24 stundir - 08.04.2008, Qupperneq 31
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 31
Faroe Ship, dótturfélag Eimskips í
Færeyjum, hefur tekið í notkun
nýjan hafnarkrana. Tilkoma hans
er hluti af nýju og endurbættu sigl-
ingakerfi, sem tekið var í notkun
um síðustu áramót og styður vel
við vaxandi starfsemi félagsins á
svæðinu. Krananum hefur verið
gefið nafnið Greppur, sem þýðir
Risinn. Um 170 manns starfa hjá
Faroe Ship.
Greppur
hafnarkrani
Eitt stærsta flutningafyrirtæki
Bretlands, Stobart Group, færir út
kvíarnar til Írlands nú í apríl. Höf-
uðstöðvar fyrirtækisins verða stað-
settar í Dublin og mun þjónusta
írska viðskiptavini. Floti Stobart
Group samanstendur af 1.400
trukkum en einnig á fyrirtækið yfir
fjórar milljónir fermetra af vöru-
húsplássi. Meira en 3.500 manns
eru í vinnu hjá fyrirtækinu bæði í
Englandi og Evrópu.
Stobart Group
opnað í Dublin
Krakkar eru yfirleitt spenntir fyrir
störfum foreldra sinna. Þetta á sér-
staklega við um börn þeirra sem
vinna á stórum vinnuvélum en fátt
er meira spennandi fyrir börnin en
að fara í ferð á risatrukknum hans
pabba. Á www.amazon.com er sér-
stakur bókaflokkur fyrir vinnu-
vélabörnin sem kallast heavy
machinery. Þar er hægt að fá marg-
ar skemmtilegar bækur fyrir fram-
tíðartrukkabílstjóra.
Trukkabækur á
amazon.com
Nú er fært í Héðinsfjörð í
gegnum Héðinsfjarðargöngin.
Samgönguráðherra sprengdi á
fimmtudag málamyndaspreng-
ingu í tilefni þess að fyrir stuttu
komst verktakinn Háfell og Met-
rostav í gegn styttri hluta gang-
anna Siglufjarðarmegin.
Með í för samgönguráðherra
voru tveir fyrrverandi samgöngu-
ráðherrar og fögnuðu íbúar Héð-
insfjarðar komu þeirra í gegnum
göngin.
Forsaga Héðinsfjarðarganga
Í framhaldi af opnun jarðganga
um Ólafsfjarðarmúla var sam-
þykkt á þingi tillaga árið 1990 um
gerð jarðganga ásamt vegalagn-
ingu milli Ólafsfjarðar og Siglu-
fjarðar. Árið 1999 var tilbúin
skýrsla sem mælti með göngum
um Héðinsfjörð. Vorið 2000 var
síðan samþykkt á Alþingi tillaga
um gerð ganga á norðanverðum
Tröllaskaga. Með þeim tengist
Siglufjörður byggðum við Eyja-
fjörð og Eyjafjarðarsvæðið verður
öflugra.
Framkvæmdir við gerð gang-
anna voru fyrst boðnar út árið
2003 en samkvæmt ákvörðun rík-
isstjórnarinnar var ekki gengið til
samninga við verktaka heldur
ákveðið að bjóða verkið út að
nýju síðar.
Vegagerðin bauð síðan út gerð
Héðinsfjarðarganga í janúar 2006
að undangengnu forvali og geng-
ið var til samninga við lægstbjóð-
anda Metrostav og Háfell ehf.
Upphæð verksamningsins er í
krónum talið stærsti einstaki
verksamningur sem Vegagerðin
hefur gert til þessa. Heildarkostn-
aður verksins er um 7 milljarðar.
Sterkari Eyjafjarðarbyggð
Framkvæmdin er liður í að
styrkja og bæta samgöngur og
byggð á svæðinu. Hún styttir leið-
ina milli Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar um 47 km eða úr 62 km í
um 15 km miðað við að farið sé
um Lágheiði. Ferðin styttist um
219 km ef miðað er við leið um
Öxnadalsheiði.
Nú er búið að slá í gegn Siglu-
fjarðarmegin en sá hluti ganganna
er 3,7 km en Ólafsfjarðarmegin
eru göngin tæpir 7 km. Búið er að
sprengja 2,7 km þeim megin.
dista@24stundir.is
Samgönguráðherra sprengir síðasta haftið
Héðinsfjarðargöng fær
Aðeins 15 km Á milli
Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar með tilkomu Héð-
insfjarðarganga.
24stundir/Þorkell
Í Bandaríkjunum er starfrækt
félag sem ber nafnið 18 hjóla engl-
ar en félagið, sem samanstendur að
mestu af vörubílstjórum, aðstoðar
fjölskyldur barna sem hafa týnst.
Aðstoðin felst einna helst í því að
hengja plaköt með myndum af
börnunum víðsvegar um Banda-
ríkin þó vitanlega geti bílstjórarnir
líka verið vakandi fyrir því hvort
þeir sjái börnin.
Þar sem bílstjórarnir eru stöðugt
á ferð um Bandaríkin reynist þeim
auðvelt að stoppa reglulega til að
hengja upp plakötin og þar með
þurfa ættingjar týndu barnanna
ekki að gera sér ferð um Bandarík-
in.
18 hjóla englar eru sjálfboða-
liðasamtök þar sem bílstjórarnir
bjóða fram krafta sína en þó er
ekki nauðsynlegt að vera vörubíl-
stjóri til að taka þátt. Samtökin eru
í samstarfi við Project Jason sem
útvegar þeim frekari upplýsingar
um týndu börnin og myndir af
börnum birtast í hverju eintaki af
tímaritunum Through the Gears
og Independent Contractor en
þessi tímarit má finna víða á hvíld-
arstöðum vörubílstjóra. Áður en
vörubílstjórar í 18 hjóla englum
leggja af stað fara þeir á heimasíðu
sína til að prenta út myndir af
týndum börnum til að hengja upp
en til að geta verið í samtökunum
er nauðsynlegt að hafa aðgang að
tölvu með interneti, prentara og
tölvupósti.
svanhvit@24stundir.is
Hugulsamir vörubílstjórar leita að týndum börnum
Englar á 18 hjóla trukkum
Engill? Vörubílstjórar í
samtökunum 18 hjóla
englar aðstoða fjöl-
skyldur týndra barna.
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Gufudælur
Afkastamiklir vinnuþjarkar
HDS 13/24 PE Cage
■ Þrýstingur: 60-240 bör
■ Vatnsmagn: 680-1250 ltr/klstHDS 79 8 C Eco
■ Þrýstingur: 30-180 bör
■ Vatnsmagn: 350-750 ltr/klst
HDS 895 S
■ Þrýstingur: 30-180 bör
■ Vatnsmagn: 470-1000 ltr/klst
Í turbo
loftskiljunum kemur
snúningur á sogloftið
og hverfillinn kastar
svo sjálfvirkt út allri
mengun, svo aðeins
hreint loft kemst til
vélarinnar
NÚ ER HVERT GRAMM AF OLÍUNNI
DÝRT OG EKKI LÆKKAR VERÐIÐ Á
LOFTSÍUNUM.
SLÁIÐ TVÆR FLUGUR Í EINU HÖGGI MEÐ
FJÁRFESTINGU Í TURBO LOFTSKILJU
MINNI OLÍUEYÐSLA - FÆRRI DAUÐAR
VINNUSTUNDIR VEGNA STÍFLU Í
LOFTHREINSARA , STÓRLÆKKAÐUR
KOSTNAÐUR VEGNA KAUPA Á PAPPASÍUM
TURBO loftskiljan hreinsar út úr soglofti allan raka
og snjó ásamt 85 % af öllum þeim efnum sem valda
sliti á aflvélum.
Talið við þá sem reynsluna hafa, eða
leitið ýtarlegri upplýsinga hjá okkur
BMB Kaup ehf
Smiðjuveg 4 A Kópavogi
Símar: 564-3220 894-3836