24 stundir - 16.04.2008, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir
Engin
sætuefni
25% minni sykur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
12
68
03
.2
0
0
8
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Ég tel að meiri fjármagnstekjustofn sé
að byggjast upp hjá þeim sem eru
núna á milli fimmtugs og sjötugs en er hjá
þeim sem eru núna yfir sjötugu.
Eftir Elías Jón Guðjósson
elias@24stundir.is
Hlutur fjármagnstekna í meðal-
tekjum eldra fólks hefur aukist úr
því að vera 8 prósent árið 1995 í
39 prósent árið 2006. Þetta kemur
fram í nýju vefriti fjármálaráðu-
neytisins.
„Í gegnum eflingu verðbréfa-
markaðar hefur fólki gefist kostur
á því að eignast verðbréf. Síðan
voru skattaívilnanir í tengslum við
hlutabréfakaup sem höfðu sín
áhrif,“ segir Sigurður Guðmunds-
son, sérfræðingur hjá fjármála-
ráðuneytinu, aðspurður um skýr-
ingu á þessari breytingu.
Skattaívilnanir hvati
„Skattaafsláttur hefur tvímæla-
laust haft mikið að segja um þessa
aukningu. Við sjáum nú að dregið
hefur úr fjölda þeirra sem eiga
hlutabréf eftir að hætt var með
hann,“ segir Sigurður. „Ráðstöf-
unartekjur hafa líka aukist þannig
að fólk hefur meira fé til þess að
fjárfesta,“ bætir hann við. Sigurð-
ur segir fjármagnstekjur fara mjög
eftir aldri. „Ungt fólk er með mjög
litlar fjármagnstekjur og svo
aukast þær eftir aldri.“
Dregur saman
Í vefritinu kemur einnig fram
að munur á meðaltekjum hjóna
yfir sjötugu og allra hjóna hefur
minnkað frá aldamótum. Árið
1995 voru hjón yfir sjötugu með
30 prósentum lægri tekjur en öll
hjón. Þessi munur var 41 prósent
árið 2000 en fór svo í 37,7 prósent
árið 2006.
„Meðalfjármagnstekjur hjóna
yfir sjötugu eru hærri en hjá öll-
um hjónum. Fjármagnstekjur hafa
hækkað mjög mikið þannig að ég
tel að það skýri að miklu leyti að
þessi munur á meðaltekjunum
hefur minnkað,“ segir Sigurður.
Hann segir erfitt að spá til
skamms tíma hvort þessi munur
muni minnka. „Til lengri tíma þá
tel ég að þetta bil muni minnka.
Það er vegna þess að ég tel að
meiri fjármagnstekjustofn sé að
byggjast upp hjá þeim sem eru
núna á milli fimmtugs og sjötugs
en er hjá þeim sem eru núna yfir
sjötugu,“ segir hann og bætir við:
„Til lengri tíma þá býst ég við að
þessi þáttur muni vaxa enn meira
og leiða til þess að tekjur þeirra
sem eru 70 ára og eldri muni nálg-
ast tekjur þeirra sem yngri eru.“
Betri lífeyrisréttindi
Sigurður bendir á að fjár-
magnstekjum sé misjafnar skipt á
milli manna en öðrum tekjum.
„Sumir bera því minna úr být-
um,“ segir hann en bætir við að
lífeyrisréttindi fari sífellt batnandi
og muni auka tekjur fólks í fram-
tíðinni. „Sú kynslóð sem nú er að
verða gömul er allt öðruvísi en sú
sem kom á undan. Almenn lífeyr-
isréttindi eru betri, sérstaklega eru
réttindi kvenna betri af því að þær
eru á vinnumarkaðinum en mæð-
ur þeirra voru það ekki,“ segir Sig-
urður.
Fjármagnið
yljar í ellinni
Fjármagnstekjur eru sífellt hærra hlutfall meðaltekna eldra fólks
SKIPTING HEILDARTEKNA
Hlutfallsleg skipting heildartekna hjóna 70 ára og eldri eftir uppruna
1995 2000 2005 2006
8%
26%
21%
45%
21%
30%
31%
18%
34%
24%
30%
12%
39%
23%
29%
9%
Fjármagnstekjur Tryggingastofnun Lífeyrissjóðir Aðrar tekjur
Heimild: Ríkisskattstjóri
➤ Fjármagnstekjur skiptast íþrjá flokka: Söluhagnað,
vexti og arðgreiðslur.
➤ Söluhagnaður vegur þyngst,um það bil helming. Hinir
tveir þættirnir vega síðan um
það bil fjórðung hvor.
➤ 10 prósenta skattur er inn-heimtur af fjármagnstekjum.
FJÁRMAGNSTEKJUR
MARKAÐURINN Í GÆR
! "##$
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
'
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
,
>??4@?4A
?>A4?444@
BCCB4DA?>
CCD@4?>@@3
53DDDC@A
C4?45@5B
>C@4B3ADA
3555A54@5
C@A3BDD
C??D@D@35
3AC>D@355
4A4>C
?3?43CC
,
3344DDDD
D
55CA3D
,
,
BC@?>>?
34DB3B
,
CCAD44C4
,
,
3D>C5DDD
,
,
@E3>
?CE45
BBE4C
4E44
B@EDD
C3EBD
C?ED5
>C3EDD
CAE45
ADEBD
5E35
BCE3?
?E3A
ABEDD
BE34
4E4@
CC@E5D
B3A5EDD
344EDD
DE@C
B?CEDD
,
,
@EDD
,
,
5D@DEDD
,
,
@E??
?3EDD
BBE@D
4E@B
B@ED5
C3E?D
C?ECD
>C5EDD
CAE>D
ADECD
5E3A
BCE3>
?E??
ABECD
BE3>
4E@D
C4BEDD
B?DDEDD
3@5EDD
DE@3
B?5EDD
BE>5
CBEAD
>E?D
,
,
5B?DEDD
BCEDD
4EDD
/
- ,
B5
45
?4
AD
B3
3
@A
35
3
@D
C@
C
?
,
?
,
C
,
,
@
?
,
B
,
,
C
,
,
F#
-#-
B??CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B5?CDD>
B??CDD>
B5?CDD>
B??CDD>
B5?CDD>
B??CDD>
@?CDD>
B5?CDD>
BD3CDD>
B>CCDD>
B??CDD>
4BCCDD@
CC>CDD@
B5?CDD>
C?CDD>
@3CDD>
● Mest viðskipti í Kauphöll OMX
í gær voru með bréf Glitnis, fyrir
um 2,2 milljarða króna.
● Mesta hækkunin var á bréfum
Atlantic Petroleum, eða 0,36%.
Bréf Straums-Burðaráss hækk-
uðu um 0,16%.
● Mesta lækkunin var á bréfum
Eimskipafélagsins, eða 4,12%. Bréf
FL Group lækkuðu um 2,20% og
bréf SPRON um 1,82%.
● Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,22% í gær og stóð í 5.182 stig-
um í lok dags.
● Íslenska krónan styrktist um
0,30% í gær.
● Samnorræna OMX40-
vísitalan hækkaði um 0,19% í
gær. Breska FTSE-vísitalan hækk-
aði um 1,3% og þýska DAX-
vísitalan um 0,5%.
Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir
að raunverð fasteigna lækki um
15% til loka árs 2010, skv. nýrri
þjóðhagsspá. Er það ekki nema
helmingur þeirrar lækkunar sem
Seðlabanki Íslands spáir á sama
tímabili.
Ráðuneytið spáir því að þjóð-
arútgjöld dragist saman um 2,3%
árið 2008, þrátt fyrir að bygging
álvers í Helguvík hefjist. Ekki er gert ráð fyrir öðrum stóiðjufram-
kvæmdum í þjóðhagsspánni, en verði aðrar stóriðjuframkvæmdir sem
rætt hefur verið um að veruleika mun það auka umsvif í efnahagslífinu
umtalsvert sem geti reynt á þanþol þess.
Þá er gert ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali 8,3% í ár, en verð-
bólga var 5% árið 2007 skv. þjóðhagsspánni. Ennfremur er reiknað
með að atvinnuleysi, sem var að meðaltali 1% á síðasta ári, aukist tals-
vert; verði 1,9% í ár, 3,8% árið 2009 og 3,5% árið 2010. hos
Atvinnuleysi og verðbólga
„Eftir mikla neyslugleði und-
anfarin misseri virðast lakari
efnahagshorfur, óvissa á fjár-
málamörkuðum og aukin svart-
sýni neytenda hafa hvatt heimilin
til aukins aðhalds í marsmánuði
ef marka má tölur yfir greiðslu-
kortaveltu,“ segir í frétt frá grein-
ingardeild Glitnis.
Einkaneysla fer að mestu leyti
fram með greiðslukortum, og því
gefur notkun þeirra ágætis vís-
bendingar um neyslu, segir þar.
Samkvæmt tölum Seðlabankans
var greiðslukortavelta í mars-
mánuði 55 milljarðar króna. Í
mars var raunvöxtur kortanotk-
unar 1% á milli ára og hefur skv.
greiningardeild Glitnis ekki verið
hægari undanfarið ár. T.d. hafi
raunvöxtur kortanotkunar verið
4% á fyrsta fjórðungi ársins. hos
Íslendingar sýna
loks aðhald
Norska fjárfestingarfélagið Oti-
um hefur keypt 11 skrif-
stofubyggingar í Svíþjóð af ís-
lenska fjárfestingarfélaginu
Landic Property fyrir 902,4 millj-
ónir sænskra króna, jafnvirði
nærri 11,4 milljarða íslenskra
króna. Fram kemur á fréttavefn-
um nenyheter.no að Otium hafi á
síðasta ári keypt fasteignir sem
Landic átti í Noregi. mbl.is
Norðmenn
kaupa af Landic
Baugur Group hefur sett bresku tískuvörukeðjuna MK One í sölu,
samkvæmt frétt á vef breska dagblaðsins The Times. Í tilkynningu frá
Baugi frá því í síðustu viku kom fram að MK One væri meðal þeirra
eigna félagsins sem yrðu áfram í eigu félagsins.
Rekstur MK One hefur gengið brösuglega en á síðasta ári nam tap
keðjunnar 17,4 milljónum punda. Hefur orðrómur verið uppi um
framtíð keðjunnar í fjármálalífi Lundúnaborgar að undanförnu, sam-
kvæmt The Times.
Baugur keypti MK One í nóvember 2004 á 55 milljónir punda. Keðjan
hefur átt í harðri samkeppni að undanförnu við verslanir eins og Pri-
mark, Peacocks og stórar verslunarkeðjur í Bretlandi. Á síðasta rekstr-
arári sem lauk þann 27. janúar sl. námu sölutekjur MK One 118 millj-
ónum punda samanborið við 169 milljónir punda árið á undan. mbl.is
Selur Baugur tískuvörukeðju?
Lýður Guðmundsson, stjórn-
arformaður Exista, var á aðal-
fundi finnska tryggingafélagsins
Sampo kjörinn í stjórn félagsins.
Exista er stærsti hluthafinn í
Sampo með 20% hlut en hefur
ekki áður átt fulltrúa í stjórn. hos
Í stjórn Sampo