24 stundir - 08.04.2008, Side 36

24 stundir - 08.04.2008, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir HEILL HEIMUR AF SKEMMTUN Opið sunnudaga til fimmtudaga 11.00 -24.00 Opið föstudagaoglaugardaga 11.00 - 02.00 Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is Hlíðasmára 14 • 201 Kópavogur Opið mán-lau kl. 11-17 Sendum frítt um land allt NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN ULL OG SILKI Nærfatnaður fyrir útivistina Skíði, golf, vélsleða, veiði o.m.fl. UNIVERSAL C O N T O U R W R A P TM Með Universal líkamsvafningi missir þú í minnsta lagi 16 cm í hvert skipti. Fljótlegur árangur sem skilar sér strax. Hverju hefur þú að tapa? Stórhöfða 17, 110 Reykjavík Sími: 577 7007 líkamsvafningur Grennandi Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Margir kjósa að forrækta sumar- blóm innandyra og planta þeim síðan í garðinn að vori. Misjafnt er eftir tegundum hve langan tíma fólk þarf að gefa sér í forræktun en flest sumarblóm þurfa 4-8 vikna forræktun. Anna Elíasdóttir, garðyrkjufræð- ingur hjá Grasagarði Reykjavíkur, mælir með því að fólk láti fræin spíra í áburðarsnauðri mold. „Fræ- ið er sett rétt á yfirborðið og mold síðan sáldrað yfir það,“ segir Anna og bætir við að mikilvægt sé að halda jöfnum raka á meðan fræið er að spíra. Lægri hiti eftir spírun „Fræið spírar við 18-20 gráður sem er stofuhiti. Þegar plönturnar eru búnar að spíra þurfa þær yf- irleitt að komast í góða birtu og lægri hita,“ segir Anna og bendir á að annars sé hætt við að plönturn- ar verði ljótar og teygðar. „Þær vaxa of hratt miðað við hvað það er lítil inngeislun. Því meiri birtu sem þær fá, þeim mun hærri má hitinn vera.“ Þola misvel kulda Anna bendir á að hentugt geti verið að koma plöntunum fyrir í vermireitum, til dæmis úti á svöl- um eða í garðinum. Þó verður að hafa í huga að tegundir þola misvel kulda. „Sumar þola ekkert frost og aðrar þola upp í 4-5 gráðu frost. Maður þarf að afla sér upplýsinga um tegundirnar sem maður er með,“ segir Anna. „Svo þegar búið er að prikla plönturnar og þær eru komnar aðeins af stað er gott að vökva þær með áburði,“ segir Anna að lokum. Forræktun sumarblóma Taka forskot á sumarsæluna Það getur verið gott að forrækta sumarblómin innandyra og planta þeim út þegar veður leyf- ir að vori. Anna Elíasdótt- ir garðyrkjufræðingur fer yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga við forræktun sumarblóma og hvað þarf að varast. Sumarblóm Gott er að forrækta sumarblóm inn- andyra áður en þeim er plantað að vori. Nú er tími til að taka fram klipp- ur og sagir til að laga tré og runna. Af trjánum tökum við burt greinar sem hafa brotnað undan snjó- þunga og veðrum. Einnig greinar sem stefna í rangar áttir og fyrirsjá- anlegt er að endi á húsum eða hindri för vegfarenda. Hvar sem við sjáum greinar liggja í kross, þarf að fjarlægja þær sem leita inn í trjákrónurnar. Flesta runna þarf að grisja til að halda þeim í kjörstærð og einnig til að þeir endurnýi sig reglulega. Gamlar og „úr sér vaxnar“ greinar tökum við burt alveg við jörð. Aðr- ar greinar eru snyrtar í takt við eðlilegt vaxtarlag runnanna. Varast ber að stýfa greinar eða taka burt hálfar greinar. Þá er hætta á að runnarnir „fari á stultur“ og missi við það form og glæsileika. Endurnýjun víðihekks Núna er líka tími til að endur- nýja gömul víðihekk, ef þess þarf með. Sagið greinarnar þá eins neð- arlega og þið komist að þeim. Þá vaxa nýju greinarnar upp frá rót- arkömbunum og verða kröftugri en ef þær eru látnar vaxa út frá mismunandi háum „stúfum“. Þeg- ar um stór og úr sér vaxin víðihekk eða víðiskjólbelti er að ræða getur verið gott ráð að taka bara niður aðra hverja plöntu í fyrstu umferð. Í næstu umferð, næsta ár, er svo af- gangurinn tekinn. Með þessu móti verða viðbrigðin ekki eins mikil og skjólið heldur sér, þrátt fyrir al- gjöra endurnýjun. Of snemmt að hreinsa beðin Annað sem við getum gert í garðinum núna er að bæla stöngla og rusl frá því í fyrra á fjölæru plöntunum varlega yfir þær, þeim til skjóls gegn vorfrostunum. Enn er of snemmt að „hreinsa“ beðin – og reyndar sjaldan ástæða til. Best er að lofa fjölæru plöntunum að vaxa upp úr fyrningum fyrra árs. Aftur á móti er sjálfsagt að taka svolítið til í garðinum. Tína upp það sem fokið hefur inn í hann eða færst til í veðrum. Ef mikið er um lauf á grasflöt- inni er því rakað yfir blómabeðin, þeim til skjóls og áburðar. Og ef mosinn er uppivöðslusamur í gras- flötinni fer að verða tímabært að undirbúa einhverjar aðgerðir gegn honum. Ef garðurinn er í góðu skjóli og gras byrjað að grænka er upplagt að mosatæta núna. Sé enn frost í jörðu borgar sig að bíða með það þangað til það er farið úr. Fyrir okkur sem erum bráðlát og skrautgjörn og viljum fá „lit og líf“ í garðinn strax má víða fá blómstr- andi vorlykla og smápáskaliljur sem geta staðið úti í blómakerum og láta ekkert á sjá þótt eitthvað sé um vorhraglanda. Upplagt að út- búa sér samplöntun af slíkum ger- semum og sígrænum barrtrjám, sem nóg framboð er af, og láta standa á tröppunum, svölunum eða sólpallinum. Fyrstu vorverkin í garðinum Hafsteinn Hafliðason skrifar um vorverkin GARÐASPJALL Það má forrækta fleira en litrík og ilmandi sumarblóm. Gott að sá fyrir ýmsum matjurtum svo sem kál- og salattegundum, innandyra með góðum fyrirvara og planta síðan út að vori. Yfirleitt er mælt með því að forræktun káltegunda hefjist snemma í apríl og salatteg- unda í maí. Ef fólk hefur ekki tíma til að standa sjálft í forræktuninni getur það keypt forræktaðar matjurtir í gróðrarstöðvum þegar sumarið nálgast. Forræktun matjurta Upplagt er að nýta þann lífræna úrgang sem fellur til á heimilinu til jarðvegsgerðar. Með því má ekki aðeins draga úr heim- ilissorpi um allt að þriðjung held- ur nýta verðmæti sem hefðu að öðrum kosti fallið í grýtta jörð. Lífrænn úrgangur er fyr- irtaksáburður enda fullur af nær- ingarefnum sem gróðurinn í garðinum kann svo sannarlega að meta. Lífrænn úrgang- ur jarðgerður VORIÐGARÐURINN lifsstill@24stundir.is a Þær vaxa of hratt miðað við hvað það er lítil inngeislun. Því meiri birtu sem þær fá, þeim mun hærri má hitinn vera.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.