24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir
Er mikið álag
í vinnunni?
LGG+ er fyrirbyggjandi vörn!
Oft koma fyrstu einkenni streitu fram
sem stöðug þreyta og óþægindi í
maganum og ónæmiskerfið starfar
af minni krafti en áður. Rannsóknir
sýna að LGG+ vinnur gegn
þessum neikvæðu áhrifum
og dagleg neysla þess
tryggir fulla virkni.
H
V
Í T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
VÍÐA UM HEIM
Algarve 19
Amsterdam 10
Alicante 17
Barcelona 15
Berlín 9
Las Palmas 22
Dublin 11
Frankfurt 11
Glasgow 9
Brussel 8
Hamborg 9
Helsinki 7
Kaupmannahöfn 9
London 12
Madrid 20
Mílanó 15
Montreal 2
Lúxemborg 6
New York 8
Nuuk 1
Orlando 9
Osló 6
Genf 10
París 10
Mallorca 20
Stokkhólmur 10
Þórshöfn 4
Suðlæg átt, 5-13 m/s, hvassast um landið
sunnan- og vestantil. Skýjað með köflum og
yfirleitt þurrt sunnanlands, en annars bjart að
mestu.
Hiti 2 til 9 stig yfir daginn.
VEÐRIÐ Í DAG
6
7
1
3 2
Skýjað með köflum
Suðaustan 8-15 m/s við suður- og vest-
urströndina, annars hægari. Bjart að mestu
um landið norðanvert, en skýjað sunnanlands
og lítilsháttar væta. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast á
Suðvesturlandi.
VEÐRIÐ Á MORGUN
6
7
-2
3 2
Allt að 10 stiga hiti
„Það er ömurlegt að sjá að Síminn maki krókinn
með óþarfa hækkunum um leið og gengið fer að hreyf-
ast,“ segir Snorri Ingimarsson, meðlimur í Ferða-
klúbbnum 4x4, um hækkun Símans á mánaðargjaldi
fyrir Iridium-gervihnattasíma. Gjaldið hækkaði um
mánaðamótin síðustu, úr 2.800 krónum í 3.300.
Snorri segir að um sé að ræða öryggistæki sem
margir noti í fjallaferðum þar sem önnur símakerfi
dugi ekki á hálendinu. Mánaðargjaldið hafi verið
hækkað úr 1.930 krónum haustið 2005.
Snorri bendir jafnframt á að hækkun Símans á
mánaðargjaldinu sé ekki til komin vegna peninga-
skorts fyrirtækisins. „Á sama tíma eyðir Síminn tugum
milljóna í ímyndarsköpun,“ segir Snorri, og vísar í nýja
auglýsingu með hljómsveitinni Merzedes Club.
Framvegis mun Síminn ekki hækka verð án fyr-
irvara, en Síminn og Vodafone hafa fallist á tilmæli
talsmanns neytenda þess efnis að kynna öllum neyt-
endum með mánaðarfyrirvara um verðhækkanir og
aðrar breytingar á verðskrám. Tilefni tilmælanna voru
þau að fyrirtækin hafa frá áramótum hækkað verð án
þess að tilkynna hverjum og einum um það, skv.
fréttatilkynningu frá talsmanninum. hlynur@24stundir.is
„Síminn makar krókinn með óþarfa hækkunum“
Hækka verð á öryggisbúnaði
Ósáttur Snorri Ingimarsson er ósáttur við hækkun á mán-
aðargjaldi hjá Símanum.
RARIK ohf. hefur stofnað dótturfélagið RARIK
Energy Development ltd. Það mun halda utan
um ráðgjöf- og þróunarverkefni RARIK innan-
lands og erlendis. Eitt meginarkmiðið með
stofnun félagsins er að skapa vettvang erlendis
fyrir starfsmenn RARIK og stuðla þannig að út-
flutningi þekkingar á orkumálum og nýtingu
umhverfisvænna orkulinda. Þá á það líka að
tryggja áframhaldandi vöxt og verðmætasköpun
innan RARIK-samstæðunnar. Framkvæmda-
stjóri félagsins verður Steinar Friðgeirsson. þsj
RARIK stofnar líka útrásarfélag
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Akranesvagninn gengur náttúr-
lega vel og er búinn að gera það
síðan Strætó bs. byrjaði að keyra
upp eftir. Á morgnana fara tvær
rútur frá Akranesi,“ segir Einar
Kristjánsson, sviðsstjóri þjónustu-
sviðs Strætó. Viðræður standa nú
yfir milli fyrirtækisins og sveitar-
stjórnar Borgarbyggðar þess efnis
að vagninn gangi alla leið upp í
Borgarnes og jafnvel að Bifröst. Þá
hafa sveitarstjórnarmenn úr Ölfusi
og Árborg átt viðræður við Strætó
um akstur þangað. Einar segir fyr-
irtækið ekki hafa rætt við sveitar-
félög á Reykjanesi um samstarf,
fréttir af áhuga á slíku hafi hann
eingöngu úr fjölmiðlum.
Hann segir margt unnið með
heildstæðu leiðakerfi á stór-höfuð-
borgarsvæðinu. „Það er alltaf gott
að skipulagningin sé á sömu hendi.
Vagnar sem koma frá þessum stöð-
um núna keyra allir niður á BSÍ en
hægt væri að beina þeim í Mjódd
þaðan sem er tenging í allar áttir.
Það gæti til dæmis verið sparnaður
í því.“
Undirbýr útboð
Hann segir samninga sem þessa
þó ekki lúta að öðru en samræm-
ingu leiðakerfis og slíku. „Við höf-
um lítinn sem engan áhuga á að
keyra þessar leiðir,“ segir hann en
samið er við verktaka um akstur á
Akranes. „Við myndum örugglega
bjóða þessar leiðir út,“ segir hann.
Strætó undirbýr nú gríðarstórt
útboð sem auglýst verður í lok
mánaðarins. „50% af okkar akstri
verður auglýst en stór hluti af okk-
ar akstri er ekki á okkar hendi þó
við skipuleggjum leiðakerfið,“ segir
hann.
Ekki fleiri byltingar
Einar segir fyrirtækið hætt öllum
byltingum í leiðakerfismálum en
miklar breytingar hafi verið gerðar
á núverandi kerfi eftir að það var
tekið í notkun árið 2005. Þó verði
kerfið alltaf lagað að því þegar ný
hverfi byggjast og gerðar á því ýms-
ar smábreytingar.
„Fólk kemur með tillögur til
okkar og þegar við förum að vinna
að leiðakerfismálum athugum við
hvað er raunhæft í þeim.“
Skagastrætó
slær í gegn
Viðræður milli Strætó og nágrannabyggða um aukið samstarf
Vagnstjórinn Halldór
Jóhannsson ekur Akra-
nesvagninum.
➤ Leið númer 27 ekur milli Mos-fellsbæjar og Akraness.
➤ Vagninn fer níu ferðir á dagog er fyrsta ferðin farin á
tveimur vögnum.
➤ Um 300 manns nota þjón-ustuna á degi hverjum.
AKRANESSTRÆTÓ
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Framkvæmdastjórn Starfs-
greinasambandsins lýsir mik-
illi óánægju með þróun efna-
hags- og verðlagsmála frá því
að kjarasamningar voru und-
irritaðir 17. febrúar sl. Að-
stæðurnar kalli nú þegar á
samráð allra um nýja þjóð-
arsátt. Grípa þurfi tafarlaust
til aðgerða til að vernda kaup-
mátt launafólks. Bresti for-
sendur kjarasamninga, lýsir
SGS ábyrgð á hendur rík-
isstjórninni vegna aðgerða-
leysis hennar.
Nýja þjóð-
arsátt strax
Starfsgreinasambandið
Premyslaw Plank,
pólskur karl-
maður sem grun-
aður er um aðild
að hrottalegu
morði í heima-
landi sínu, var
dæmdur í þriggja
vikna gæslu-
varðhald í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær.
Maðurinn, sem gengur undir
nafninu Plankton og er talinn
tengjast pólskum glæpa-
samtökum, var handtekinn í
fyrradag að beiðni pólskra yf-
irvalda eftir að þeim barst vitn-
eskja um hann væri staddur hér á
landi.
Samkvæmt úrskurði héraðsdóms
skal hann sæta gæslu til 6. maí.
Úrskurðaður í
gæsluvarðhald
Að mati Persónuverndar veitti elliheimilið Grund ósjálfráða starfs-
stúlku ekki nægilega fræðslu í tengslum við veikindatilkynningar til
fyrirtækisins InPro. Vinnsla upplýsinganna um fjarvistir stúlkunnar
frá vinnu vegna veikinda var ekki í samræmi við ákvæði laga um per-
sónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, að því er segir í úrskurði
Persónuverndar sem kveðinn var upp í fyrradag. Móðir stúlkunnar rit-
aði Persónuvernd bréf í nóvember síðastliðnum og kvartaði yfir
óþarfri skylduskráningu og söfnun heilsufarsupplýsinga um ósjálfráða
einstakling án samþykkis forráðamanns. ibs
Vinnsla um fjarvistir óheimil
Tillögu Vinstri grænna um að
láta sölu Fríkirkjuvegar 11 til
Novators ganga til baka var vísað
frá á borgarstjórnarfundi í gær.
Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra
þótti ómaklega að sér vegið þegar
hann sat undir ámæli minnihlut-
ans fyrir að skipta um skoðun í
málinu eftir að hann komst í
meirihluta, en hann var á sínum
tíma á móti sölunni. ejg
Þótti ómaklega
að sér vegið
Stafnás ehf. hyggst stefna Fag-
húsum ehf. fyrir að rifta verksamn-
ingi við fyrirtækið óvænt og fyr-
irvaralaust um miðjan desember,
til að komast hjá því að greiða fyr-
irtækinu um 200 milljónir króna,
en Stafnás vann að byggingu skrif-
stofuhúss við Urðarhvarf í Kópa-
vogi fyrir Faghús.
Í lok mars sögðu 24 stundir frá
því að Stafnás hefði sagt upp um
eitt hundrað starfsmönnum, sem
sumir hverjir höfðu ekki fengið
greidd laun í á þriðja mánuð. Í
grein sem framkvæmdastjóri Staf-
náss sendi 24 stundum á mánudag-
inn og birtist í blaðinu í dag, segir
hann riftun verksamningsins hafa
leikið fyrirtækið grátt vegna lána-
stopps bankanna og takist fyrir-
tækinu ekki að útvega viðbótarfjár-
magn til reksturs, beri Faghús
ábyrgð á gjaldþroti fyrirtækisins
verði það raunin. aegir@24stundir.is
Stafnás ehf. hyggst stefna Faghúsum ehf.
Krefjast 200 milljóna