24 stundir - 11.04.2008, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Þetta er mjög sexí hópur sem
við erum með. Svo eru þær
mjög hressar og fyndnar.
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Sýningarnar verða aðallega á
skemmtistöðum þannig að þær
verða bannaðar börnum. Þær verða
samt ekki of grófar. Djarfar en ekki
grófar,“ segir Þórey Heiðarsdóttir.
Þórey og Sylvía Lind Stef-
ánsdóttir eru í forsvari fyrir fyrsta
burlesque-danshóp landsins.
Áheyrnarprufur fóru fram um síð-
ustu helgi og gengu vel að sögn
Þóreyjar. 37 stúlkur mættu og sex
stúlkur voru valdar. Hópurinn tel-
ur því samtals átta stúlkur. „Það
kom ein í einu inn til okkar og
dansaði,“ segir Þórey um áheyrn-
arprufurnar. „Sumar sungu, en það
voru engin American Idol-
móment.“
Sexí hópur
Þórey segir að í hópnum séu
bæði frábærir söngvarar og dans-
arar. „Þetta er mjög sexí hópur sem
við erum með. Svo eru þær mjög
hressar og fyndnar,“ segir hún.
Kynþokkinn og húmorinn ætti að
koma sér vel fyrir hópinn, enda
þessir tveir mannkostir meg-
instoðir í heimi burles-
que-dansa.
Þórey segir æfingar hjá
hópnum hefjast í næstu
viku, en óvíst er hvenær
fyrsta sýningin fer á svið. „Það
verður örugglega í sumar,“ segir
hún. „Ég veit ekki hvenær.
Það fer eftir því hvern-
ig gengur að æfa.“
Enn á eftir að ráða
eina manneskju í
hópinn, sem verður
að öllum líkindum
eini karlkyns með-
limurinn. Hann
mun ekki stíga dans
þó húmorinn verði
að vera til staðar.
„Við ætlum að
fá karlkyns
kynni. Hann
verður að
geta verið
fyndinn,“
segir Þór-
ey.
Fyrsti burlesque-danshópur landsins tekur á sig mynd
Djarfur en ekki
grófur danshópur
➤ Burlesque-danssýningar márekja til ársins 1840, en urðu
vinsælar um 30 árum síðar.
➤ Burlesque blandar samanhúmor og kynþokka.
➤ Korsilett, fjaðrir, kjólar ogblöðrur eru meðal vinsælla
búninga í burlesque-dansi.
➤ Dita Von Teese og hljóm-sveitin Pussycat Dolls eru
meðal þeirra sem
halda flaggi burles-
que-dansins á lofti í
dag.
BURLESQUE-DANS
Stúlkurnar tvær sem
standa að baki fyrsta bur-
lesque-danshópi landsins
hafa valið sex stúlkur til
að dansa með sér. Fyrsta
sýningin verður að öllum
líkindum í sumar.
Glæsilegur hópur Dömur
mínar og herrar; fyrsti bur-
lesque-danshópur landsins.
24stundir/hag
Burlesque-drottning Dita
Von Teese er líklega frægasti
burlesque-dansari heims.
Kvikmyndir traustis@24stundir.is
Hasarmyndin Doomsday er ein-
hver skrítnasta samsuða sem varp-
að hefur verið á hvíta tjaldið.
Frumleikinn er enginn, handritið
er handónýtt og leikurinn er yf-
irborðskenndari en fullnæging
klámmyndaleikkonu. Sagan gerist í
framtíðinni, árið 2037, þar sem
löggurnar keyra um á Volkswagen
Passat, 2007 árgerð. Banvænn vírus
hefur eytt flestum Skotum og land-
ið hefur verið girt af. Limafagra
löggan Eden fær það verkefni að
sækja þangað lækningu, þar sem
vírusinn hefur gert vart við sig í
London. Reynist það hættuför.
Myndin er augljós samsuða af
Escape from New York, 28 Weeks
Later, Mad Max og Hringadrótt-
inssögu. Hvort verið er að heiðra
þessar myndir eða stela frá þeim er
ekki ljóst, þar sem myndin hefur
ekki snefil af frumleika. Svo er
myndin svo kjánalega léleg, að það
kæmi alls ekki á óvart að myndin
endaði sem „költ“-mynd í þröng-
um hópi kvikmyndanjarða. En
ekki hjá mér. Svo mikið er víst.
Þetta er nú
meira ruglið!!!
Hetjan Rhona Mitra sló
í gegn í Boston Legal.
Leikstjóri: Neil Marshall Aðalhlutverk:
Rhona Mitra, Bob Hoskins
Doomsday
MYNDASÖGUR
Aðþrengdur Afsakið að ég er til!
FJÁRHAGSLEGA
ER ÞETTA
FRÁBÆRT.
ÞURFUM EKKI. . .
Bizzaró
Loksins, ég held ég sé
búinn að ná síðasta
froskinum!
Þvílík martröð.
. . . EINU SINNI AÐ KAUPA
OKKUR SPEGIL.
Í VINNUNNI ERU V IÐ ÞEKKTIR
SEM NÁUNGINN SEM SLÆR
ÖLL YFIRVINNUMET.
KLÚBBURINN: PLÁGA MÁNAÐARINS
MÁNUDAGUR
7 HJÁLEIÐIR
Fæst í Hagkaupum og í apótekum um land allt
50% stærri og þykkari
varir strax!!
Áhrifamikið varagloss sem virkar á aðeins mínútu
en endist í marga klukkutíma.
Sjáanlegur árangur strax.
Kemur í fjórum litum.
Ertu að flytja, láttu fagmenn
sjá um verkið fyrir þig
Örugg og trygg
þjónusta