24 stundir - 11.04.2008, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir. Í
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Á fundi skipulagsráðs á miðviku-
dag var samþykkt að setja tvær
deiliskipulagsbreytingar í miðborg
Reykjavíkur í auglýsingu. Önnur
snýr að breytingum á skipulagi
lóða á Vegamótastíg 7 til 9 og hin
að svokölluðum Pósthússtrætisreit.
Þá var einnig samþykkt tillaga frá
Festum ehf., eiganda lóða og húsa á
Hljómalindarreit, sem þótti best til
þess fallin að vera undirstaða
skipulagsvinnu á honum.
Hús flutt upp á þak
Í samþykkt skipulagsráðs vegna
breytingartillögu fyrir Vegamóta-
stíg 7 til 9 kemur fram að byggt
verði á lóðunum að mestu í sam-
ræmi við áður gildandi deiliskipu-
lag. Þar er stefnt að því að lítill
steinbær, Herdísarbær, verði end-
urreistur á þaki byggingarinnar.
Herdísarbær stóð áður á Vega-
mótastíg 7 en var rifinn fyrir um
fjórum áratugum. Þá verður gamla
timburhúsið sem stendur við Vega-
mótastíg 9 einnig flutt upp á þak,
en samkvæmt gildandi skipulagi
má rífa það hús. Húsið og garður
þess verður áfram í notkun og búið
verður í húsinu. Lyftugöng í ný-
byggingunni munu ná þangað upp
til að tryggja aðgengi.
Ein elsta götumyndin
Reiturinn afmarkast af Pósthús-
stræti, Skólabrú, Lækjargötu og
Austurstræti og er einn elsti hluti
Kvosarinnar. Hann geymir meðal
annars eina elstu götumynd borg-
arinnar á horni Austurstrætis og
Lækjargötu en hún skemmdist
mikið í bruna í apríl 2007.
Deiliskipulagstillagan sem sam-
þykkt var að auglýsa í vikunni er
byggð á vinningstillögu hug-
myndasamkeppni sem efnt var til á
síðasta ári í kjölfar brunans sem
eyðilagði húsin að Lækjargötu 2 og
Austurstræti 22. Samkvæmt henni
er stefnt að því að færa gömul hús á
reitnum til eldra horfs eða lagfæra
þau. Þá er einnig gert ráð fyrir því
að Nýja-Bíó verði byggt aftur upp.
Hljómalindarhús fær að standa
Á fundi skipulagsráðs var einnig
tekin fyrir fyrirspurn Festa ehf.,
eigenda húsa á reitnum, um breyt-
ingu deiliskipulagi hins svokallaða
Hljómalindarreits. Festar lögðu
fram þrjár hugmyndir og skipu-
lagsráð samþykkti eina þeirra sem
undirstöðu áframhaldandi skipu-
lagsvinnu á reitnum. Í tillögunni er
meðal annars gert ráð fyrir að hið
svokallaða Hljómalindarhús fái að
standa áfram. Áður hafði sú hug-
mynd verið í umræðunni að byggja
ellefu hæða byggingu á reitnum.
Áður höfðu Festar verið að fylgja
eftir tillögu sem gerði ráð fyrri ell-
efu hæða turni á reitnum en sú
hugmynd náði ekki að hrífa borg-
aryfirvöld. Húsin sem Festar eiga á
reitnum hafa verið mikið til um-
fjöllunar að undanförnu. Fyrst
kviknaði í húsum þeirra að Hverf-
isgötu 32 og 34 en þau höfðu stað-
ið auð og útigangsmenn hafst þar
við. Þá á fyrirtækið Sirkuslóðina,
gamla Hljómalindarhúsið, Lauga-
veg 19 og 19b (þar sem veitinga-
staðurinn Indókína var lengi til
húsa).
Benedikt Sigurðsson, eigandi
Festa, sagði í viðtali í 24 stundum
4. apríl síðastliðinn að fyrirtækið
hygðist byggja á reitnum 120 her-
bergja hótel og þjónustu-, verslun-
ar- og íbúðarrými.
Gömul götumynd
og hús á þökum
Pósthússtrætisreitur og breytingar á Vegamótastíg í auglýsingu
Borgarráð samþykkir tillögu sem vinna á Hljómalindarreit eftir
Hljómalindarreitur Tillagan
sem samþykkt var að vinna eftir.
„Að undanförnu höfum við
séð margar spennandi hugmyndir
í skipulags- og uppbyggingarmál-
um miðborgarinnar sem okkur
þykja taka mið af þeirri línu sem
við höfum lagt,“ segir Hanna
Birna Kristjánsdóttir, formaður
skipulagsráðs Reykjavíkur. Hún
segir það ekki rétt að borgaryf-
irvöld hafi sýnt undirlægjuhátt
við verktaka við gerð deiliskipu-
lags í miðborginni. „Ég tel að við
höfum sent mjög skýr skilaboð
varðandi Laugaveginn í langan
tíma. En ef það þarf meiri festu þá
mætum við því með meiri festu.“
Hanna Birna segir að ekki sé langt
að bíða þess að uppbyggingin á
reitunum geti hafist. „Vegamóta-
stígurinn er kominn í auglýsingu
og á Pósthússtrætisreitnum er tal-
ið að við getum byrjað strax á
næstu vikum að gera upp þessi
gömlu hús.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir
Hugmyndir taka
mið af okkar línu
„Ég hef miklar væntingar til
þess að þegar við erum með
kjarnasvæðishugsunina að leiðar-
ljósi og í góðu samstarfi við þá
aðila sem eiga lóðirnar þá muni
takast þarna vel til,“ segir Svandís
Svavarsdóttir, sem situr í skipu-
lagsráði. Hún telur að það megi
alveg segja að borgaryfirvöld séu
með þessum aðgerðum að taka
deiliskipulagið aftur í sínar hend-
ur. „Hugsunin í þessu er alveg í
takt við það sem við í 100 daga
meirihlutanum vorum að vinna
að með Hjörleifi Stefánssyni
varðandi borgarvernd. Það snýst
um að í staðinn fyrir að sögu- og
menningarleg sjónarmið séu
númer tvö í forgangsröðinni en
réttur verktakans til að byggja
númer eitt þá snýst þetta við.
Rétturinn til að byggja út að ystu
mörkum deiliskipulags er settur
niður fyrir hin sögu- og menn-
ingarlegu sjónarmið og það eru
straumhvörf.“
Svandís Svavarsdóttir
Réttur verktakans
verður númer tvö
Heilsuvika Hrafnistu
vikuna 7. til 11. apríl
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Chilibuff með
steiktum kartöflum,
klettasalati
og sólskinssósu
Pósthússtrætisreitur Á honum er
ein elsta götumynd Reykjavíkur.
Vegamótastígur 9 Timburhúsið
verður fært upp á þak.