24 stundir - 16.07.2008, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Flestöll börn sem ég þekki vilja
einungis hrátt grænmeti og þegar
ég býð börnum stórum og smáum
upp á skrældar og skornar rófur
eru þær fljótar að borðast,“ segir
Helga.
„Fyrir okkur hin börnin fylgja
hérna góðar rófuuppskriftir.“
Heilsusafi
Skrælið (ef nauðsyn krefur) 2
rófur, skerið niður í passlega bita
fyrir safavélina, takið 2 stk. kívíá-
vöxt ásamt ferskum engifer (má
sleppa) og einni peru. Frábærlega
góður safi.
Gamla góða rófusalatið
(Með smá tilfæringum)
Ég er hér búin að breyta gömlu
útgáfunni af rúsínurófusalatinu.
2 stórar rófur skrældar og
skornar í bita og settar í mat-
vinnsluvél með grófu rifjárni. Bæta
við einni lúku af smátt skornum
döðlum og hálfu búnti af smátt
saxaðri steinselju. Skreyta með
einu boxi af bláberjum.
Dressing samanstendur af smá
appelsínusafa, 1 msk. ólífuolíu og
einni msk. af agavesírópi sem fæst í
heilsuvöruverslunum. Smávegis af
grófu salti. Þeyta vel saman og setja
yfir rófurnar. Gott með fiskréttum
og grilluðu kjöti.
Rófusúpa úr sveitinni
(Með erlendum áhrifum)
4 meðalstórar rófur
4 msk. ólífuolía
1 laukur
2 tsk. broddkúmen
2 tsk. túrmerik
1 msk. sítrónusafi
salt og nýmalaður svartur pipar
eftir smekk.
góður biti af ferskum engifer,
smátt saxaður og látinn sjóða
með rófunum.
rófur og laukur saxaður smátt.
Grænmetið léttsteikt í olíu og
kryddinu þar til það er orðið
meyrt. Þá er vatninu bætt út í og
látið sjóða í 20 mínútur. Þá er
komið að töfrasprotanum að
mauka súpuna. Bragðbæta með sí-
trónusafa, salti og pipar. Súpan er
best frekar þykk. Síðan má breyta
henni að vild, t.d. með því að
minnka vatnsmagnið en nota þess
í stað kókosmjólk. Látið malla við
vægan hita í 5 mín. eftir að hafa
verið bragðbætt. Ferskar smátt sax-
aðar jurtir og vorlaukurinn eru
settar fyrir rétt áður en súpan er
borin fram og varla þarf að nefna
það að nýbakað brauð er það eina
sem þarf með réttinum.
Ofnbakaður réttur
Sumarlegur með rófum og epl-
um.
3 stórar rófur, skrældar, skornar
þversum og síðan í ½ cm þykk-
ar sneiðar.
3 græn epli sama aðferð og með
rófurnar.
2 laukar, sama aðferð.
smá olía ásamt sítrónusafa,
eplasafa og rifnum engifer.
½ tsk. kanill og gróft salt
½ msk. tamari-sósa (sojasósa)
Þegar búið er að skera grænmet-
ið og eplin er því raðað í eldfast
mót og smá olíu og salti stráð yfir.
Bakað í ofni í 30-40 mín. Blanda
saman olíu, eplasafa, tamari-sósu,
kanil og salti og strá yfir þegar rétt-
urinn er tilbúinn til að bera hann
fram og skreyta með söxuðum
kóríander.
Rófu-fennelgratín
6 hvítlauksgeirar heilir og í hýði
2 msk. ólífuolía
1 krukka af tómatsósu
2 stk. fennel, skorið þversum í
½ cm þykkar sneiðar.
2 stórar rófur, skrældar, klofnar
í tvennt og síðan í grófar sneið-
ar.
smá salt og grófur pipar ásamt 1
tsk. tímian og 1 tsk. fennel-fræ.
½ krukka af steinlausum ólíf-
um.
Þessi réttur er góður með gor-
gonzola-osti eða parmesan-osti.
Smyrjið eldfasta mótið að innan
með olíu, grænmetinu raðað í
ásamt hvítlauksgeirunum, ólífu-
olíu dreift yfir ásamt tómatsósu,
kryddum og ólífum. Sett inn í heit-
an ofninn og bakað í 30-40 mín-
útur (200 gráður). Grænmetið á að
vera lungamjúkt og baðað í ólífu-
olíu og sósu. Gott með grænu sal-
ati, fiski og fuglakjöti.
Föst í sama fari? Prófið að matreiða rófur á óhefðbundinn máta
Skemmtilegar
rófuuppskriftir
„Eins og með flest annað
grænmeti er hægt að
sleppa sér lausum með
hugmyndir um hvernig
best sé að nota rófur í
matargerð,“ segir Helga
Mogensen sem gefur les-
endum hér óvenjulegar
og skemmtilegar upp-
skriftir að rófuréttum.
Gamla góða rófusal-
atið Með smá tilfær-
ingum.
Rófu-fennel gratín
Ljúffengt og litríkt.
Svalandi rófudrykkur Bragðast vel,
fullur af vítamínum.
Sumarleg súpa Með er-
lendum áhrifum.
Ofnbakað og gott rófur og epli.
Matur
Umsjónarmenn:
Svanhvít
Ljósbjörg
svanhvit@24stundir.is
Kristjana
Guðbrandsdóttir
dista@24stundir.is
María
Ólafsdóttir
maria@24stundir.is
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood
Frönsk stemming
– frábær matur
SÆLKERAUPPSKRIFTIR
FRÁ ÖLLUM HÉRUÐUM
FRAKKLANDS
Gullfalleg og eiguleg bók
með 135 uppskriftum að
hamingjunni á franska vísu.
Nýtt og ferskt hráefni,
franskur matur og frönsk
vín sem krydda hamingju-
leit okkar og stækka
sjóndeildarhringinn.
Bon appétit!
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8