24 stundir - 16.04.2008, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sigbogi@simnet.is
Hekla sýnir fjölbreytt úrval at-
vinnubíla á sýningunni Verk og vit.
Fyrirtækið er sterkt á þeim mark-
aði og hefur að undanförnu komið
með ýmsar gerðir bíla sem eru
hentugar fyrir fólk á ferðinni sem
er í atvinnurekstri. „Við vorum að
fá nýjustu gerðina af Volkswagen
Caddy Maxi og kynnum þá bíla á
sýningunni. Þetta er nýjasta týpan
af Caddy-bílunum sem hafa reynst
frábærlega hér á landi. Við bindum
miklar vonir við þessa bíla, sem
eru lítið eitt lengri bílar en fyrri út-
gáfa,“ segir Ólafur Kristjánsson,
söluráðgjafi hjá fyrirtæja- og flota-
sölu Heklu. Hann segir bílana
hannaða með það fyrir augum að
setja ný viðmið í flokki lítilla sendi-
og fólksbíla og hvort sem bíllinn sé
notaður í innabæjarakstri eða úti á
landi sé hann jafnan sparneytinn,
þægilegur og lipur í akstri.
Ný útgáfa
Heklumenn munu einnig sýna
Mitsubishi L-200-bíla sem hafa á
undanförnum árum notið mikilla
vinsælda meðal einyrkja í atvinnu-
rekstri, verktaka og fleiri slíkra. Ný
útgáfa af þessum sívinsælu bílum
kom á markaðinn fyrir skemmstu
og verður hún sýnd á sýningunni
sem og atvinnubílar frá systurfyr-
irtækinu Öskju sem selur Merce-
des-Benz. Einnig hefur Hekla um-
boð fyrir Scania og vinnuvélar frá
Caterpillar. Hafa vélar þeirrar
gerðar komið við sögu allra stór-
framkvæmda á sviði jarðvinnu hér-
lendis á undanförnum áratugum.
Á sýningunni kynna Heklumenn
nýja þjónustu, svonefnda fyrirtækja-
og flotasölu, sem ætlað er að efla
þjónustu við þá viðskiptavini sem
eiga fleiri en þrjá bíla frá Heklu,
Öskju og Kia.
Ólafur Kristjánsson hefur um-
sjón með þessu verkefni og segir
sitt hlutverk að vera tengiliður við-
skiptavinanna út í hinar ýmsu
deildir fyrirtækisins; hvort sem það
er vélasvið, bílakaup, viðgerðir eða
önnur þjónusta.
Beint til okkar
„Fyrirtækin geta leitað beint til
okkar og við fylgjum málum síðan
eftir hér innanhúss. Þetta er nýtt
svið innan fyrirtækisins sem hefur
að mínu mati gefið mjög góða
raun. Þessi þjónusta hentar vel
bæði stórum og litlum fyr-
irtækjum. Þannig getum við boðið
fyrirtækjum heildarlausnir og veitt
þeim betri þjónustu. Hingað eru
nú þegar komin ný fyrirtæki í við-
skipti sem sjá og finna hagræðið af
því að hafa einn tengilið sem sér
um öll þeirra mál,“ segir Ólafur
Kristjánsson.
Hekla kynnir nýjustu atvinnubílana
Setja ný viðmið
➤ Nýi bíllinn er sparneytinn,þægilegur og lipur.
➤ Hekla hefur haft umboð fyrirCaterpillar frá 1947.
➤ Ný flotaþjónusta fyrir þá semeiga fleiri en þrjá atvinnubíla
frá Heklu.
ATVINNUBÍLAR
Volkswagen Caddy Maxi
er nýjasta nýtt frá Heklu.
Þeir eru kynntir ásamt
Caterpillar sem þjónað
hefur í öllum stórfram-
kvæmdum í áratugi.
Ný atvinnutæki „Fyrirtækin geta
leitað beint til okkar,“ segir Ólafur
Kristjánsson, söluráðgjafi hjá fyr-
irtækja- og flotasölu Heklu.
Bergnes ehf. hefur meira en 20
ára reynslu af framleiðslu skilta og
merkinga. Verktakar ýmiss konar
skipa einn stærsta hóp við-
skiptavina fyrirtækisins og hefur
verið lögð æ meiri áhersla á að
víkka vöruúrval fyrirtækisins með
tilliti til þeirra þarfa.
Harmonikuhlið ný framleiðsla
Á sýningunni munu verða til
sýnis helstu vörur fyrirtækisins á
sviði vega- og byggingarfram-
kvæmda, s.s. umferðarmerki og
-keilur, öryggismerkingar og
-borðar, blikkljós, hraðahindranir
og stórt harmonikuhlið með end-
urskini sem er ný framleiðsla fyr-
irtækisins. Gunnar Árni Gunn-
arsson hjá Bergnesi segir þessar
vörur mikið keyptar af verktökum
og sveitarfélögum yfir sumartím-
ann og mikil áhersla sé lögð á að
veita þessum aðilum hraða þjón-
ustu og vandaðar vörur.
Víðara vöruúrval með tilliti til þarfa verktaka
Áratuga reynsla af fram-
leiðslu skilta og merkinga
BSI á Íslandi er skrifstofa British
Standards Institution á Íslandi. En
BSI er leiðandi aðili í sérfræðiþjón-
ustu til stofnana og fyrirtækja um
allan heim. Aðilar frá BSI á Íslandi
munu kynna þjónustu fyrirtæk-
isins á sýningunni, en í henni felast
m.a. úttektir á stjórnkerfum, óháð
vottun á stjórnkerfum og vörum,
þróun á stöðlum fyrir stofnanir og
stjórnvöld og prófanir á vörum og
framleiðslu. Einnig eru haldin
námskeið hjá fyrirtækinu í helstu
stjórnkerfisstöðlum og verklagi við
notkun gæðakerfa.
Rótgróið fyrirtæki
„BSI er stærsti vottunaraðili
heims með 60.000 viðskiptavini og
þjónustar flest stærstu fyrirtæki
heimsins á sviði gæðamála. Félagið
er rótgróið en það var stofnað árið
1901. Við getum þjónustað bygg-
ingariðnaðinn frá a til ö hvað varð-
ar úttektir, vottun og CE-
merkingar og munum kynna þessa
þjónustu á sýningunni með kynn-
ingarefni frá Bretlandi,“ segir Árni
Kristinsson hjá BSI. Mjög brýnt er
að framleiðendur og innflytjendur
gæti að því hvort vörur sem þeir
framleiða eða flytja inn heyri undir
tilskipanir Evrópusambandsins. Ef
sú er raunin verður að fylgja
ákvæðum þeirra og sýna fram á
samræmi við kröfurnar með CE-
merkingu. Þegar varan hefur verið
CE-merkt er heimilt að markaðs-
setja hana án hindrana á öllu Evr-
ópska efnahagssvæðinu.
Faggilding í skoðun leikvalla
BSI á Íslandi sér einnig um að-
alskoðanir leikvalla og leiksvæða,
en það hlaut fyrst fyrirtækja á
þessu sviði faggildingu til slíks frá
Neytendastofu árið 2005. Hefur
fyrirtækið nú framkvæmt yfir 1000
aðalskoðanir á leiksvæðum.
maria@24stundir.is
Rótgróið fyrirtæki á sviði gæðamála
Getur þjónustað bygging-
ariðnaðinn frá a til ö