Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 12

Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 12
PASKAUPPREISNIN DYFLINNI 1916 ívrir ÞÁ ATBURÐI, sem uröu á annan dag póska 1916, höíðu fáir Dyflinnarbúar veitt litlu tó- baksbúðinni í húsi nr. 44 A við Parnellstræti sér- staka eftirtekt. Þetta var svo lítil og óhrjáleg og svo venjuleg búðarhola, að það var hægt að sjá hana hundrað sinnum án þess að taka eftir henni. Fremra herbergið var tæpast nógu stórt til að rúma það litla magn af sígarettum, vindlum, dagblöðum op tímaritum, sem var á boðstólum og bakherberg- ið. sem sást, þegar fortjaldi var ýtt til hliðar, var jafn fátæklegt og ömurlegt. Eigandi búðarinnar, Tom Clarke, var eins yfir- Jætislaus og verziunin. Hann var grannvaxinn mað- ur með grátt hár og þreytulegt grátt andlit, ljós- b!á augu hans voru mild og óáreitin bak við gull- spangargleraugu. En Clarke var samt leiðtogi leynilegrar byltingarhreyfingar, sem stefndi að því að kollvarpa yfirráðum Breta á írlandi og stofna sjálfstætt írskt lýðveldi. Hógværð hans bar vott um þolinmæði hans, og grátt litaraft hans var fang- elsisfölvi, því að hann hafði setið í brezkum fang- clsum um fimmtán ára skeið, eftir að hann var dæmdur í Old Bailey í London í júní 1883 fyrir þáttlöku í sprengjusamsæri írskra þjóðernissinna. l'etta hafði gert hann að píslarvotti í augum sam- landa hans, að þjóðhetju í líkingu við Wolfe Tone og Iíobert Emmett og Daniel O’Connell. Þegar hann var látinn laus úr fangelsinu árið 1898, höfðu bál vcrið kveikt á ströndinni og mikill mannfjöldi safn- rðist saman með blys til að bjóða hann velkominn heim. Innan skamms virtust þó flestir úr þeim mann- fiölda hafa gleymt eldmóði sínum; menn sneru sér að hinu daglega brauðstriti, fluttust til Ameríku eða treystu því, að írska þingflokknum tækist að fá heimastjórn fyi'ir írland á friðsamlegan hátt með málflutningi í neðri deild brezka þingsins. Þegar Toni Clarke var látinn laus, leit svo illa út fyrir byltingarmálstaðinn, að hann var að því kominn að flytjast úr landi. Mikið hafði gerzt á írlandi, meðan hann sat í fangelsinu, og þegar hann kom aftur á vettvang, líkaði honum ekki allt, sem hann sá. í fyrsta skipti í sjö aldir virtist allt benda til þess, að unnt yrði að leysa deilur Englendinga og íra í bróðerni. Þó nokkur bjartsýni lá í loftinu, — að minnsta kosti í þingsölunum í London. Ýmsir menn beggja vegna írlandshafs voru farnir að spá því, að sagan með Skotland endurtæki sig á ír- landi, að írar gleymdu þeim misgjörðum, sem þeir höfðu orðið fyrir, og hinum fornu konungum, en lærðu í stað þess að lifa með stóra bróður í vin- áttu og án allrar undirgefni. Þrátt fyrir blysförina var irsk þjóðernisstefna veik, þegar Clarke kom aftur til Dyflinnar, kannski veikari en nokkru sinni fyrr. Þjóðernissinnar gátu ekki einu sinni komið sér saman. Þeim mátti í aðal- alriðum skipta í tvo flokka: þá, sem gerðu sig á- nægða með friðsamlegar þingræðislegar endurbæt- ur, — og þessi flokkur var langtum fjölmennari — og hina, sem trúðu því, að við England væri ekki hægt að tala nema með vopnum. Þótt þeir væru orðnir fremur fáir, sem héldu fast við þessa síðari skcðun, hafði hófsemdarmönnum aflazt hægt fylgi- Frá 1870 til 1890 hafði verið hungursneyð á írlandi, smábændur höfðu verið hraktir af jörðum sínum og ströng þvingunarlög voru i gildi, sem leyfðu yfir- völdunum að taka menn fasta og hneppa i fangelsi án undangenginnar dómsrannsóknar. Þcssa tvo áratugi var írland ,,mikið hörmunga- land,” sem líktist lítið því landi dýrlinga og fræði- manna, sem skáldin ortu um. Á áratugnum 1870—1880 felldi brezka þingið 2C frumvörp, sem stefndu að því að bæta ástandið á írlandi, og frá 1870 til 1886 voru 129 708 leiguliða- fcændur hraktír af jörðum sínum. Þetta fólk var miskunnarlaust rekið burtu, og þar sem annars var ekki völ, ílýði það þúsundum saman á hverju ári til Ameríku eða Ástralíu. Oftast hafði það ekki annað með sér en fötin, sem það stóð í, og djúpstæða béiskju. En um aldamótin sáust þess ýmis merki, að end- urbætur væru i nánd. Jarðarafgjöld voru lækkuð, leiguliðum var tryggt jarðnæði og kosningalögunum var breytt, svo að fjöldi þeirra íra, sem höfðu kosn- ingarétt, þrefaldaðist. Þýðingarmest var þó kannski, að samvizka frjálslyndra manna í Englandi var farin að rumska, — og þegar það gerðist, gat engin kúgun verið örugg. Þegar þessir hreinskilnu, alvarlegu og 252 UUNNUDAGSE„AÐ _ ALÞÝDUBLAÐIÐ

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.