24 stundir - 11.04.2008, Blaðsíða 38

24 stundir - 11.04.2008, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir „Þingmaðurinn (Sigurður Kári) fellur í sama fúla pytt og margir aðrir, þar sem kalt og snjókomu- samt sé þessar vikurnar geti sko ekki verið hnatthlýnun. Þetta er álíka vitlaust og að segja, að úr því að Ögmundur Jónasson tók ekki til máls á Alþingi í dag og í gær sé hann hættur að tala.“ Einar Sveinbjörnsson esv.blog.is „Mig hefur lengi grunað að við séum ekki með gáfaðri þjóðum, nú hef ég fengið það staðfest. Í fréttum var sagt frá því að fólk sem var í líkamsræktinni á 15. hæð í Turninum þegar eldur kom þar upp hafi farið inn í búnings- klefa og klætt sig þegar því var sagt að rýma húsið, í skyndi!“ Björgvin Valur bjorgvin.eyjan.is „Hef rekið augun í það að for- ráðamenn nemendafélaganna í MR staðhæfa að sigur skólans í Gettu betur, Morfís og á MR-VÍ daginn sé einstakt afrek. Eftir því sem ég kemst næst gerðist þetta hins vegar líka árið 1988 … óþarfi að stæra sig af því að þetta sé í fyrsta sinn.“ Stefán Pálsson kaninka.net/stefan BLOGGARINN Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Síminn sá tækifæri og komst inn í verkefnið áður en það var tilbúið. Þeir komu með kröfur um breyt- ingar svo að myndbandið hentaði þeim betur. Við erum ekkert að fela það,“ segir Valgeir Magnússon, Valli Sport, umboðsmaður og spunameistari Merzedes Club. Nýjasta myndband Merzedes Club við lagið Meira frelsi verður notað í nýrri markaðsherferð Sím- ans. Símar koma mikið við sögu í myndbandinu og voru glöggir bloggarar búnir að benda á að símafyrirtæki hafi borgað brúsann, enda auglýst sem dýrasta íslenska myndband allra tíma. Valgeir gefur ekki upp kostnaðinn við mynd- bandið. „Við fórum með hugmynd um samstarf til Símans og þeir gerðu okkur kleift að framleiða myndband og leggja í það alvöru fjármuni.“ Nýta markaðinn Valli fer ekki í felur með að markmið hljómsveitarinnar er að nýta markaðinn við að koma henni á framfæri. Hann bendir á að Sím- inn hafi fengið flotta auglýsingu úr krafsinu og hljómsveitin flott tón- listarmyndband. „Allir græða,“ segir hann. „Þessi tónlist sem hljómsveitin flytur er eins markaðsvæn og hægt er. Það er ekki verið að reyna að gera ann- að. Þetta er vinsældarpopp og það sama og verið er að gera með Christinu Aguilera og Britney Spe- ars og hvað þær heita allar þessar drottningar.“ Valli virðist hafa hitt naglann á höfuðið. Í gær höfðu tæplega 53 þúsund manns horft á mynd- bandið við Meira frelsi á You- tube.com, sem setti það í sjö- unda sæti yfir vinsælustu mynd- bönd dagsins. Youtube er vinsæl- asti myndbandavefur heims svo að það er á meðal vinsælustu myndbanda heims um þess- ar mundir. Þá var mynd- bandið einnig ofarlega á listum Youtube í Hollandi Bretlandi og fleiri löndum. „Við vorum að berjast við Mad- onnu um stund,“ segir Valli. „Svo datt hún út af listanum.“ Myndband Merzedes Club er úthugsað markaðsplott Allir aðilar græða á myndbandinu Umtalað myndband Merzedes Club við lagið Meira frelsi verður aug- lýsing fyrir Símann. Valli Sport fer ekki í felur með hversu markaðsvæn hljómsveitin er. 24stundir/Kristinn Undirritun Merzedes Club ásamt Petreu Guðmunds- dóttur frá Símanum. Valli Sport Nýtir markaðinn til að koma Merzedes Club á framfæri. HEYRST HEFUR … Glöggir lesendur sem fylgjast með bloggi Dr. Gunna hafa orðið varir við að síðan hans, this.is/ drgunni/gerast.html, hefur ekkert verið uppfærð síðan 2. apríl. Það telst vera óvenjulangt blogghlé hjá doktornum sem að öllu jöfnu er mjög ötull við skrifin. Ástæðan er sú að hann flatmagar nú á sólar- strönd, laus undan okri og vondu veðri Íslands sem honum er tíðrætt um, í bili að minnsta kosti. re Norðlenska bændasveitin Hvanndalsbræður með Rögnvald gáfaða í fararbroddi fer mjög óhefð- bundnar leiðir í tónlistarsköpun sinni, þar sem dægurtónlist og pönki er blandað saman. Bænd- urnir láta ekki deigan síga og nú er von á fimmtu breiðskífu sveitarinnar sem hlotið hefur nafnið „Knúsumst um stund“. Áætlaður útgáfudagur plöt- unnar er 15. maí, í tíma fyrir vorverkin. re Nú styttist í að Friðrik Ómar og Regína Ósk haldi til London ásamt Eurovision-goðinu Páli Óskari. Þar koma þau fram í sérstöku Eurovision-partíi sem er sérstaklega haldið til að endurskapa stemn- inguna sem Páli Óskari hefur tekist að skapa á Nasa, í víðfrægum partíum. Hópurinn heldur út 25. apríl. Friðrik Ómar og Regína Ósk taka lagið This is my Life og Páll Óskar flytur Sinn hinsta dans. afb „Þetta varð einkennislag ferð- arinnar. Það var alltaf verið að syngja þessar fleygu línur: Lífið er yndislegt, sjáðu. Það var sungið há- stöfum í rútunni allar leiðirnar og allar næturnar við mismikinn fögnuð þeirra sem reyndu að sofa,“ segir Magnús Árni Öder, bassaleikari hljómsveitarinnar Benny Crespo’s Gang. Hljómsveit Magnúsar hefur undanfarið verið á tónleika- ferðalagi í kringum landið ásamt Dr. Spock og Sign undir yfirskrift- inni Rás 2 og Monitor rokka hringinn. Allar sveitirnar koma saman í Kastljósinu í kvöld og flytja lagið Lífið er yndislegt sem Hreimur, Magni og Bergsveinn fluttu í tilefni þjóðhátíðar í Vest- mannaeyjum 2002. „Það er búið að leggja gríðarlega vinnu í útsetningu á þessum flutn- ingi,“ segir Magnús um flutning- inn í Kastljósinu. „Það hafa verið fimm daga stífar æfingar. Partíin í ferðinni fóru til dæmis öll í að æfa lagið.“ Lokahnykkur tónleikaferð- arinnar verður í kvöld á Nasa. Dr. Spock, Sign og Benny Crespo’s Gang koma fram ásamt hljóm- sveitinni Jan Mayen. Húsið verður opnað klukkan 21. atli@24stundir.is Helstu rokkarar landsins flytja þjóðhátíðarlag Feta í fótspor Magna og Hreims Í Kastljósinu í kvöld Búningar hljómsveit- anna í kvöld vísa óneitanlega í kristna trú. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 6 2 9 7 8 4 3 1 5 7 1 3 6 5 2 8 9 4 8 4 5 9 1 3 2 6 7 9 3 4 8 6 5 1 7 2 1 5 6 3 2 7 9 4 8 2 7 8 4 9 1 6 5 3 5 6 2 1 4 8 7 3 9 3 8 1 5 7 9 4 2 6 4 9 7 2 3 6 5 8 1 Þú mátt klæða þig aftur í fötin. 24FÓLK folk@24stundir.is a Jú, það er rétt, við vor- um allir í góðum Geir. Þú varst í góðra Geira hópi um daginn ekki satt? Geir Ólafsson söngvari ásamt Geir Haarde forsætisráð- herra, Geira Sæm tónlistarmanni, Geir Jóni lögregluþjóni og Geir Magnússyni, fyrrverandi íþróttafréttamanni, tóku allir þátt í sjónvarpsauglýsingu í tilefni vatnsvikunnar sem nú stendur yfir. 170 fm verslunarhús til sölu við Miðvang í Hafnarfirði. Eign með mikla möguleika og góð áhvílandi langtímalán í erlendri myntkörfu yen/fr.franki. Verslunarhúsnæðið er í Miðvangi 41 við hliðina á Samkaups- verslun. Innréttað sem söluturn og vídeóleiga ásamt öllum innréttingum og tækjum. Flott húsnæði með kerfislofti og flísalögðum gólfum. Loftræstikerfi, flott lýsing. WC, eldhús, lager, skrifstofa og salur. Góðir gluggar á framhlið. Verðhugmynd á allan pakkan er kr 45 milj áhv. lán ca 27 milj. Skipti möguleg. Hafið samband við Jóhannes í s-6151226 eða á skrifstofu Eignavers í s-5532222 Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl. Fasteignasalan Eignaver Sími 553-2222 • eignaver.is Síðumúli 13 • 108 Reykjavík Til sölu eða leigu – Laust strax 170 fm verslunarhúsnæði

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.