24 stundir - 16.04.2008, Síða 26

24 stundir - 16.04.2008, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@simnet.is „Einingahús njóta alltaf mikilla vinsælda, enda er sterk hefð fyrir þeim á íslenskum byggingamark- aði. Þetta eru hús sem bjóða upp á mikla möguleika og með bygg- inga- og teiknitækni nútímans eru möguleikar á útfærslum óend- anlegir,“ segir Óskar G. Jónsson, framkvæmdastjóri SG húsa á Sel- fossi, sem eru meðal fjölmargra þátttakenda á sýningunni Verk og vit. Starfsemi SG húsa byggist á gömlum merg. Það var árið 1966 sem Sigurður Guðmundsson, byggingameistari á Selfossi, fór að byggja hús úr einingaflekum sem fyrir löngu er orðin viðurkennd byggingaaðferð. Í dag eru húsin sem fyrirtækið hefur byggt farin að nálgast 1.600 og eru í hverri byggð landsins. Eitt hús á viku „Á Suðurlandi er sterk hefð fyrir timburhúsum. Að vísu hefur bygg- ingarstíllinn breyst talsvert. Í seinni tíð hafa rutt sér til rúms við- haldsfrí klæðningarefni eins og múrsteinn, flísar, bárustál og steni, við getum boðið upp á viðhaldsfría glugga og útihurðir. Vindvörn og stífing timburhúsanna hefur gjör- breyst í gegnum árin, nú er not- aður krossviður í stað vindpappa eða tex eins og var algengt fyrr á árum. segir Óskar sem þykja timb- urhús njóta vaxandi vinsælda í dag. Á síðasta ári byggðu SG hús alls 52 hús, það er eitt á viku; aðallega íbúðarhús, fjögur sumarhús og ýmis fjölnotahús, til dæmis leik- skóla í Borgarnesi. „Íbúðarhúsin eru gjarnan á bilinu 180 fermetrar og upp í að vera 200 til 300 fer- metra hús. Ferlið er gjarnan að fólk kemur hingað til okkar með upp- lýsingar um lóð og eins hugmyndir um herbergjaskipan og hvað húsið megi kosta. Þegar við höfum slíkar upplýsingar í höndunum og jafn- vel skissur að húsaskipan er fram- haldið fljótunnið,“ segir Óskar og bætir við að afgreiðslufrestur ein- ingahúsa sé ekki langur þó að slíkt ráðist vitaskuld af verkefnastöðu á hverju tíma. Kraftsperrur og þök Undanfarin ár hafa að jafnaði verið um 45 starfsmenn hjá S.G. og starfa þeir bæði á verkstæði og í vinnuflokkum sem reisa húsin á byggingarstað. Þá hefur fyrirtækið í auknum mæli tekið að sér að smíða kraftsperrur og þök á hús þar sem hver eining er fyrirfram söguð til og sniðin í tölvukeyrðum trésmíðavélum fyrirtækisins. Segir Óskar mikið hagræði felast í slíkri forsmíði sperranna, enda nýti æ fleiri sér þjónustu SG húsa á því sviði. „Við höfum verið afskaplega heppnir með mannskap, sumir hafa starfað hjá okkur í áraraðir og sú reynsla tryggir vönduð vinnu- brögð,“ segir Óskar sem er einn þriggja aðaleigenda fyrirtækisins með þeim Kára Helgasyni og Sig- urði Kjartanssyni. 24stundir/Sigurður Bogi Kunna að byggja „Hús sem bjóða upp á mikla möguleika, segir Óskar Sigurðsson, til vinstri, framkvæmdastjóri SG húsa. Með honum á mynd- inni er Kári Helgason, gæðastjóri fyrirtækisins. SG hús forsmíða sperrur og reisa eitt einingahús á viku Sterk hefð fyrir timburhúsum ➤ Fyrirtækið er orðið rótgróiðog byggir á gömlum merg. ➤ Timburhúsin hafa verið mjögvinsæl. ➤ Viðhaldsfrí klæðningarefnihafa rutt sér til rúms. ➤ Fyrirtækið afgreiðir eitt hús áviku. SG-HÚSSG hús á Selfossi eiga að baki meira en fjörutíu ára sögu. Hafa byggt 1.600 hús og starfsemin í dag er á góðri siglingu. „Frá klefanum berst hvorki lykt né reykur,“ segir Ágúst Gunn- arsson hjá Dan-inn en fyrirtækið selur reyklefa til sölu hér á landi. Eftir að hert lög um reykingar á vinnustöðum hafa tekið gildi gerist það æ oftar að starfsmenn standa á lóð fyrirtækisins og reykja með til- heyrandi sóðaskap og óþægindum fyrir starfsmenn. Reykingaklefarnir eru sænsk hönnun frá fyrirtæki sem sérhæfir sig í reykingalausnum. Algeng lausn í Evrópu „Í Evrópu eru um fimm þús- und svona klefar í fyrirtækjum,“ segir Ágúst og segir fyrirtæki sýna mikinn áhuga á þessari lausn. Þessir klefar veita þeim starfs- mönnum sem ekki reykja góða vernd gegn óbeinum reykingum, bætir hann við og segir af frekari kostum klefans: „Klefinn er vel loftræstur og því er loftið ekki þungt þar inni þrátt fyrir reyk- ingarnar.“ dista@24stundir.is Sænskir reykingaklefar reynast góð lausn Vernd gegn óbeinum reykingum Á eigin ábyrgð Í vel loft- ræstum klefa. „Markmið vinnuverndarstarfs er að öllum líði vel í vinnu og fari heilir heim,“ segir Arna Hansen hjá Heilsuverndarstöðinni. Heilsuverndarstöðin varð til með samruna Medica og Inpro og er staðsett í sögufrægu húsi við Barónsstíg. „Hér er starfrækt sérstök vinnu- vernd,“ segir Arna. „Vinnuvernd Heilsuverndarstöðvarinnar stuðlar að auknu heilbrigði starfsfólks, gæðum og öryggi á vinnustað. Við vinnum í samstarfi við fyr- irtæki, komum á skipulögðu innra vinnuverndarstarfi, eflum þekk- ingu og komum að nýjum hugs- unarhætti hjá stjórnendum. Ger- um þeim grein fyrir ágóða þess að auka við vinnuvernd og vellíðan. Ágóðinn er oft færri truflanir í framleiðslu og rekstri og aukin vel- líðan í starfi sem leiðir til færri veikindadaga og betri framleiðni.“ Alhliða þjónusta Meðal verka okkar er aðstoð við gerð áætlunar um öryggis-, heilsu- og umhverfismál. Við gerum út- tektir á fyrirtækjum og greinum og metum þá áhættuþætti sem eru í vinnuumhverfinu. Þá komum við að eldvarnareftirliti, kennum skyndihjálp og gerum og inn- leiðum neyðar- og viðbragðsáætl- anir.“ Öryggismál á uppleið Aðspurð um ástand öryggismála íslenskra fyrirtækja segir Arna ör- yggisvitundina og menninguna hafa verið bágborna til langs tíma. Ástandið sé hins vegar að breytast til hins betra. „Umhverfið breyttist svolítið eftir að fyrirtækið Bechtel kom hingað fyrir um fimm árum. Þeir gerðu afar miklar örygg- iskröfur sem þeir vörpuðu til und- irverktaka sinna. Þá þurftu mörg íslensk fyrirtæki að taka til hjá sér. Öryggismál og vinnuvernd eru mál sem eru á uppleið en samt sem áð- ur er af nógu að taka,“ bætir Arna við. Heilsuvernd er líka öryggi Heilsuvernd starfsmanna er ekki síður mikilvæg að mati Örnu og segir hún Heilsuverndarstöðina veita fjölbreytta þjónustu á því sviði. „Við sinnum öllu því helsta er snertir heilsuvernd starfsmanna. Gerum ítarlegar heilsufarsskoð- anir, mælingar og ráðgjöf á vinnu- stöðum. Sinnum bólusetningum, til dæmis við inflúensu og gerum lyfjaprófanir þar sem þess er þörf. Heilsuvernd snýr líka að streitu og starfsumhverfi og verkefnum starfsmanna. Við vitum að ef heilsuvernd er öflug hefur það þau áhrif að það dregur úr fjarvistum frá vinnu vegna veikinda og sjúk- dóma vegna þess að andleg og lík- amleg heilsa er styrkt. Við ætlum að koma á sýninguna Verk og vit 2008 og kynna alla þá þekkingu og ágóða sem við höfum að bjóða íslenskum fyrirtækjum. Nú hafa verið sett lög um aðbún- að, hollustu og öryggi á vinnustöð- um sem fyrirtæki verða að fram- fylgja og því er nauðsynlegt öllum stjórnendum að kynna sér málin vel.“ dista@24stundir.is Öflugar forvarnir hjá Heilsuverndarstöð Heilir heim frá vinnu Stjórnendur fyrirtækja gera sér sífellt betur grein fyrir mikilvægi þess að hlúa vel að mannauði fyr- irtækisins. Enda er það svo að fjar- vera frá vinnu vegna álagstengdrar vanlíðunar hefur veruleg áhrif á framleiðni og fjárhag fyrirtækja og kostnaður samfélagsins vegna þessa er mikill. Á Heilsuverndarstöðinni er starfræktur svokallaður Streitu- skóli en hlutverk hans er að miðla upplýsingum um þekkingu og reynslu þeirra sem fást við streituvarnir og heilsuvernd og kenna fólki leiðir til að efla heil- brigði og sigrast á streitu. Í Streituskólanum er meðal ann- ars farið í kjölinn á streitu og nem- endum sýnt fram á að manneskjan er vel útbúin líffræðilega og sál- arlega til að takast á við streitu. Þekkingin sem aflað er á nám- skeiðinu veitir sjálfstraust til að takast á við aðstæður því auðveld- ara er að leggja til atlögu þegar bú- ið er að kortleggja vígvöllinn, en viðhorf, þekking og viðbrögð skipta miklu máli hvað varðar þol gegn streitu, ánægju í vinnu og vel- líðan. dista@24stundir.is Líkami og sál geta vel sigrast á streitu Streituskólinn

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.