Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 18

Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Blaðsíða 18
vart Bretum, en þegar hann fór að hvetja íra opirr- berlega til að ganga í brezka herinn, klofnaði sjálf- boðaliðahreyfingin. Af þeim 180 þúsund sjálfboða- liðum, sem þá höfðu gefið sig fram, skáru um 168 þúsund Redmondsmenn sig úr og tóku upp nafnið þjóðvarnarlið. Flestir þeirra gengu síðan í herinn og voru sendir til meginlandsins. Aðeins um tólf þúsund mcnn, hinn upphaflegi harði Jcjarni þjóð- ernissinna, héldu áfram tryggð við MacNeill. Sem t-'riki í þágu I.R.B. styrktist sjálfboðaliðasveitin raun- veruiega við klofninginn. Hins vegar hafa hlutföll- in milli fylkinganna speglað nokkuð öruggiega skoð- anir íra almennt. !>. september 1914 kom æðsta ráð Bræðralagsins saman til leynilegs fundar i Dyflinni. Þeir, sem að- eins hefðu séð Tom Clarke við afgreiðsluborðið í tóbaksbúðinni í Parnellstræti, hcfðu varla þekkt hann fyrir sama mann, hefðu þeir heyrt hann á- V’arpa ráðið. Hann talaði af hita og mælsku, er var að því skapi magnaðri sem henni var sjaldnar beitt. I'ann sagði, að erfiðleikar Englands gæfu írlandi tækifæri. Þetta nýja stríð mætti ekki líða svo, að vopnuð uppreisn yrði ekki gerð á írlandi, eins og orðið hafði i Búastríðinu. Og jafnvel þótt upp- reisnin mistækist, — en það var Clarke engan veginn viss um, þá bæri kynslóð þeirra að lithella bióði sínu í þágu írelsis Trlands. Þótt hann segði það ekki, fólst í orðum hans ótti við, að án slíkra fórna kynni írland að fallast á stöðu sína innan brezka ríkisins. Clarkc kom vilja sínum fram. Bræðralagið ákvað formlcga að gera uppreisn, áður en styrjöldin væri liti. Sérstakt herráð var myndað, sem í áttu sæti þcir Clarke, Padraic Pearse, Sean MacDermott og Joseph Plunkett, og MacDermott hófst þegar handa við að skipuleggja hcrnaðaraðgerðir samkvæmt heildarlínu, scm Clarke ákvað. Þá var fulltrúi frá í R.B. scndur til Bandaríkjanna til að útvega fé í samráði við Clan na Gael. Um þessar mundir bauð Sir Rogcr Casement bræðralaginu þjónustu sína. Sir Roger var mótmæl- andi frá Úlster, kynlegur maður, dökkur á brún og brá. Hann hafði yfir sér eitthvað óraunverulegt, eins og hann væri stokkinn út úr miðaldaævintýr- um og hefði ekki aðlagazt þeim nýja heimi, sem hann var staddur í. Bræðralagið vildi ekkert hafa með hann að gera, cn hcrráðið taldi þó ekki fært að hafna liðvcizlu hans, þar eð hann naut alþjóð- legrar frægðar. Von bráðar hélt Casement til Ncw Vork til fundar við leiðtoga Can na Gaél. Viðstaða hans í Bandarikjunum varð þó stutt, og 29. októbcr hélt hann til Norcgs og þaðan áfram til Þýzkalands. P.rindi hans þangað var að mynda herdeild írskra síriðsfanga, afla vopna til uppreisnarinnar og reyna að fá þýzku stjórnina til að lýsa því yfir, að sjálf- siæði írlands væri mcðal styrjaldartakmarka Þýzkalands. Þegar átökin á vesturvígstöðvunum voru stöðnuð í leðju skotgrafanna fór áhuginn á herþjónustu dvinatidi bæði í Englandi og írlandi. írar höfðu alltaf vcrið fúsir til að ganga í heri erlendis, en 253 aúNNUDAUsn;./.Ð _ alþýðublaðiþ aldrei höfðu þeir streymt eins margir fyrr til jafn hættulegra vígstöðva. Um það bil 250 þúsund gengu í brezka hcrinn, en Suður-írarnir fengu þó ekki að hafa samlenda foringja né eigin skjaldarmerki. Slíkt fengu sjálfboðaliðar Carsons hins vegar. Þetta olli talsverðri óánægju, og þegar yfirvofandi var, að herskylda yrði tekin upp, magnaðist þjóðernisstefna 'íra. Þegar ríkisstjórn Asquiths lét af völdum og við tók samsteypustjórn með Carson sem dómsmála- ráðherra og átta sameiningarmönnum í ráðherra- cmbættum, fór fylgið að hryn.ja af Redmond, Allt sumarið 1915 efldist Sinn Fein, flokkur þjóðcrnis- sinna, á kostnað þingflokksins. Mcð þetta í huga hvatti Tom Clarke til að hafizt yrði handa, en MacNeill, foringi sjálfboðaliðasveit- anna kærði sig ekki um að vaða þannig út í opinn dauðann. Bretar fyrir sitt leyti rcyndu fyrir allan mun að íorðast uppreisn í irlandi meðan styrjöldin stæði, og þegar Connoll.v og Markievicz greifafrú gerðu aðsúg að Dyflinnarkastala í október 1915, fóru yfirvöldin að ráðum Redmonds og héldu að sér iiöndum. En Clarke hélt áfram að hvetja til að- gerða, og nú fékk hann óvæntan stuðning frá James Connolly og Borgarahernum. ConnoIIy Iýsti því yfir, að hann myndi gangast sjálfur fyrir uppreisn, cf aðrir gerðu það ekki mjög fljótlega. Engum, sem þeíckti Connolly, gat blandazt hugur um, að hann meinti það, sem hann sagði. I.R.B. tók Connolly því fastan og hélt honum föngnum frá 19. til 22. janúar 1916, en þá var hann látinn laus vegna hót- ana Markicvicz greifafrúr og Borgarahersins. Conn- ollv hafði varið þeim tíma, er hann var í haldi, til viðræðna við fangaverði sína með svo góðum ár- angri, að eftir þetta hafði Bræðralagið hann með í ráðum, þótt hann fengizt aldrei til að ganga í I.R.B. Seinl í janúar 1916 lét æðsta ráðið undan cggj- mim þeirra Clarkes og Connollys og ákvað upp- reisnina. Dagurinn sem ákveðinn var, páskadagur, sýnir þá dulhyggju, sem gegnsýrði hreyfinguna. Á hinni miklu upprisuhátíð átti írland cinnig að rísa upp. Meðan þessu fór fram, sat Sir Roger Casement i I'ýzkalandi og hafði ekki erindi.sem erfiði. Hvorki Clan na Gael né I.R.B. höfðu sýnt honum fullan trúnað: aðeins 52 stríðsfangar höfðu gengið í her- sveit hans; og herstjórn Þjóðverja neitaði að taka í mál að senda hcr lil írlands. Herforingjaráðið vildi lofa því einu, að reynt yrði að koma vopnum (il írlands og áhlaup yrðu gerð á vesturvígstöðv- imum um páskana. Við þennan samning stóðu Þjóð- verjar samvizkusamlega. 9. apríl lét gamall togari, Auður, úr höfn í Lýbekku undir norskum fána, og í lcstum skipsins voru 20 þúsund riíflar faldir. Auður átti að skila þessum farmi á ákveðnum stað á ír- landsströnd einhvern daginn frá 20. til 23. apríl, og var þá gert ráð fyrir. að írskir sjálfboðaliðar jrðu til staðar og tækju við vopnunum. Bæði foringjar Clan na Gael (sem voru öruggh' handan hafsins) og herráð Bræðralagsins virðast haia gert sig ánægða með samkomulagið við Þjóð-

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.