24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir
„Einu sinni var þröngt í búi hjá
fyrirtæki. Þetta var á tímum Við-
eyjarstjórnarinnar og ekki mikla
vinnu að hafa. Fljótlega eftir
þetta keyptu eigendurnir sér einn
Landcruiser jeppa hver – samtals
fjóra. Þeir voru alltaf kallaðir
samdráttarjepparnir.“
Sigurður Árnason
sigurdurarna.blog.is
„Charlton Heston er allur. He-
ston var mikið í því að leika góða
menn. Móses, Jóhannes skírara
og Guð. Nú mætti ætla að leiðin
yrði greið í gegnum hið Gullna
hlið. Hann lék þó í Planet of the
Apes - sem vart getur talist til
tekna. Svo er það formennskan í
National Rifle Association - úff!“
Guðmundur Brynjólfsson
blogg.visir.is/gb
„Ólympíuleikarnir. Fréttirnar af
eilífu svindli íþróttamanna hefur
einhvern veginn breytt þessu
öllu. Að horfa á steraboltana
stilla sér upp til að hlaupa 100
metra hlaup vekur ekki spennu
lengur heldur undrun yfir því að
svo margir hafi sloppið í gegnum
nálarauga þvagrýna.“
Pétur Tyrfingsson
tyrfingsson.wordpress.com
BLOGGARINN
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Áhugaljósmyndarinn Jónas Björg-
vinsson er í miklu uppáhaldi sjálfr-
ar bítlaekkjunnar Yoko Ono. Hef-
ur hún keypt þrjár myndir af
Jónasi, fyrir ótilgreinda upphæð,
allar af Friðarsúlunni í Viðey.
Myndirnar tóm tilviljun
„Þetta var nú hálfgerð tilviljun
allt saman. Ég var að koma af
sýningu í Laugarásbíó ein-
hverntímann í september
og sá að verið var að
prufukeyra Friðarsúluna.
Ég stökk heim til að ná í
græjurnar og náði nokkr-
um fínum myndum sem ég
setti síðan inn á flickr
myndavefinn,“ segir
Jónas sem grunaði
ekki að myndirnar
ættu eftir að snerta
taugar Yoko Ono.
„Nokkru seinna fékk
ég símtal frá SagaFilm
sem kom að opnunar-
athöfninni í Viðey. Þeir
komu mér í samband
við Maguffin fyr-
irtækið, sem sér um
friðarverkefnið
hennar Yoko. Þeir höfðu milli-
göngu um kaupin á myndunum
og ég hafði því aldrei beint
samband við hana, nema eftir
á, í rafrænum bréfaskrifum,
þar sem hún þakkaði fyrir
sig og annað slíkt,“ segir Jón-
as sem vill ekki gefa upp kaup-
verðið á myndunum. „Það eru
engar risaupphæðir
neitt. Þær eru alltént
undir sex stafa tölu.“
Vildu öll sjá Sirkus
„Á sjálfu Frið-
arsúlukvöldinu var
mér síðan boðið á
opnunina. Síðar
um kvöldið
vildu Sean
Lennon og
hans
fylgd-
arlið, sem innihélt meðal annars
þekktan leikstjóra, Simon Hilton
að nafni, sem hefur unnið mikið
með Paul McCartney, endilega
kíkja á Sirkus. Höfðu þau heyrt vel
látið af staðnum og mundu vel eft-
ir myndbandinu sem Björk tók þar
á sínum tíma. Nokkru síðar þegar
mótmæli niðurrifs Sirkus stóðu
sem hæst, íhugaði ég nú að benda
stjörnuliðinu á þetta óréttlæti en
komst nú aldrei í það einhvern
veginn. Spurning hvort það hefði
breytt einhverju um örlög Sirkuss.
Ég veit það ekki.“ Jónas vinnur
sem tæknimaður hjá Nýherja en
tekur myndir og býr til tónlist í frí-
tímanum.
Á NETINU
flickr.com/jonasbj71
myspace.com/ummhm
Áhugaljósmyndarinn Jónas Björgvinsson á þekktan aðdáanda
Seldi Yoko myndir
af Friðarsúlunni
Jónas Björgvinsson tók
myndir af Friðarsúlunni
þegar hún var prufu-
keyrð í september. Yoko
Ono hreifst af mynd-
unum, keypti þrjár og
bauð honum í partý.
Mynd/ Jónas Björgvinsson
Frábær mynd Þetta er að-
eins ein þriggja mynda sem
Yoko keypti. Ekki að undra
að Yoko hafi fallið fyrir henni
I love you! Yoko elskar Jón-
as, alltént handbragð hans.
HEYRST HEFUR …
Eftir erfiðan dag í vinnunni er gott að slaka á og fá
sér einn kaldan. Þetta veit dómaraparið úr Bandinu
hans Bubba, þeir Villi naglbítur og Björn Jör-
undur, sem létu sjá sig á Ölstofunni á föstudaginn.
Meðal annarra gesta má nefna hjónin Egil Ólafsson
og Tinnu Gunnlaugsdóttur, óperusöngvarann Jó-
hann Friðgeir og blaðamanninn Jakob Bjarnar
Grétarsson, sem fagnaði 46 ára afmæli sínu. tsk
Það er fátt sem kemur hörðnuðum Íslendingi á
óvart þegar Egill „Gillzenegger“ Egilsson er ann-
arsvegar, enda hispurslaus með eindæmum. Þó eru
líkur á að einhverjar húsmæður í vesturbænum súpi
hveljur á næstunni, því í viðtali í nýjasta tölublaði
Monitors, viðurkennir Egill að hann raki á sér
hreðjarnar daglega, en þó sé stundum „fínt að
breyta til og fara í brasilískt vax af og til“. tsk
Margir velta fyrir sér hvað sé næst á dagskrá hjá
leikstjóranum Gunnari Birni Guðmundssyni. Ast-
rópía, sem var hans fyrsta kvikmynd, sló í gegn í
fyrra og var ein aðsóknarmesta kvikmynd ársins.
Gunnar hefur ekki í hyggju að gera framhald af
Astópíu eins og slúðrað hefur verið um en hefur
lagt lokahönd á handrit kvikmyndar byggða á
Gauragangi eftir Ólaf Hauk Símonarson. afb
„Það er ávanabindandi að starfa
í útvarpi. Ég fékk nettan fiðring í
punginn,“ segir útvarpsmaðurinn
Ómar Bonham um endurkomu
sína í útvarp.
Ómar starfaði áður á útvarps-
stöðvunum XFM og Reykjavík
FM, en þær dóu langt um aldur
fram. Ómar snéri aftur um
helgina, í þetta skipti á útvarps-
stöðina X-ið 97.7. Hann verður
framvegis í loftinu með þátt sinn
The Bonham Show á laugardögum
frá klukkan 10 til 12 og á sunnu-
dögum frá klukkan 17 til 19.
Allir biðja um Pantera
„Fullt af fólki hringdi inn og ná-
kvæmlega eins og á hinum út-
varpsstöðvunum sem ég hef unnið
á báðu allir um Pantera,“ segir
Ómar. Hann hefur verið duglegur
að spila sígilt þungarokk á borð við
hljómsveitina Pantera og hlust-
endur kunna að meta það. „Það
kom mér reyndar á óvart hversu
margir hringdu. Ég hélt að fólk
væri að gera eitthvað annað en að
hlusta á útvarp á sunnudögum.“
Ómar fer ekki leynt með aðdáun
sína á útvarpsmannastarfinu og
segir hreinlega allt gott við starfið.
„Þetta er forréttindastarf - að eiga
samskipti við íslenska tónlist-
armenn og að spá í tónlist allan
daginn,“ segir hann. „Þó ég sé ekki
allan daginn í því núna þá kemst
ég nálægt því.“
Aðspurður hvort hann sækist
eftir frekari frama í útvarpi segir
Ómar að bransinn sé erfiður. „Ég
geri mitt og sé svo til. Ef það opn-
ast staða þá er það frábært.“
atli@24stundir.is
X-inu 97.7 hefur borist óvæntur liðsauki
Ómar Bonham
snýr aftur í útvarp
Kominn aftur Ómar Bonham starfaði
áður á Reykjavík FM og XFM.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
4 5 1 7 9 2 3 8 6
6 9 2 8 3 5 1 4 7
3 7 8 4 6 1 5 9 2
7 2 3 9 5 8 4 6 1
5 4 9 6 1 3 7 2 8
8 1 6 2 4 7 9 3 5
9 8 7 5 2 4 6 1 3
1 6 5 3 8 9 2 7 4
2 3 4 1 7 6 8 5 9
Hún faldi öll fötin mín svo ég
færi ekki út í kvöld.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Ja, hann sagðist að minnsta kosti
ekki tala við skríl eins og okkur.
Það er því ljóst hvað honum finnst um
þá sem rísa gegn oki stjórnvalda.
Er ráðherra að bauna á ykkur með einhverju öðru en orðum?
Sturla Jónsson er í forsvari flutningabílstjóra sem staðið hafa í mótmælum að
undanförnu. Í gær er talið að skotið hafi verið á einn bílinn með loftbyssu og
brotið framljós. Geir Haarde forsætisráðherra hefur verið ómyrkur í máli gegn
mótmælendunum.