísku bíl-
stjórunum hefur tekist að fanga
athygli fjölmiðla á baráttumáli
sínu. Sé orðið „trucker“ slegið
inn í fréttaleit Google-vefsíð-
unnar koma upp tugir frétta af
aðgerðunum vestra.
Bílstjórar vestra
mótmæla
Sætisólahlífar úr leðri vernda háls
og axlir fyrir núningi og ertingu í
löngum bílferðum. Á vefsíðunni
allfortrucks.com er hægt að fá alls
kyns hagnýta fylgihluti fyrir vöru-
flutningabílana, og meðal annars
þessar hlífar. Þær eru ekki bara
hagnýtar heldur einnig flottar í út-
liti og á sömu síðu er hægt að fá
ýmislegt fleira með sama mynstri.
Þessi hlíf kostar einungis 10 dollara
sem má teljast lítið jafnvel þótt
gengi krónunnar sé ekki eins hag-
stætt og æskilegt væri.
Flottar hlífar fyr-
ir háls og axlir
Sala á flutningabílum og vinnu-
vélum dróst verulega saman í
Bandaríkjunum á árinu 2007 mið-
að við árin á undan og ekki sér fyr-
ir endann á samdrættinum á
bandarískum mörkuðum. Þrátt
fyrir þetta jókst hagnaður Cater-
pillar meira en nokkru sinni áður
árið 2007. Ástæðan er fyrst og
fremst sú að þá var lögð höf-
uðáhersla á markaðssetningu og
sölu utan Bandaríkjanna.
Caterpillar
í útrás