24 stundir - 11.04.2008, Blaðsíða 12

24 stundir - 11.04.2008, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is „Í sjálfu sér skiptir þessi vaxta- hækkun ekki miklu máli,“ segir Gylfi Magnússon, dósent í hag- fræði við Háskóla Íslands, um 0,5% stýrivaxtahækkun Seðla- banka Íslands í gær. Eftir hækk- unina eru stýrivextir bankans 15,5% og hvergi hærri í ríki með þróað hagkerfi. „Það skiptir meira máli hvað gerist á gengismarkaði – sérstak- lega hvernig gengur að fjármagna viðskiptabankana og hvernig Seðlabankanum gengur að auka gjaldeyrisforða sinn.“ Undir það tekur Edda Rós Karls- dóttir, forstöðumaður greiningar- deildar Landsbankans. Lánsfjárskorturinn verstur Gylfi segir að vissulega geti stýri- vaxtahækkunin orðið til að styrkja gengið, þar sem fjárfestar gætu vilj- að nýta sér vaxtamun Íslands við útlönd, og aukið þannig eftirspurn eftir krónum. „En stóra vanda- málið er framboðið á erlendu fé sem er mjög takmarkað og dýrt. Það torveldar mönnum mjög að nýta vaxtamuninn og minnkar vaxtamuninn í reynd vegna þess hversu erlent fé er dýrt.“ Húsnæðisverð mun lækka Hann bætir því við að það sem sé helst líklegt til að minnka verð- bólgu í nánustu framtíð sé að hús- næðisverð lækki. „Og það er stóru- ndarlegt ef húsnæðisverð gefur ekki verulega eftir á næstunni. Það eru allar aðstæður til þess; mikið framboð húsnæðis og afar erfið kjör hjá þeim sem eru að taka lán til að fjármagna húsnæðiskaup.“ Undir það taka hagfræðingar Seðlabankans, sem spá u.þ.b. 30% raunlækkun fasteignaverðs fyrir lok árs 2010. Spæld að heyra orð Davíðs Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði er vaxtaákvörðun var kynnt, að unnið væri að því að auka gjald- eyrisforðann, en minnti á að að- stæður til þess væri erfiðar, þar sem lánskjör ríkissjóðs væru ekki góð. „Ég var svolítið spæld að heyra þetta sett fram með þessum hætti,“ segir Edda Rós. Hún bendir á að einmitt vegna þess hversu aðstæð- ur á lánskjaramörkuðum eru óhag- stæðar, sé mikilvægt að hafa sterk- an gjaldeyrisforða. Og ef hann verði styrktur séu líkur til þess að lánskjör ríkissjóðs og bankanna skáni. „Auðvitað eru þetta spurning um að meta aðstæður hverju sinni en það er mikilvægt að vanmeta ekki áhættuna í kerfinu. Það er hlutverk stjórnvalda hverju sinni að greiða fyrir virkni markaðarins og nú verða þau að gera það.“ Hækka vexti Stýrivextir Seðlabankans hækkuðu um hálft prósentustig í gær. Gjaldeyrisaukn- ing mikilvægari  Vaxtahækkunin skiptir ekki meginmáli, segir dósent í hagfræði  Stýrivextir hvergi hærri í landi með þróað fjármálakerfi ➤ Seðlabankinn spáir því aðstýrivaxtir hækki um 0,25% til viðbótar, en taki að lækka þegar kemur fram á haust. ➤ Viðskiptabankarnir spá þvíað stýrivextir verði áfram háir út árið – t.d. spáir grein- ingadeild Landsbankans 14,75% stýrivöxtum í lok árs. ➤ Við lok árs 2009 spá við-skiptabankarnir því að stýri- vextir verði 6,5 til 9 prósentu- stig. STÝRIVAXTASPÁ MARKAÐURINN Í GÆR            ! "#                               !"#      $ %        &#  '()*+ '  , -./.   0#1   2         345   #"   " 61  "(## (7      81 !"# "    +9 #/   '    01  - -   :   -        ;# 1         -/    !                                                                   : -   0 -< = $ ' >?@@?A?B >?5>5B3>A 53@@A>?C5 >33@D4AAA >>54BB>34A @>5C4C? 4C5A5C >CCB35DB@? @A4@5C@B? A?>BA4CC A@4D>?BB4 A4@3C>@?3 ?BBAC?BCC >CC5A34C BBA?CC >3>B@DAD @B@4A@ A>DA@> , , A?35?5A , AC4C3>@4C D@@D@34A , , BCD45CCC , , @EDD DDE5C >AE@A @EC@ >@E5C ADE@C ADE>5 ?D4ECC 3CE5C BCEDC 5EB3 >AE5C DED3 BAECC >E3D 4E@@ AAAECC >3?BECC 3?AECC CE@A >DDECC , , @E5C , , DBBCECC , , @E5D DDEBC >AE?5 @ECB >@E55 ADEBC ADEA5 ?5CECC 3CE?C BCE4C 5EB@ >AE5? DEDB BAE3C >E34 4E?C AA3ECC >D>CECC 3BAECC CE@3 >D@ECC >E?> A>EB5 ?E5C , , 5C4CECC >AECC 4ECC /   - >A 35 B> 5@ BA @ A B> 4B 5 B5 D> @ D A A D > , , >5 , > >C , , 4 , , F#   -#- >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? >CDACC? @DACC? >CDACC? >C3ACC? >?AACC? >CDACC? 4>AACC@ AA?ACC@ >CDACC? ADACC? @3ACC? ● Mest viðskipti í Kauphöll OMX í gær voru með bréf Glitnis, fyrir um 1,2 milljarða króna. Næstmest viðskipti voru með bréf Kaup- þings, fyrir 1,0 milljarð. ● Mesta hækkunin var á bréfum Skipta, eða 2,18%. ● Mesta lækkunin var á bréfum Glitnis, eða 3,10%. Bréf FL Group lækkuðu um 2,88% og bréf Exista um 2,83%. ● Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,88% í gær og stóð í 5.348 stig- um í lok dags. ● Íslenska krónan veiktist um 1,30% í gær. ● Samnorræna OMX40- vísitalan lækkaði um 0,80% í gær. Breska FTSE-vísitalan lækk- aði um 0,3% og þýska DAX- vísitalan um 0,25%. Aðalhagfræðingur Hand- elsbanken í Danmörku segir við fréttavef Børsen að Seðlabanki Ís- lands sé kominn út í horn þar sem vaxtahækkanir séu nauðsyn- legar. Ákvörðun Seðlabankans í morgun um 0,5 prósenta hækkun stýrivaxta auki enn á vandamálin. Segir hann bankanum nánast ómögulegt að ýta undir íslenskt atvinnulíf og hlutabréfamarkað með því að lækka vexti þar sem verðbólgan sé svo mikil. mbl.is Seðlabankinn úti í horni Nýr viðskiptabókaklúbbur hefur litið dagsins ljós en Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) stofn- aði klúbbinn í samstarfi við Eymundsson. Er klúbburinn hugsaður fyrir viðskipta- og hag- fræðinga og aðra stjórn- endur og fá meðlimir send- ar fjórar bækur á ári. Bækurnar eru valdar af sér- stakri valnefnd sem skipuð er fólki úr viðskiptalífinu. Ágústa Jónsdóttir, formaður fræðslunefndar FVH, segir hugmyndina þá að auðvelda fólki val á bókum. „Maður er oft að kaupa bækur en það eru kannski 50 bækur í boði og maður veit ekki hverjar eru góðar og hverjar slæmar. Hugmyndin er að vera með 4 bækur á ári sem eru góðar og aðrir mæla með,“ segir hún. Bækurnar verða á ensku en íslensk útgáfa skoðuð ef svo ber undir. aak Nýr bókaklúbbur viðskiptabóka Samskipti með tölvupósti fara að hætta, að minnsta kosti í þeirri mynd sem þau eru nú. Þetta full- yrðir Avi Baumstein sem starfar á tímaritinu Informationweek. Hann segir ruslpóst eiga stóran þátt í breytingunum. Ruslpóstur er 98 prósent alls tölvupósts, samkvæmt upplýsingum Inform- ationweek. Í tímaritinu er því haldið fram að varnir síðustu viku eða gærdagsins dugi ekki gegn ruslpóstinum. Svindl með ruslpósti verður einnig sífellt viðameira. Mikilvægi tölvu- pósts minnkar Það kostar bresk yfirvöld 3,5 milljónir punda eða um hálfan milljarð íslenskra króna að hafa kallað bakkelsi sem Englendingar borða með teinu köku. Vöru- húsakeðjan Marks & Spencer hef- ur í 12 ár barist fyrir því að fá endurgreiddan virðisaukaskatt af bakkelsinu sem er í raun kex en flokkaðist sem kaka. Greiða þarf skatt af kökum en ekki kexi. Yf- irvöld viðurkenndu mistökin 1994 en fyrirtækið vildi endur- greiðslu og nú hefur Evrópudóm- stóllinn dæmt því í vil. Hálfs milljarðs kökumistök FÉOGFRAMI vidskipti@24stundir.is a Það skiptir meira máli hvað gerist á gengismarkaði - sérstaklega hvernig gengur að fjármagna viðskiptabankana og auka gjaldeyrisforðann. www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Sliskjur og rampar fyrir hjólastóla Aðgengi fyrir alla

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.