24 stundir - 16.07.2008, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 24stundir
TB
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\S
ÍA
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Hjálparsamtök óttast að þeir afr-
ísku flóttamenn, sem reyna að
koma sér sjóleiðis til Evrópu með
ólöglegum hætti og drukkna, verði
fleiri í sumar en nokkru sinni fyrr.
Flóttamennirnir leggja á sig
hættulega ferð á illa búnum smá-
bátum í von um að komast óséðir
upp að ströndum Spánar þar sem
þeir hyggja á nýtt og betra líf.
Mikil fjölgun
Mannréttindasamtök segja
mikla fjölgun hafa orðið meðal
þeirra sem reyna að komast ólög-
lega frá Norður-Afríku til Suður-
Evrópu. Fjölgunin er sérstaklega
mikil meðal fólks frá stríðshrjáðum
löndum sunnan Sahara, svo sem
Sómalíu og Erítreu.
Spænsk yfirvöld hafa það sem af
er ári fundið 51 lík landflótta Afr-
íkumanna, en vitað er að raunveru-
legur fjöldi er margfalt meiri. Rauði
krossinn áætlar að á hverju ári
drukkni milli tvö og þrjú þúsund
þeirra sem leggja í slíka ferð.
Stöðugt segja spænskir fjöl-
miðlar nýjar harmsögur af lifandi
og látnum flóttamönnum sem
finnast undan ströndum Spánar.
Yfirvöld telja að einungis einn af
hverjum þremur bátum nái til
Spánar, þar sem yfirvöld finna
langflesta þeirra.
Leita til Almería
Breska blaðið Observer segir yf-
irvöld á Spáni telja höfnina í borg-
inni Almería á suðausturströnd
Spánar vera þann áfangastað sem
ólöglegu flóttamennirnir reyna
helst að komast til. Þá hefur fjöldi
þeirra sem reyna að komast til
ítölsku eyjarinnar Lampedusa tvö-
faldast það sem af er ári, en eyjan er
einungis 110 kílómetra frá Túnis.
Leggja mikið á sig
Fyrr í vikunni bárust fréttir af
báti sem hafi sést til undan strönd-
um Almería með 33 lifandi mann-
eskjur innanborðs. Fólkið var
máttvana eftir ferðina en báturinn
varð fljótlega vélarvana eftir að hafa
lagt úr höfn frá borginni Alhucema
í Marokkó viku áður. Á leiðinni lét-
ust 15 farþeganna úr hungri og
þorsta, þar af níu börn undir fjög-
urra ára aldri. Rotnandi líkum
þeirra hafði verið varpað fyrir borð.
Lögregla segir flóttamenn greiða
möngurum jafnvirði allt að 150
þúsund krónur til að komast að
ströndum Marokkó, þar sem þeim
er komið fyrir í illa búnum bátum.
Hert eftirlit
Spánverjar hertu eftirlit við
strendur landsins verulega árið
2005. Hjálparsamtök segja að í
kjölfarið hafi mangararnir látið
sigla bátunum lengri og hættulegri
leið í þeirri von að komast óséðir
og óhultir á leiðarenda.
Þrátt fyrir mikinn fréttaflutning
og viðvaranir dregur ekkert úr
fólksstraumnum og ljóst er að afr-
ísku flóttamennirnir eru reiðubún-
ir að leggja mikið á sig til að komast
til álfunnar í norðri.
Þúsundir farast
í leit að betra lífi
Árlega drukkna þúsundir Afríkumanna er þeir reyna að komast
til Evrópu Leggja mikið á sig til að reyna að hefja nýtt líf
➤ Milli 2.000 og 3.000 mannsdrukkna árlega er þeir reyna
að komast yfir til Evrópu.
➤ Flóttamennirnir greiðamöngurum allt að 150 þús-
und krónur til að komast að
strönd Marokkó þar sem
þeim er komið fyrir í bátum.
➤ Illa búnum bátunum er svostefnt að suðurströnd Spánar
og Ítalíu en einnig til Kan-
aríeyja.
FLÓTTINN TIL EVRÓPU
NordicPhotos/AFP
Á heimleið Spænsk yf-
irvöld hafa hert eftirlit við
strendur landsins.
Barack Obama, forsetaframbjóð-
andi demókrata, segir Bandaríkja-
stjórn nú einblína um of á ástand-
ið í Írak og gefi því öðrum ógnum
sem steðja að Bandaríkjunum
ekki nægilega mikinn gaum.
Obama flutti ræðu í gær þar sem
hann tíundaði áherslur sínar í ut-
anríkismálum. Hann sagði að ör-
yggi og efnahagur Bandaríkja-
manna bæri skaða af
Íraksstríðinu. Hann er nú á leið í ferð um Mið-Austurlönd og mun
meðal annars fara til Íraks og Afganistans.
Obama lýsti hvernig hann hygðist kalla bandaríska hermenn í Írak
heim, yrði hann kjörinn forseti. Slíkt myndi svo opna á þann kost að
senda nauðsynlegan liðsauka til Afganistan. aí
Obama skýtur á Bush
Þrír ísbirnir, birna og tveir ís-
bjarnarhúnar, voru drepnir á
vesturströnd Grænlands á sunnu-
daginn, eftir að þeir réðust til at-
lögu gegn hópi fólks sem hafðist
við í tjaldbúðum nærri bænum
Maniitsoq.
„Einhver hrópaði: „Ísbjörn, ís-
björn“,“ og þá voru þeir þegar
mjög nærri,“ segir veiðimaðurinn
Vittus Poulsen, sem neyddist til
að skjóta birnina þrjá. Poulsen
var að veiðum með konu sinni og
syni er birnirnir birtust.
Ísbirnir eru almennt friðaðir á
Grænlandi, en heimastjórnin út-
hlutar litlum kvóta til takmark-
aðra veiða á ári hverju. aí
Ísbirnir drepnir
á Grænlandi
Evrópusambandið hyggst fá
símafyrirtæki til að lækka kostn-
að neytenda við að senda sms
innan ríkja
sambands-
ins. Talið er
að Viviane
Reding, sem
fer með fjar-
skiptamál
innan fram-
kvæmda-
stjórnar
ESB, muni í
september kynna frumvarp, sem
felur í sér að álíka dýrt verði að
senda sms í heimalandinu og í
öðrum ríkjum ESB.
Mörg símafyrirtæki hafa útilokað
að lækka verð fyrir sms-send-
ingar og netnotkun í farsíma er-
lendis. Fullyrða þau að ekki sé
verið að svindla á neytendum og
að verð fari sífellt lækkandi vegna
mikillar samkeppni á fjar-
skiptamarkaði. aí
Ódýrara SMS
innan ESB
STUTT
● Sprengjuárás 35 manns hið
minnsta létust og rúmlega 50
særðust í sprengjuárás sem var
gerð í herskráningarstöð í
Diyala-héraði í Írak í gær.
● Slys Rúmlega 30 slösuðust
þegar leiktækið Rainbow
hrundi í skemmtigarðinum
Liseberg í Gautaborg í gær.
● Þjóðfáni Stjórnvöld í Írak
vilja láta hanna nýjan þjóðfána
og af því tilefni hafa yfirvöld
boðað til hönnunarsamkeppni.
● Flugferðir Írska lággjalda-
flugfélagið Ryanair hefur til-
kynnt að til standi að fækka
ferðum flugfélagsins til og frá
Dyflinnar-flugvelli um 12 pró-
sent frá næsta vetri. Einnig
verður skorið niður í flugi til
og frá Stansted-velli.
Vísindamenn hafa komist að því
að hlýnun jarðar geti haft geigvæn-
leg áhrif á tilvist refs í kringum
norðurskautið. Fylgdust líffræð-
ingar við Alaska-háskóla með
hreyfingum 14 ungra refa vetur-
langt. Reyndust aðeins þrír þeirra
lifa veturinn af – þeir sem héldu út
á ísinn til að leita sér fæðis. Þeir 11
sem héldu sig í landi sultu.
Þykir þetta benda til þess að við-
urværi heimskautarefs sé nátengt
möguleikum þeirra til að verja
vetrarmánuðunum á ísbreiðum,
þar sem auðveldara er að nálgast
æti.
„Eftir því sem torveldara verður
að komast út á hafís er mögulegt að
refir þurfi að standa erfiðari vetur
af sér á landi, sem gæti leitt til þess
að færri einstaklingar lifi af,“ segir
Nathan Pamperin, sem stjórnaði
rannsókninni. atlii@24stundir.is
Hafís hopar vegna hlýnunar
Tilvera heimskauta-
refs í tvísýnu