24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 22

24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Olíudreifingarfyrirtækin hafa á okkur öll tögl og hagldir,“ segir Charles Rotenbarger, 49 ára vöru- bílstjóri frá Columbus, Ohio. „All- ur heimsbúskapurinn stjórnast af olíuframleiðslu og sölu,“ bætir hann við og spyr í kaldhæðni hvaða möguleika þeir hafi þá í slagnum. Charles er einn þeirra vörubílstjóra sem ákveðið hefur að blanda sér ekki í slaginn og segist fullur svartsýni, bílstjórar í Banda- ríkjunum séu ekki bundnir sterk- um samtökum, þeir séu dreifðir og flutningafyrirtækin fylgi bíl- stjórum hvort sem er ekki að mál- um vegna hagsmunatengsla við ol- íuiðnaðinn. „Ég get ekki lengur tekið farm fyrir þann pening sem mér er boð- inn vegna hækkunar á bensínverði, ég næ ekki upp í kostnaðinn. Farmfélögin bjóða ekki betur,“ segir David Santiago, 35 ára vöru- bílstjóri sem hefur ekið bíl sínum í 17 ár. Sjálfstæðir taka slaginn Sjálfstæðir vörubílstjórar hafa þó ákveðið að taka slaginn og mót- mæla nú af hörku á þjóðvegum Bandaríkjanna. Þeir hægja á um- ferð og stöðva eða leggja út í kant og við vegasjoppur með farm sinn. Vörubílstjórar í sjálfstæðum rekstri eru stór hópur vörubílstjóra í Bandaríkjunum og farmflutningar eru þjóðinni mikilvægir. Vilja virðisaukann burt „Í Bandaríkjunum eru menn ekki vanir að borga mikið fyrir eldsneyti og eru almennt við- kvæmir fyrir hækkun. Veikur doll- ar gagnvart öðrum myntum hefur haft þau áhrif að bensín og olía hækka í verði, í einhverjum fylkj- um er lagður virðisaukaskattur á eldsneyti og mótmæli í Bandaríkj- unum felast að mestu í því að bíl- stjórar vilja beita þrýstingi á að skattur sé felldur niður,“ segir Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bif- reiðaeigenda. „Langferðabílstjór- arnir sem stöðva úti í kanti eiga erfitt með að mæta þeim fasta kostnaði sem þeir hafa samið um við flutningafyrirtækin vegna hækkandi eldsneytiskostnaðar og þeir njóta lítils stuðnings í mót- mælaaðgerðum sínum. Þetta eru væntanlega díseltrukkar og menn eru að horfa á það að heimsverð á díselolíunni er að fara yfir 1.000 dollara á tunnuna. Olía hækkar líka stöðugt vegna lélegrar birgða- stöðu í Bandaríkjunum.“ Ólga í vörubílstjórum í Bandaríkjunum - mótmælaalda Slagurinn tekinn í Bandaríkjunum ➤ Skortstaða á olíubirgðumBandaríkjamanna hefur áhrif á verð. ➤ Virðisaukaskattur er lagður ábensín í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna og hann vilja bílstjórar lagðan af. ➤ Verð á lítra af bensíni íBandaríkjunum er um 75 krónur í dag. BANDARÍKINÍ Bandaríkjunum er ólga í vörubílstjórum vegna hækkandi bensínverðs. Vinnuumhverfi banda- rískra vörubílstjóra er alls ólíkt þeirra íslensku og bitnar bensínverð og aukinn kostnaður við rekstur bifreiðanna oft á þeirra eigin fjárhag. Lítrinn í Bandaríkjunum er á um 75 krónur um þessar mundir. Harkan eykst eftir því sem fjárhagur bílstjóra versnar. „Ríkið verður að koma til móts við almenning og atvinnuvegina í landinu með því að lækka elds- neytisskattana,“segir Runólfur Ólafsson sem hefur lengi leitt bar- áttuna fyrir lægri eldsneytis- sköttum sem hann kallar of- urskatta. „Tæp 60% af útsöluverði bensíns fara í ríkissjóð og því er eldsneyti til neytenda að sjálfsögðu háskattavara á Íslandi,“ bætir Run- ólfur við og telur að eitthvað verði að gera nú þegar til að stöðva þau margföldunaráhrif sem hækkun bensínverðs hefur á neysluverðs- vísitöluna. „Verð á eldsneyti hefur öflug áhrif á verðþróun annars í landinu og því verður að taka á málum strax. Fella verður niður gjöld tímabundið meðan mark- aðurinn réttir sig af.“ Runólfur segir ráðamenn hafa lítil rök á bak við sig er þeir segjast ekki geta beitt neinum meðulum til að stemma stigu við verðþróun á eldsneyti. „Þetta segja sömu ráðamenn og sátu í ríkisstjórn og beittu þessum aðgerðum til að hamla verðbólgu árið 2002.“ Runólfur bætir því við að ráðherrar hér og í Evrópu virð- ast ekki ætla að láta mótmæli bíl- stjóra beygja sig. „Nema í Svíþjóð þar sem tímabundið hefur verið felld úr gildi ákvörðun um hærri skatta á eldsneyti til umhverfis- verndar.“ dista@24stundir.is Ríkið til móts við skattpíndan almenning? Ráðherrar beygja sig ekki Ísland Ofurskattar Ert þú leið(ur) á að skipta um perur? DÍÓÐULJÓSIN FRÁ OKKUR ERU: Ljósin frá okkue geta lýst leið þína lengi lengi ... Klettagarðar 11, 104 Reykjavík Sími 568 1580 Fax 568 0844 TRUCK - LITE Ljósasamlokurnar frá okkur eru: ÓBRJÓTANDI HÖGGÞOLNAR ENDAST OG ENDAST ORKUSPARANDI ÓBRJÓTANDI 10.000 KLST. ÁBYRGÐ PASSA FYRIR ALLAR GERÐIR VÖRU- OG FLUTNINGABÍLA Gúmmívinnustofan SP dekk - Skipholti 35 -105 R Sími: 553 1055 www.gummivinnustofan.is Sumardekk Opið 8-18 virkadaga 9-15 laugardaga Öryggi bílsins byggist á góðum hjólbörðum Ökunám í fjarnámi !!!! Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin í tölvunni heima þegar þér hentar. Skoðaðu þennan frábæra kost á www.ekill.is Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra nám- skeið til almennra ökuréttinda (Ö1), bifhjólanámskeið og námskeið fyrir lesblinda. Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum, Ö2 námskeið og námskeið til aukinna ökuréttinda. Skráning hafin á febrúarnámskeið

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.