Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 7

Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 7
 Friðrik Magnússon á Látrum íyrir þá og aðstandendur þeirra í landi, sem og aðra er á horfðu, og svo segir Jóhann Bárðarson, er á þetta horfði, að þessari sjón muni hann aldrei gleyma. Hríð var á öðru hverju og huldist þá landiö fyrir þeim, er á bátnum voru, en báturinn þeim, er á horfðu. Einn af þeim, er starði út í sortann, var 8 ára drengur, sonur íormannsins á Mávinum. Hvernig haldið þið að honúrn hafi liðiö? En áður cn varði sást bátur koma af hafi og stefna að hinum sökkvarxdi báti, cn öllum hinum til hinnar mestu skelfingar, nam hann ekki staðar eða gerði hina minnstu tilraun til að bjarga, — ' held- tir sneri strax frá og hélt til ísa- fjarðar. Var þó þarna mjög fær stjórnari á ferð, og er óskiljanlegt, að formaöur sá skyldi ekki reyna björgun. — Jóhann Bárðar- son nefnir ekki formann þennan °g enginn vill á hann minnast við Húg. Jóhann reynir að afsaka mann inn með því, að of mikil áhætta hafi verið fyrir hann að nálgast bátinn, cn af því sem á eftir verð- nr sagt., held ég, að Jóhann geri ofmikið úr þessu athafnaleysi. Nærri má geta, hvernig skipsbrots- Mönnunum hafi liðið, þegar vonin úni björgun hvarf eins fljótt og hún birtisl. Nti var aðeins einn bátur ókominn að íandi, það var Uúfan. en formaður á henni var Bjárni Bárðarson. Og fyrr en varði hom Dúfan í ljós og nálgaðist óð- fluga hið sökkvandi skip. Bjarni hufði þegar komið auga á Mávinn, en hann kom þarna aðens til að at- huga möguleika á lendingu. Bjarni sá þegar að ólendandi var, en hann kallaði þegar háseta sína á dekk og skipaði þeim að binda seglið á þá hlið Dúfunnar, sem hann ætl- aði að leggja að Mávinum, því að annað kom ekki til greina. Véla- maður hans spurði Bjarna, hvort hann ætlaði a'ð leggja að bátnum í þessu veðri? „Já,” svaraði Bjarni. „Heldurðu að það sé hægt í þessu veðri?” spurði vélamaðurinn. „íxáttu mig um það, passa þú vél- ina. ég skal passa stýrið!” Svo rcnndi hann skipi sínu að hinu sökkvandi skipi og tókst að ná fimm mönnum í fyrstu atrennu. Síðan rétti hann Dúfuna af fyrir sjóunum og iagði að bátsflakinu á nýjan leik og tókst að ná þeim sem eftir voru, formanninum og öðrum til. Var þá á sortabylur og sáu, þeir, cr í landi voru, ekki, hvort þeir tveir, sem eftir voru fyrst, liöfðu bjargazt en er élið birti, sáu þeir Dúfuna á fullri ferð út Vikina á leið til ísafjarðar. Strax og Dúfan var landföst á ísafirði, var símað til Bolungar- víkur og létti þá mörgum. um hjartaræturnar, ekki síst aðstand- endum þeirra, er á Mávinum voru. Svona var Bjarni. Þegar á reyndi, var hann allra manna djarfastur og öruggastur, fljótur að taka á- kvarðanir og framkvæma þær á réttan hátt. Lengi var þetta djarf- lega björgunarafrek Bjarna og liá- seta hans í minnum haft, og löngu síðar eða 1939 gengust mætir menn fyrir því, að Bjarna væri sómi sýndur fyrir þetta frábæra afrek og heiðraði Alþingi hann með peningagjöf og sýndi þannig æðsta stofnuu landsins, að Bjarni var hetja og göfugmenni, sem bar að laka tillit til. Skal hér að lokum getið þeirra manna cr á Mávinum voru, er hann fórst. Formaður var Bárður Jónsson af Hólsætt eins og Bjarni. Var hann talinn einn efnilegasti ungra manna í Bolungavík á sinni tíð, lengi bóndi og hreppsnefndar- maður í Hólshreppi, d. 1954. Átti níu börn, en hversu mörg aí þeim hafa horft á föður sinn á flakinu af Mávinum veit ég ekki. .Annar var Magnús Tyríingsson bóndi og útgerðannaður á Hóli. Var hann Bárður Jónsson \ lengi formaður og aflaði vel, d. 1921, 57 ára. Þriðji var Magnús sonur Magnúsar Tyrfingssonar þá 16 ára. Hann lézt ungur. Fjórði Bergur Kristjánsson hreppsstjóri og útgerðarmaður, og einn af þeim er Jóhann Bárðarson telur liafa haft einna mesta hæfileika sem háseti fyrir handflýti og lipurð við öll sjóverk. Fimmti Sigurður Vagn Magnússon frá Tungugröf í Steingrímsfirði f. 1870 d. 1939. Sjötti líklega Kristján Júlíusson, kvæntur maður i Bolungavík en aðkominn. Um þann sjöunda er mér ókunnugt, ef þeir hafa þá nokkurntíma verið fleiri en sex, en J óhann Bárðarson tclur, að þeir hafi verið sjö. 29. okt. 1914 var fjöldi báta á sjó við Djúp. Hvessti þá af suð- austri með ofsa miklum. Rauk þá sær allur sem lausamjöll, segir Finnbogi Bernódusson, og sá ekki til fjalla fyrir særoki. Þá íórst einn bátur frá Bolungavik, Vigri. Einn báturinn varð olíulaus í bar- áttunni við veðrið og rak ósjálf- bjarga. Fjöldi báta fór fram hjá lionum, en enginn vcitti honum aðstoð. þar til þar bar að Bjrana Bárðarson á Dúfunni, en hún gekk allra báta bezt. Bjarni var mað- urinn sem aldrei brást. Hann fór aldrei fram hjá bjarglausu skipi. Hann lagði sem næst hinum véla- vana bát og fleygði niðurstöðu- hönk yfir í bátinn, en linýtti svo olíubrúsa í hinn endann með 35 lítrum af olíu og beið svo þar til báturinn hafði náð olíunni og kom- ið vélinni af stað og fylgdi svo ALÞVÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ 247 »

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.