24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 42

24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur valaosk@gmail.com „Um 300 starfsmenn Landspítala og Háskóla Íslands hafa undanfarin ár unnið í yfir 40 starfshópum að þarfagreiningu fyrir hið nýja sjúkra- hús,“ útskýrir Ingólfur Þórisson verkfræðingur, sem leiðir verkefnið. En hlutverk starfshópanna var að taka saman hvernig best sé að skipuleggja nýju starfsemina. Hönnunarsamkeppni í ár Svæðið sem um ræðir afmarkast gróflega af Snorrabraut, Eiríksgötu, Barónsstíg, Hringbraut að norð- anverðu og nýrri Hringbraut að sunnanverðu. Í samningum við Reykjavíkurborg segir að Umferð- armiðstöðin verði flutt í burtu og það svæði nýtt sem hluti af nýja sjúkrahússvæðinu. „Á þessu ári fer fram hönn- unarsamkeppni þar sem óskað verður eftir áhugasömum aðilum en úr þeim hópi verða valdir fimm aðilar sem síðan leggja til sínar til- lögur,“ útskýrir Ingólfur. „Þessir fimm aðilar taka þátt í hönn- unarkeppni en síðan mun dóm- nefnd velja einn þeirra til að hanna útlit sjúkrahússvæðisins.“ Fyrsta áfanga lýkur 2013 Gert er ráð fyrir að framkvæmdir þessa viðamikla verkefnis hefjist ár- ið 2010 og að þremur árum síðar, 2013, verði fyrsta áfanga lokið. Ef allt gengur eftir er gert ráð fyrir að rannsóknahús verði byggt í fyrsta áfanganum. Þegar Ingólfur er spurður um það hvenær fram- kvæmdunum ljúki segir hann erfitt að segja til um slíkt. „Þetta er í raun verkefni sem aldrei lýkur. Þetta er mjög lifandi og breytilegt umhverfi sem alltaf þarf að vera að bæta og breyta.“ Eldri byggingar nýttar áfram Fulltrúar nýs háskólasjúkrahúss koma til með að kynna verkefnið fyrir almenningi á Verk og vit- sýningunni og segir Ingólfur kynn- inguna eiga að gefa fólki nokkra til- finningu fyrir verkefninu og hvar það stendur í dag. Til sýnis verða líkön af nýjustu útfærslunum ásamt teikningum af einstökum þáttum eins og t.d. hvernig umhverfi nýja sjúkrahússins komi til með að líta út. Eins og fyrr segir verða nýbygg- ingar í kringum 120.000 fermetrar að stærð en auk þess verði reist 35.000 fermetra hús fyrir heilbrigð- isvísindadeildir Háskóla Íslands og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði sem nú er staðsett á Keldum. Þá segir Ingólfur að eldri byggingar á núverandi svæði verði nýttar áfram og að öll starfsemi spítalans í Fossvogi komi til með að flytja í nýja sjúkrahúsið. Framkvæmdir við nýtt háskólasjúkrahús hefjast árið 2010 Lifandi og breytilegt umhverfi verður til ➤ 120.000 fermetra háskóla-sjúkrahús rís í Vatnsmýrinni. ➤ Þarfagreiningu starfsmannaLandspítala og Háskóla Ís- lands er lokið. ➤ Samkeppni fer fram á þessuári um hönnun byggingar- svæðisins. ➤ Framkvæmdir hefjast 2010og stefnt er að því að klára fyrsta áfanga árið 2013. FRAMKVÆMDIR Síðastliðin þrjú ár hefur staðið yfir undirbúningur að byggingu nýs háskóla- sjúkrahúss í Vatnsmýr- inni. Nýi spítalinn kemur til með að vera 120.000 fermetrar að stærð og er búist við að fyrsta áfanga ljúki árið 2013. Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur iris@24stundir.is Fyrirtækið Visthús KLH býður upp á glænýjan möguleika þegar kemur að því að byggja heimili og fyrirtækjabyggingar. Hjá Vist- húsum KLH er byggt úr kross- límtrésplötum sem framleiddar eru af fyrirtækinu KLH í Aust- urríki. Efnið nýtur víðtækrar vott- unar. Það er vistvænt, veglegt, vandað og stenst vel samanburð við steinsteypt hús. Bylting í byggingum Að sögn Einars Vilhjálmssonar, framkvæmdastjóra Visthúsa KLH, er þetta ekkert minna en bylting í byggingariðnaðinum. „Visthús KLH selja sérsniðin burðarvirki sem henta í allar gerðir burð- arvirkja. Um þessar mundir er ver- ið að reisa átta hæða skrifstofu og íbúðarbyggingu úr kross- límtrésplötum í London. Við lítum fyrst og fremst á þetta sem valkost fyrir Íslendinga í bygging- arhugleiðingum en hingað til hef- ur steypan verið einráð á mark- aðnum,“ segir Einar. Meiri byggingarhraði Efnið er ekki aðeins gott í ný- byggingar heldur er það einnig mjög gott í endurnýjum og við- byggingar. „Byggingarhraðinn er mun meiri þegar unnið er með plöturnar heldur en ef um steypu- vinnu er að ræða. Þetta gerir það að verkum að umhverfisröskunin er í lágmarki. Þegar búið er að hanna húsnæðið og það er tilbúið til uppsetningar tekur vinnan sjálf ekki nema nokkra daga. Það eru þá ekki nema nokkrir dagar þar sem stórvirkar vinnuvélar ónáða ná- grannana. Þegar því er lokið fer öll vinnan fram innandyra og án frek- ari umhverfisáhrifa.“ Plöturnar eru 4 sinnum léttari en steypa og henta því sérstaklega vel þegar byggt er ofan á eldri mannvirki. „Efnið er það sterkasta sem við þekkjum miðað við eðl- isþyngd en það eina sem er sterk- ara er köngulóarvefurinn.“ Einstakt einangrunargildi „Plöturnar hafa einnig einstaka einangrunarhæfileika. Talað er um að þær hafi um 10 sinnum meira einangrunargildi en steypan. Þeir sem búa í steypuhúsum vita að ef þeir lofta vel út kólnar húsnæðið á skömmum tíma. Upphitunin tek- ur svo langan tíma með tilheyrandi kostnaði. Krosslímtrésplöturnar draga í sig hitann og varðveita hann. Þú getur því loftað alveg út og húsið mun halda hitastigi sínu eða ná því aftur á stuttum tíma.“ Vistvæn íþróttahús Visthús KLH bjóða upp á heild- arlausnir við byggingu á öllum gerðum húsnæðis. Á vefsíðu fyr- irtækisins www.visthus.is kemur fram að hægt er að byggja allt frá sumarhúsum til íþróttabygginga með krosslímtrésplötum. Visthús KLH geta afgreitt stórar pantanir á 6-8 vikum frá því að teikningar hafa verið staðfestar. Burðarvirkin eru svo tilbúin á öfáum dögum eftir að búið er að steypa undirstöðurnar. Visthús KLH byggja umhverfisvæn hús Reisa einbýlis- og fjöl- býlishús á örfáum dögum Dugnaður Vinnumennirnir eru snöggir að setja saman. Vistleg Húsin voru sett upp á örfáum dögum. Umhverfisvernd á ekki aðeins heima í bílafram- leiðslu og dósaflokkun. Nú getum við líka byggt umhverfisvænni hús sem eru bæði vönduð, sterk og spara fé í kyndingu. Húsin eru sett upp á örfá- um dögum en það eina sem þarf er lóð og sam- þykktar teikningar. Um- hverfisvernd hefst heima. Ingólfur Þórisson verkfræðingur leiðir verkefnið um nýtt háskólasjúkrahús. Nýtt sjúkrahús Byggingar á núverandi svæði verði nýttar áfram. Verk og vit Til sýnis verða líkön af nýjustu útfærsl- unum ásamt teikningum af einstökum þáttum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.