24 stundir


24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 16

24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Tvö íslensk dansverk verða sýnd á Dublin Dance Festival á Írlandi dagana 25. til 27. apríl næstkom- andi. Það eru verkin Crazy in love with MR. PERFECT eftir Steinunni Ketilsdóttur og Hundaheppni eftir þær Lovísu Ósk Gunnarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur. Bæði verkin fengu boð á hátíðina í kjölfar þess að listrænn stjórnandi hátíðarinnar í Dublin, Laurie Uprichard, sótti Reykjavík Dance Festival heim en þar voru verkin frumsýnd. Verk Steinunnar fjallar um ung- an mann og unga konu sem bæði eru í leit að hinum fullkomna manni. Þau ræða saman um hvað einkennir hinn fullkomna mann og hvað ástin getur brenglað manns- hugann. Það eru Steinunn sjálf og bandaríski dansarinn Brian Gerke sem fara með hlutverkin tvö. Þau kynntust þegar þau stunduðu bæði listdansnám í Hunter College í New York, og það var einmitt þar sem hugmyndin að verkinu kviknaði. „Ef til vill muna margir eftir því þegar kvenkyns geimfari í Banda- ríkjunum brunaði þvert yfir landið með það fyrir augum að vinna hjá- konu mannsins sem hún elskaði mein. Áður en hún lagði af stað setti hún á sig bleiu til þess að þurfa ekki að stoppa á leiðinni. Í kjölfarið las ég greinar um sálfræðirann- sóknir á ástföngnu fólki og komst að því að fólk, sem alla jafna hegðar sér á mjög rökréttan hátt, getur tek- ið upp á ótrúlegustu hlutum þegar það er ástfangið,“ segir Steinunn. Síðar í sköpunarferlinu, þegar þau voru bæði að vinna í New York, rákust þau á par sem hafði mikil áhrif á sköpun verksins. „Þau sátu nokkrum sætum fyrir framan okk- ur í lest. Maðurinn leit út fyrir að vera samkynhneigður og konan virtist í raun vera karlmaður og við fylgdumst með þeim og fórum mikið að spá í hvernig sambandi þeirra væri háttað og hvað hefði dregið þau saman,“ segir Brian. Dansinn afgangslist Verkið hefur áður verið sýnt í Reykjavík, New York, Árósum og London og stendur nú yfir undir- búningur fyrir hátíðina í Dublin. „Það er okkur mikill heiður að fá að taka þátt í þessari stóru danshátíð og alltaf spennandi að sýna í Evr- ópu, enda nýtur danslistin tölu- verðrar virðingar þar,“ segir Brian, og Steinunn bætir því við að hvor- ugt þeirra eigi því að venjast í sínum heimalöndum. „Dansinn virðist því miður vera hálfgerð afgangslist ef svo má segja þegar kemur að því að veita styrki til listsköpunar hér á landi. En þó svo að við eigum langt í land þá hefur verið mikil framþró- un í danslistinni hérlendis undan- farið,“ segir hún. „Fjöldi sjálfstæðra danshöfunda og dansara hefur skapað sér nafn hér sem erlendis, ásamt því sem möguleikum hefur fjölgað með tilkomu dansbrautar innan Listaháskólans og hins árlega Reykjavík Dance Festival.“ Íslensk dansverk á leið á Dublin Dance Festival Í leit að ástinni Steinunn Ketilsdóttir og Brian Gerke sýna annað af tveimur íslenskum dansverkum sem verða sýnd á Dublin Dance Festival í lok apríl. Verkið fjallar um leitina að hin- um fullkomna manni og hvernig ástin getur leitt til óútreiknanlegrar hegðunar. Leit að herra Full- komnum Brian og Stein- unn á æfingu. ➤ Steinunn er með BSc-próf íviðskiptafræði frá HR og BA- próf í listdansi frá Hunter Col- lege í New York. Hún er fag- stjóri nútímadeildar List- danskóla Íslands. ➤ Brian er frá Montana en starf-ar hér sem dansari og dans- kennari. STEINUNN OG BRIAN Hún er kósí og kvenleg stemn- ingin í Hafnarfjarðarleikhúsinu, þegar ljósklæddar leikkonur ota að manni hnausþykkum, skær- bleikum hosum til að klæðast meðan á sýningu stendur. Mjúkir koddar eru í hverju sæti og áhorfendur eru hvattir til þess að koma sér vel fyrir. Leikhópurinn kýs að fjalla um samskipti kvenna við bæði dætur sínar og mæður. Fyrst og fremst er horft til þess tíma meðan börnin eru smá og konan er enn að vinna úr því að vera gengin inn í móðurhlutverkið, sem hún þekkir aðallega frá sinni eigin móður. Þetta er frjótt umfjöll- unarefni og mesta furða að mað- ur hafi ekki oftar séð úrvinnslu á einmitt þessu efni. Verkið er kaótískt, ófyrirsjáan- legt og ruglingslegt, rétt eins og þau samskipti sem verið er að reyna að varpa ljósi á; hlýtt, fyndið og sársaukafullt. Hið lík- amlega er ofarlega á baugi og eðli málsins samkvæmt koma brjóst og píkur talsvert við sögu. En einhvern veginn fellur það að umfjöllunarefninu, það passar að hafa þetta dálítið blóðugt. Það er ágætlega við hæfi að tala um hluti sem almennt eru ekki færð- ir í orð þegar rætt er um mæðgnasambönd. Verkið lýsir stöðugri togstreitu sem er í allar áttir. Leikmyndin er fagurbleik og umgirt af álnalöngum nafla- streng sem verður margri sögu- persónunni fjötur um fót. Þetta kemur vel út og lýsingin vinnur vel með leikmyndinni. Tónlistin er skemmtileg og notuð á fjöl- breyttan máta – eina umkvört- unarefnið gæti verið að það hefði mátt vera meira af henni. Það er enginn einn höfundur verksins Mammamamma – það er unnið í samvinnu leikhópsins og lífsreynslusögur fjölda kvenna eru lagðar til grundvallar. Slík vinnuaðferð getur farið úrskeið- is, en þegar hún heppnast, þá fæðist eitthvað mjög kröftugt. Sú er raunin í Hafnarfjarðarleikhús- inu og Charlotte Bøving má vera stolt af áhöfn sinni. Leikkonurn- ar fjórar eru allar mjög öruggar í hlutverkum sínum og spila áreynslulaust á allan tilfinninga- skalann. Að sýningu lokinni heyrðist einhver stynja: „Þetta er nátt- úrlega svo sammannlegt - að þola ekki móður sína, á ég við!“ Launhelgar kvenna Leikstjóri: Charlotte Bøving Höfundur: Leikhópurinn Útlit: Ólöf Nordal og Þórunn María Jónsdóttir Tónlist: Ólöf Arnalds Lýsing: Garðar Borgþórsson Leikarar: Birgitta Birgis dóttir, Magnea B. Valdimarsdóttir, María Ellingsen og Þórey Sigþórs dóttir. Mammamamma Leikhópurinn Opið í Hafnarfjarðarleikhúsinu Eft ir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@24stundir.is LEIKLIST Í HNOTSKURN: Karnivalstemning eins og hún gerist best. Tvíburasysturnar Gunnhildur og Brynhildur Þórðardætur opna sýninguna Prjónaheim Lúka í Gallerí Boxi á Akureyri næsta laugardag, hinn 19. apríl. Systurn- ar skipa listadúóið Lúka Art & De- sign sem var stofnað haustið 2004. Þær hafa verið í samstarfi við Glófa á Akureyri þar sem þær hönnuðu mynstur fyrir íslensku ullina sem Glófi prjónaði. Hug- myndin að mynstrinu er unnin út frá lakkrískonfekti og lakkrísreim- um og eru þær nú búnar að setja upp innsetningu og hanna vörur úr efninu. Þær stefna á að fara með sýninguna til útlanda í haust eða næsta vor á vegum Útflutn- ingsráðs Íslands. Sýningin í Gallerí Boxi hefst klukkan 16 á laugardag- inn. Sýningaropnun í Gallerí Boxi á laugardag Prjónasystur Ferðaskrifstofa 49.785 kr. Tyrkland – Marmaris Verð frá: á mann m.v. 2 fullorna og 2 börn 8. júlí. Innifalið: Flug, gisting í 7 nætur á hótel Ec e og allir flugvallarskattar. Hefur þú ekki efni á Elton í afmælið í ár? Þú kemst samt í sólina með Plúsferðum Frá því að Nicolas Sarkozy var kjörinn forseti Frakklands fyrir tæpu ári hefur hann afar sjaldan minnst á gildi menningar- og lista- lífs í landinu. Helsta undantekn- ingin sem menn muna eftir er þeg- ar hann lýsti því yfir í febrúar að frönsk matargerðarlist ætti að komast á heimsminjaskrá Unesco. Fyrirrennari hans, Jacques Chirac, reisti stórt innflytjendalistasafn í París á sínum valdatíma og hefur það laðað að milljónir ferðamanna auk heimamanna. François Mitter- and lét gera miklar endurbætur á hinu virta Louvre-safni. En enn sem komið er virðist Sarkozy lítið annað hafa gert í menningarmál- um en að draga úr opinberum styrkjum til þeirra enda, að sögn menningarfrömuða, allt of upptek- inn af því að láta mynda sig op- inberlega ásamt spúsu sinni, Cörlu Bruni. Ofan á allt þetta er menn- ingarmálaráðherrann, Christine Albanel, jafnan talinn vera veikasti ráðherrann í ríkisstjórn Sarkozys. Ekki bætir úr skák að fjölmargir hneykslast á smekk Sarkozys. Þeir rifja upp að Mitterand var mikill aðdáandi Dostojevskís og De Gaulle hélt upp á Chateaubriand. Og Sarkó? Fáum sögum fer af bók- menntasmekk hans en hann ku hlusta mikið á Lionel Ritchie og Celine Dion. Þó svo að samflokks- menn hans komi honum til varnar og bendi á að hann sé þrátt fyrir allt mjög hæfur forseti viðurkenna þeir að hann sé sennilega sá franski for- seti í sögunni sem hefur lagt minnstan metnað í menningarmál. Stjórnmálaskýrendur eru sammála um að átak í menningarmálum gæti styrkt stöðu Sarkozys í augum almennings - og að hann þurfi á því að halda. Nicolas Sarkozy er umdeildur forseti Menning aukaatriði MENNING menning@24stundir.is a Í kjölfarið las ég greinar um sálfræðirannsóknir á ást- föngnu fólki og komst að því að fólk, sem alla jafna hegðar sér á mjög rökréttan hátt, getur tekið upp á ótrúleg- ustu hlutum þegar það er ástfangið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.