24 stundir - 16.07.2008, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 24stundir
Ekkert hefur gerst í niðurrifi
toppstöðvarinnar í Elliðaárdal þrátt
fyrir fyrirheit þar um. Landsvirkjun
afhenti Reykjavíkurborg toppstöð-
ina ásamt þremur lóðum í Elliðaár-
dal til eignar í febrúar síðastliðnum
með því skilyrði að borgin sæi um
niðurrif stöðvarinnar. Björn Ingi
Hrafnsson, fyrrum formaður borg-
arráðs, sagði þegar samkomulag
tókst um tilfærslu eignanna í ágúst
2007 að byrja ætti á niðurrifi stöðv-
arinnar á næstu vikum. Ekkert ból-
ar hins vegar á þeim framkvæmd-
um.
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri á
framkvæmda- og eignasviði, segir
að útboðsgögn vegna niðurrifsins
séu tilbúin. „Þetta er talsvert mál og
við viljum ekki fara í þetta á meðan
á laxveiðitímabilinu stendur. Því
höfum við ekki farið af stað með
þetta verk.“
Umtalsvert verk verður að rífa
stöðina þar sem hún er klædd með
asbesti sem að verður að rífa með
mikilli varúð vegna mengunar-
hættu. Mikill kostnaður mun því
hljótast af niðurrifi stöðvarinnar.
„Það er nú kannski ekki gott að gefa
það upp nákvæmlega en það er ljóst
að það mun kosta tugi milljóna,“
segir Hrólfur.
Ekki er búið að taka ákvörðun
um hvenær verkið verður boðið út.
Að sögn Hrólfs er enn umræða um
að taka húsið til einhverra nota.
„Það er samt ekkert fast í hendi með
það. En ég reikna frekar með stöðin
verði rifin. Tíminn sem við höfum
til niðurrifsins eru desember til
febrúar og því á ég frekar von á að
þetta gerist í haust.“ freyr@24stundir.is
Landsvirkjun afhenti Reykjavíkurborg toppstöðina í Elliðaárdal til niðurrifs en ennþá bólar ekkert á framkvæmdum
Enn stendur toppstöðin og bíður örlaga sinna
➤ Toppstöðin var tekin í notkun1948 og var notuð fram á ní-
unda áratuginn til að anna
eftirspurn á álagstoppum.
➤ Staðið hefur til að rífa hanaum alllangt skeið, að minnsta
kosti í áratug.
TOPPSTÖÐIN
Seig Lengi hefur staðið
til að rífa toppstöðina en
hún stendur enn
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Hluthafar í SPRON eru samkvæmt
heimildum 24 stunda margir
hverjir óánægðir með það verð sem
þeir fá fyrir bréf sín, verði samruni
SPRON og Kaupþings banka að
veruleika.
„Ég held að það sé almenn
óánægja með þetta verð,“ segir
Gunnar Þór Gíslason, hlutahafi og
fyrrverandi stjórnarmaður í
SPRON. Þá þyki ekki góður kostur
að fá greitt að 60% hluta með bréf-
um í Exista. „En svo er spurning
hvort óánægjan sé nægilega mikil
til að hluthafar hafni samrunan-
um.“ Samruninn er háður sam-
þykki hluthafundar sem halda á í
ágúst.
Vilja markaðsvirði í vor
Samkvæmt samrunaáætlun, sem
stjórnir SPRON og Kaupþings hafa
samþykkt, verða greiddar sem
nemur 3,83 krónum fyrir hvern
hlut í SPRON, sem er markaðsvirði
30. júní 2008 að viðbættu 15%
álagi.
Hluthafi sem 24 stundir ræddi
segist óánægður með að ekki hafi
verið miðað við markaðsvirði bréf-
anna áður en upplýst var um sam-
runaviðræðurnar sem sagt var frá í
lok apríl. Síðan hefur gengi bréfa í
SPRON lækkað úr 5 í 3,1.
Hluthafarnir frá greitt að 60%
hluta með bréfum í Exista og að
40% hluta með bréfum í Kaup-
þingi.
Rögnvald Othar Erlingsson, sem
sagði sig úr varastjórn SPRON í
síðustu viku, segir ástæðuna fyrst
og fremst þá að hann sé ósáttur við
verðið sem hluthafar fá verði af
samrunanum.
„Það er í mínum huga óviðun-
andi að fá greitt að 60% hluta í Ex-
istabréfum,“ segir Rögnvald.
Hann bendir á hversu mikið þau
hafi lækkað í verði að undanförnu,
sem hafi komið illa við hluthafa í
SPRON þar sem sparisjóðurinn á
stóran hlut í Exista.
Ef horft er þrjá mánuði aftur í
tímann hefur gengi bréfa í Exista
lækkað úr um 12 í 6,25 eftir 5,3%
lækkun félagsins í gær.
Eins og einn ósáttur hluthafi í
SPRON sem 24 stundir ræddu við
benti á, er Guðmundur Hauksson,
forstjóri SPRON, einnig stjórnar-
maður í Exista og Erlendur Hjalta-
son, stjórnarformaður SPRON,
einnig forstjóri Exista.
Hrein heilindi í viðræðunum
„Auðvitað er enginn hluthafi í
dag í fyrirtæki ánægður með það
verð sem bréfin ganga á, enda ljóst
að hlutabréfamarkaðir hafa lækkað
mjög mikið,“ segir Guðmundur
Hauksson, um óánægju hluthafa.
Hann segir ekki óeðlilegt að bréf
í Exista séu boðin til hluthafa í ljósi
þess að þau eru stór þáttur í fjárfe-
stignum SPRON. Margir hafi
væntingar um að þau muni hækka.
Varðandi tengsl Guðmundar við
Exista segir hann menn verða að
hafa í huga að ástæða þess að hann
stitji í stjórn Exista sé að SPRON er
hluthafi í félaginu. „Það hefur verið
hluverk mitt að gæta þessara hags-
muna. En persónulega eru mínir
hagsmunir nær alfarið tengdir
hlutabréfaverði í SPRON, sem ætti
að sýna að það eru hrein heilindi af
minni hálfu í þessum viðræðum.“
Ekki náðist í Erlend Hjaltason.
Hafna hluthafar
samrunanum?
Hluthafi í SPRON segir óánægju ríkja með verðið sem fæst fyrir bréfin verði af samrun-
anum við Kaupþing Hluthöfum þyki ekki góður kostur að fá greitt með bréfum í Exista
Ósáttir Hluthafi segir að nær
hefði verið að miða við verð-
mætið áður en sagt var frá
samrunaviðræðum.
➤ Samkvæmt samrunasamningiverða greiddar 3,83 krónur
fyrir hvern hlut í SPRON.
➤ 60% andvirðisins verðurgreitt með bréfum í Exista og
40% með bréfum í Kaup-
þingi.
SAMNINGURINN
Hækkandi bensínverð, verð-
hækkanir á bílum og launahækk-
anir framhaldsskólakennara, sem
ökukennarar miða sig við, valda
því að bílprófið er nú dýrara en
það var í fyrra. Telja ökukennarar,
sem 24 stundir ræddu við, líklegt
að til meiri hækkana komi í haust.
Verðlagning ökukennara er
frjáls og getur munað tugum pró-
senta á verði milli kennara. Lægst
fer tímagjaldið í um 6000 krónur
en hæst í 8000 krónur, samkvæmt
óformlegri könnun blaðamanns.
Algengast er að verðið sé á bilinu
6000-7000 krónur, eða um þúsund
krónum hærra en það var í fyrra.
Bóklegi hluti námsins hefur
einnig hækkað í verði en ekki feng-
ust upplýsingar um hve mikið. Þar
sem hver ökunemi þarf að greiða
fyrir að minnsta kosti sextán verk-
legar kennslustundir í akstri, bók-
legt nám, þátttöku í verklegt og
bóklegt próf sem og skírteini, er
vart hægt að taka bílpróf fyrir lægri
upphæð en 130 þúsund krónur.
thorakristin@24stundir.is
Bensínhækkanir, verð nýrra bíla og laun kennara hækka bílprófið
Bílprófið dýrara en í fyrra
Ökutíminn Kostar
allt að átta þúsund
krónur.
24stundir/Golli
Hressing
í bolla frá
Knorr
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744
Hvað ætlar
þú að gera
í dag?