24 stundir - 11.04.2008, Side 16

24 stundir - 11.04.2008, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@24stundir.is a Innsæið er mikilvægast af öllu. Albert Einstein Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@24stundir.is „Þetta er saga um Lárus, nægju- saman, hæfileikaríkan mann sem er á uppleið í starfi sínu. Hann ger- ir tímamótauppfinningu en fær ekki að njóta velgengninnar vegna þess að yfirmaður hans telur hann of ljótan. Í stað Lárusar er aðstoð- armaður hans fenginn til að fara á ráðstefnu til að kynna vöruna. Lár- us er auðvitað ekki sáttur og grípur til ráðstafana sem hafa afdrifaríkar afleiðingar,“ segir Jörundur Ragn- arsson sem fer með hlutverk Lár- usar í sýningu Þjóðleikhússins á Þeim ljóta eftir Marius von Ma- yenburg. „Þetta er skoplegt verk sem verður martraðarkennt og sárt á köflum. Það er grínádeila á þá fegurðardýrkun sem er ríkjandi í samfélaginu. Nútímamaðurinn er hættur að skilgreina sig út frá því sem hann fær í vöggugjöf heldur út frá sjónarmiðum umhverfisins. Þar er ríkjandi fegurðarstaðall og línan er dregin á milli fallegs fólks og ljóts fólks og Lárus stenst ekki þann staðal,“ segir Jörundur. Lágstemmdur leikstíll Ásamt Jörundi eru Dóra Jó- hannsdóttir, Stefán Hallur Stefáns- son og Vignir Rafn Valþórsson leikarar sýningarinnar og leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Jörundur segir hlutverk Lárusar vera krefj- andi enda er hann á sviðinu allan tímann og þarf að túlka miklar sviptingar í lífi persónunnar. „Þetta er mjög vel skrifað leikrit. Engar senuskiptingar eru skrifaðar inn, það er skrifað í einu samfelldu flæði. Það er líka lítið um leiklýs- ingar þannig að við urðum að finna okkar eigin leiðir. Leikstíll okkar er lágstemmdur og við höf- um textann í forgrunni. Sumir hafa tengt sýninguna við útvarps- leikhús því áhorfandinn fær algjör- lega að njóta textans. Það var leik- ritið sjálft sem ýtti okkur í þessa átt. Við komumst að raun um að um leið og við reyndum að bæta einhverju inn sem leikskáldið hafði ekki sett inn í verkið þá dó allt.“ Gefandi vinna Jörundur hefur leikið á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi en hann skrifaði og lék í þáttunum Næt- urvaktin. „Ég hef verið frekar heppinn og eitt verkefnið hefur tekið við af öðru,“ segir hann. „Það er erfitt að bera saman þessa miðla. Við kvikmyndatökur veit maður að hægt er að taka hlutina upp nokkrum sinnum og andrúmsloft- ið er afslappaðra. Ég er oft stress- aðri í leikhúsinu. Maður þarf á stressinu að halda á sviðinu, til að fá orkuna til að miðla til áhorf- enda.“ Næsta verkefni Jörundar er þátt- taka í Dagvaktinni en upptökur hefjast um miðjan mánuðinn. „Vinnan við Næturvaktina var af- skaplega gefandi, skapandi og lær- dómsrík. Þess vegna hlakka ég til að hefja upptökur á Dagvaktinni. Það er ekkert skemmtilegra en að vinna með hóp þar sem fólk nær vel saman og talar sama tungumál- ið.“ Jörundur „Maður þarf á stressinu að halda á sviðinu, til að fá orkuna til að miðla til áhorfenda.“ Jörundur Ragnarsson fer með aðalhlutverkið í leikritinu Sá ljóti Undarleg veröld „Þetta er skoplegt verk sem verður martrað- arkennt og sárt á köfl- um,“ segir Jörundur Ragnarsson sem fer með aðalhlutverkið í leikritinu Sá ljóti eftir Marius von Mayenburg. ➤ Jörundur Ragnarsson útskrif-aðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2006. ➤ Hann er einn af stofnendumleikfélagsins Vér morðingjar sem meðal annars setti Pe- netreitor eftir Anthony Neil- son á svið. ➤ Meðal kvikmynda sem hannhefur leikið í eru Veðramót og Astrópía. MAÐURINN 24stundir/G.Rúnar Á þessum degi árið 1814 afsalaði Napóleon Bonaparte, keisari Frakka, sér völdum. Hann var dæmdur í útlegð til eyjarinnar Elbu. Upphafið að falli Napóleons má rekja til herleiðangurs hans inn í Rússland árið 1812. Sú för var feigðarflan og leifarnar af her Napóleons hörfuðu frá Moskvu. Evrópuríki snerust mörg hver gegn Napóleon sem bauðst til að afsala sér völdum gegn því að barnungur sonur hans tæki við af honum. Þessu boði hans var hafnað. Napóleon afsalaði sér þá völdum og var sendur til Elbu. Hann flúði í marsmánuði 1815 og sneri aftur til Parísar þar sem stuðningsmenn hans fögnuðu honum. Hann tók sér keisaratitil að nýju og við tók hundrað daga stjórn hans. Í mars- mánuði 1815 var hann sigraður í hinni frægu orrustu við Waterloo. Hann afsalaði sér völdum í annað sinn og var sendur í útlegð til Sankti Helenu. Þar lést hann 5. maí 1821. Allt frá dauða hans hafa verið á kreiki sögusagnir um að hann hafi verið myrtur en nýjar rannsóknar benda til að svo hafi ekki verið. Talið er að hann hafi látist úr krabbameini. Napóleon var 52 ára þegar hann lést. MENNINGARMOLINN Napóleon afsalar sér völdum Veröld gefur út ljóðabókina Agnarsmá brot úr eilífð eftir Ólaf Ragnarsson, fyrrverandi bókaútgefanda og fréttamann. Ljóðin orti Ólafur síðustu tvö ár ævi sinnar eftir að hann greindist með MND-sjúkdóm- inn, hreyfitaugahrörnun, og missti málið af völdum hans. Ólafur Ragnarsson lést þann 27. mars síðastliðinn. Brot úr eilífð AFMÆLI Í DAG Septimus Severis Rómarkeisari, 146 Vincent Gallo leikari, 1962 Vaka- Helgafell sendir nú frá sér kvæða- safn Þór- arins Eld- járns sem hefur að geyma mik- inn skáldskaparfjársjóð: allar útgefnar ljóðabækur hans, átta talsins, og úrval úr fimm barnaljóðabókum, hátt á fjórða hundrað kvæða alls. Hér má finna afar fjölbreyti- legan ljóðaforða: hárbeittar ádeilur, græskulaust gaman, sorg og trega, heimspekilegar vangaveltur, náttúrustemn- ingar, orðaleiki, íhuganir um lífið, söguna, landið og tungu- málið. Mörg ljóðanna eru bundin í rím og stuðla en önnur lausbeislaðri í formi. Kvæðasafn Þórarins Út eru komnar bækurnar Undra- heimar Rómar í nýju ljósi og Undra- heimar Egypta í nýju ljósi. Þetta eru nýstár- legar bækur þar sem frum- legar fellimyndir sýna horfinn heim fornra tíma og fróðlegur texti segir frá sama heimi á skýran og skemmti- legan hátt. Texti og myndir eru eftir Leigh Grant. Ís- lenska þýð- ingu gerði Pétur Hrafn Árnason. Þarna eru myndir af Róm- artorgi, musterum, öld- ungaráðinu, dómstólum, hringleikahúsinu Kólosseum og píramídum og hofum far- aóanna. Undraheimar fyrir börn

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.