24 stundir - 11.04.2008, Blaðsíða 1
Um 150 tónlistarmenn á ýmsum aldri
taka þátt í árlegu Stórsveitamaraþoni
Stórsveitar Reykjavíkur í Ráðhúsi
borgarinnar á laugardag. Sigurður
Flosason segir að aldrei hafi fleiri
sveitir tekið þátt.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Hvergi í heiminum eru stýrivextir í
landi með þróað hagkerfi hærri en á
Íslandi, eftir að Seðlabanki Íslands
hækkaði stýrivexti úr 15 prósentu-
stigum í 15,5 í gær. Seðlabankinn og
greiningardeildir viðskiptabankanna
spá því að stýrivextir haldist nokkuð
háir út árið, en taki þó að lækka þeg-
ar kemur fram á haust.
Samtök atvinnulífsins (SA) brugð-
ust við fréttunum með því að til-
kynna að sett hafi verið á laggirnar
nefnd sérfræðinga til að meta mögu-
leika á evruvæðingu atvinnulífsins,
sem þýðir að einkaaðilar noti evru í
öllum viðskiptum sín á milli.
„Ísland myndi ekki vera eina land-
ið í heiminum þar sem þetta hefði
gerst,“ segir Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri SA, spurður að því
hvort um raunhæfan möguleika sé að
ræða. Hann bendir á að mörg lönd í
Suður-Ameríku, og eins Króatía og
Svartfjallaland, hafi farið þessa leið.
„Ef vextirnir haldast þetta háir til
lengdar frýs hagkerfið, sem mun
leiða til atvinnuleysis og afkomu-
brests okkar félagsmanna,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Alþýðusambands Íslands.
Þarf fleiri tæki en Seðlabanka
Hann gagnrýnir það sem hann
kallar sinnu- og ábyrgðarleysi
stjórnvalda í peningamálum. „Það
verður að finna fleiri leiðir en bara
stjórntæki Seðlabankans til að
vinna bug á verðbólgunni.“
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
sagði þegar ákvörðunin var kynnt
að verðbólga á fyrsta fjórðungi árs-
ins hefði verið meiri en spáð var og
horfur væru á að hún ykist enn
frekar. Viðvarandi verðbólga komi
skuldsettum heimilum og fyrir-
tækjum illa og því sé „þjóðarnauð-
syn að verðbólga verði hamin“.
Hæstu
vextir
í heimi
SKIPTIR EKKI MEGINMÁLI»12
SA kanna evruvæðingu atvinnulífs ASÍ
óttast frost í hagkerfinu og atvinnuleysi
STÝRIVEXTIR Í MARS 2008
Japan
USA
Evrusvæði
Noregur
England
Ísland
Tyrkland
0,5%
2,25%
4%
5,25%
5%
15,5%
15,25%
Þyrlast um í
þjóðgarðinum
„Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
Mikið gekk á í gær við byggingu umdeilds sumarhúss á bakka Þingvalla-
vatns og var meðal annars notuð þyrla við jarðvegsflutninga. „Þetta eru
forkastanleg vinnubrögð og fólk hér í nágrenninu skilur ekki að
Þingvallanefnd hafi leyft þessa framkvæmd,“ segir nágranni. »4
24stundir/Ingimar B.
24stundirföstudagur11. apríl 200869. tölublað 4. árgangur
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500, opið: 10-18 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504, opið virka daga: 10-18 og laugard. 11-16
Enginn er betri
Violino
hágæða
leðursófar
Jörundur Ragnarsson leikari
vakti mikla athygli í Næturvakt-
inni og nú slær hann í gegn sem
Lárus ljóti í leikritinu Sá ljóti. Jör-
undur segir að verkið sé skoplegt en
sorglegt á köflum.
Sá ljóti
KOLLA»16
Blásið af krafti
HELGIN»25
40% verðmunur
á umfelgun
NEYTENDAVAKTIN »4
„Ég er síðasti hefðbundni
enski slátrarinn í mínu hverfi
í austurhluta Lundúna og ég
þarf sennilega að hætta störf-
um,“ segir Brian Clapton.
Honum var gert að hætta að
höggva sundur kjötskrokka
snemma morguns eftir að ná-
grannar kvörtuðu yfir hávaða.
„Ég hef verið hérna í 13 ár og
hef átt góð samskipti við íbúa
hverfisins,“ bætir Clapton við.
„Bráðum verða hérna bara
stórmarkaðir og þeir henta
ekki öllum.“ aij
Þaggað niður
í slátrara
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 72,86 1,48
GBP 143,96 1,60
DKK 15,38 1,11
JPY 0,71 1,65
EUR 114,80 1,11
GENGISVÍSITALA 147,33 1,28
ÚRVALSVÍSITALA 5.348,18 -1,88
2
2
0
1 -1
VEÐRIÐ Í DAG »2
Móðir 15 ára starfsmanns McDo-
nald’s gagnrýnir að á árshátíð fyr-
irtækisins hafi fjöldi starfsmanna
undir lögaldri fengið afgreitt áfengi
og afhenta ávísun á
drykk á barnum.
15 ára barn af-
greitt á barnum
»2
Utanríkisráðherra Eistlands lýsir
yfir opinberum stuðningi við
framboð Íslands til öryggisráðs SÞ.
Hann segir að Eistar styðji fram-
boðið með öllum til-
tækum ráðum.
Eistar í lið með
Íslendingum
»2
Tengsl íbúa í skipta miklu um líðan
fólks í hverju hverfi. Unglingar úr
fátækustu hverfunum eru líklegri
til að íhuga sjálfsmorð en ung-
menni sem búa við
betri kjör.
Fátækari íhuga
frekar sjálfsmorð
»6
Tillögur að breytingum í miðborg-
inni liggja fyrir. Á Pósthússtrætisreit
á að vernda gamla götumynd; við
Vatnsstíg fer hús upp á þak. Náðst
hefur samkomulag um
Hljómalindarreit.
Breytingar í
miðborginni
»14 »10