24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 38

24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir Alveg sama virðist vera hver fyr- irstaðan er; nýsjálenska landsliðið í íshokkí eða bilaður íshefill á svell- inu í miðjum leik. Við göngum í málið og höfum betur. Nýsjálend- inga unnum við 6-3 í fyrsta leikn- um okkar hér „niðri“ í gær og tók- um okkur til og ýttum níðþungum íshefli út af svellinu en sá hafði bil- að í miðjum klíðum og bifaðist ekki. Ekki fyrr en allt íslenska liðið bretti upp ermar. Við erum alveg búnir að koma okkur fyrir hér í bænum Newcastle eftir langt og strangt ferðalag og er- um nokkuð sáttir við enda fer hita- stigið vart undir 25 stigin. Það er góður andi í liðinu og alltaf stutt í brandara þó að deila megi um ágæti þeirra. Fyrsti maðurinn sem við hittum fyrir á fyrstu æfingu var fyrrverandi landsliðsmaðurinn Stefán Tómas- son en hann er hér staddur í fríi og ætlar ekki að láta sitt eftir liggja með stuðning frá áhorfendabekkj- unum meðan á mótinu stendur. Héðan er ekki ýkja langt á ströndina sem heillar marga og þar sjáum við fyrir okkur að væri kjör- inn staður fyrir nýliðavígslu lands- liðsins. Kveðja frá Ingvari. Bilaður íshefill ekki vandamál Unglingar úr ÍR eru Íslands- meistarar félagsliða í frjálsum inn- anhúss eftir frábæra frammistöðu á Meistaramóti 12-14 ára sem fram fór um helgina. Endaði lið ÍR 467 stigum ofar en næsta lið á eftir en tæplega 300 unglingar tóku þátt. Að sögn Egils Eiðssonar, fram- kvæmdastjóra Frjálsíþróttasam- bandsins, var þó önnur ástæða fyr- ir miklum stigamun liða á millum. „Hann helgast mikið af fjölda keppenda en ÍR átti þá flesta og voru mun fjölmennari en önnur lið. Þó er engin ástæða til að taka af þeim að liðið stóð sig afar vel.“ Tvo met voru sett á mótinu. Elma Lára Auðunsdóttir bætti stelpnamet í 800 m hlaupi og stelpnasveitir ÍR tvíbættu Íslands- met í 4x200 m boðhlaupi. Fjölmennt Tæplega 300 kepp- endur frá 20 liðum tóku þátt í Meistaramótinu að þessu sinni. ÍR með besta árangurinn  Vel heppnuðu meistaramóti 12-14 ára unglinga í frjálsum íþrótt- um innanhúss lauk með glæsilegum sigri ÍR 1. sæti með 635 stig ÍR 2. sæti með 168,5 stig Breiðablik 3. sæti með 154,5 stig HSK 4. sæti með 151,5 FH 5. sæti með 105,5 stig UMSE LIÐAKEPPNIN 2x400 m boðhlaup Þar féll annað af tveimur metum og það tvívegis. Stund milli stríða Margir kepptu í fleiri en einni grein og þurftu að blása á milli. Engin met í þetta skipti Engin Íslendsmet féllu í langstökkinu þessa helgina en sjö einstaklingar náðu þeim glæsilega árangri að sigra í fleiri greinum en einni. ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Lið ÍR átti flesta keppendur eða helmingi fleiri en næsta lið á eftir. Engu að síður var ár- angur þeirra nú mjög góður. DAGBÓK INGVAR ÞÓRS JÓNSSONAR FRÁ HM Í ÍSHOKKÍI Í ÁSTRALÍU Árvakur/Árni Sæberg Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 „Það er engin trygging fyrir því að við komumst upp úr undankeppni og ljóst að róðurinn er þungur og keppnin hörð.“ Páll Óskar hefur kynnt sér hin lögin í Evróvisjón. » Meira í Morgunblaðinu Engin trygging Þriðjudagur 8. apríl 2008 Það er meira í Mogganum í dag „Þetta er það sem mig lang- ar alltaf svolít- ið í, að skyn- færin endurfæðist svo við getum gleymt okkur í barnslegri undrun, leyft upplifuninni að hellast yfir okkur óþynntri.“ » Meira í Morgunblaðinu Stýrir Sequences reykjavíkreykjavík „Þetta er vel unnin sýning, skemmtileg og óvenju skýrt hugsuð. Það „að búa sem minnst til“ – ut- an um mann- eskjur sem búnar eru til – verður einhvern veginn alveg kórrétt.“ » Meira í Morgunblaðinu Sá ljóti fær góða dóma

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.