24 stundir


24 stundir - 24.07.2008, Qupperneq 4

24 stundir - 24.07.2008, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 24stundir Eftir Ásu Baldursdóttur asab@24stundir.is „Það ætti að niðurgreiða meðferð einstaklinganna, t.d. eyðingu lík- amshára og raddmeðferð sem oft á tíðum er mjög kostnaðarsöm,“ segir Óttar Guðmundsson, geð- læknir á Landspítalanum. Að auki telur hann að endurskoða ætti lög um nöfn og nafnabreytingar. Hann tekur fram að talað sé um leiðréttandi aðgerð en ekki kyn- skiptaaðgerð. „Orðið transgender er alþjóðlegt orð og á við um ein- staklinga sem eru á milli kynja, eða þriðja kynið,“ segir hann og bætir við að mismunandi sé hvernig fólk skilgreini sig. „Það er algjörlega hætt að tala um kynskiptinga eða kynskiptaaðgerðir,“ segir hann. Borga allt úr eigin vasa „Skeggrótareyðing kostar yfir milljón og brjóstaaðgerð um tvö hundruð þúsund,“ segir Anna K. Kristjánsdóttir vélfræðingur og nefnir að transsexual fólk þurfi að borga allt nema aðgerðina sjálfa úr eigin vasa. „Ríkisvaldið fer með fjárveitingarvaldið og því væri um pólitíska fjárveitingu að ræða,“ segir hún. „Undirbúningsferillinn sjálfur getur orðið mjög langur, allt frá fimm árum upp í áratug þess vegna,“ segir hún. Anna tekur fram að hún greini ákveðna hugarfars- breytingu varðandi málefni trans- gender fólks á Íslandi. Ekkert íslenskt orð til „Transgender er regnhlífarorð sem nær líka yfir fólk sem ekki fer í aðgerðina,“ segir Anna og bætir við að orðið transsexual sé notað yfir þá sem leiðrétta kyn sitt með aðgerð. „Því miður hafa engar hugmyndir komið fram um íslenskt orð sem hægt væri að sætta sig við,“ segir Anna og bætir við að leitað hafi ver- ið að orði í lengri tíma. „Þeir sem fara í leiðréttandi að- gerð eru sannfærðir um að vera í röngu kynhluverki,“ segir Óttar og bætir við að hamingja einstakling- anna sé að húfi. „Allar rannsóknir benda til þess að þessar aðgerðir auki lífsgæði þessara einstaklinga til mikilla muna en miklu skiptir að sjálfsögðu að greiningin sé rétt.“ Langur aðdragandi Fyrsta ár undirbúnings lifir við- komandi algjörlega í því kynhlut- verki sem hann kýs að lifa í og breytir um nafn. Síðan hefst hormónameðferð sem stendur í eitt ár og þá fyrst er hægt að fara í aðgerð,“ segir Óttar. „Flestir kom- ast fljótt á lífsleiðinni að raun um að þeir hafi fæðst inn í vitlausan líkama,“ segir hann. Umræðan um transgender fólk hefur opnast og er orðin mun jákvæðari en áður var,“ segir Óttar. Meðferð ætti að niðurgreiða Geðlæknir telur að niðurgreiða ætti alla þætti meðferðar fólksins ➤ Undirbúningur meðferð-arinnar tekur a.m.k. tvö ár eða lengur en ferlið allt getur tekið langan tíma. ➤ Þrír einstaklingar hafa geng-ist undir aðgerð hérlendis. ➤ Um 20-30 manns eru í félag-inu Trans Ísland en aðstand- endur eru inni í þeirri tölu. LEIÐRÉTTINGAR Á KYNI Óttar Telur niðurgreiðslu vera mannréttindamál. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Stefnt verður að því að fljúga með farþega beint frá Ísafjarð- arflugvelli til Grænlands í næsta mánuði. „Við getum einnig tekið far- þega frá Reykjavík, en ferðin verður ekki eingöngu við- skiptalegs eðlis, heldur einnig skemmtiferð,“ segir Steinþór Bragason hjá Alsýn á Ísafirði. „Vandamálið er að á flugvell- inum á Ísafirði er engin vopnaleit,“ segir hann. áb Viðskipta- og kynnisferð Flogið til Grænlands Iceland Express tekur tvær Being 737-700-flugvélar í notkun næstkom- andi september og hættir um leið að nota MD90-vélarnar, sem flug- félagið hefur notað til þessa. Tvær aðrar Boeing-vélar verða svo teknar í notkun næsta sumar. Samningur þessa efnis var undirritaður í gær. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir efnahagsástandið eina meginástæðuna fyrir skiptunum. Boeing-vélarnar eyði allt að 40 prósent minna af eldsneyti á flugtíma en þær sem nú eru í notkun og sparnaðurinn sem fylgi skiptunum nemi hundruðum milljóna. Einnig verði viðhald og þjálfun áhafna einfaldari þar sem allar vélar flug- félagsins verði nú frá Boeing. þkþ Iceland Express fær nýjar vélar Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Kannað var verð á ódýrustu tegund af svefnpokum fyrir fullorðna. Ekki er tekið tillit til gæða eða teg- undar og getur verið mikill gæðamunur þarna á milli. Stærðarmunur getur verið á milli svefnpoka. Misjafnt er líka eftir tegundum hvaða hitastig svefn- pokarnir þola. Vert er að taka fram að könnunin er ekki tæmandi. Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum. Ingibjörg Magnúsdóttir 337% munur á svefnpokum NEYTENDAVAKTIN Svefnpokar fyrir fullorðna – ódýrasta tegund Verslun / Tegund Verð Verðmunur Rúmfatalagerinn / Oslo 1.290 Hagkaup / Tyrfan 1.990 54 % Byko / Sleeping bag 1.990 54 % Europris / Aspen sport 2.290 78 % Húsasmiðjan / L.A. Trakking 3.599 179 % Ellingsen / Colman Tasman * 5.633 337 % * Rétt verð 8.048 – verð m/30% afsl. Unnið er að því að setja á fót vöruþróunarhótel á Höfn í Horna- firði. Verkefnið er á vegum Matís og stefnt er að því að smáframleið- endur í matvælageiranum geti nýtt sér aðstöðuna til að þróa vörufram- leiðslu án þess að þurfa að leggja í gríðarlegan stofnkostnað. Stefnt er að því að hefja starfsemi í lok ágúst. Vöruþróun hefur setið eftir Guðmundur Heiðar Gunnars- son, deildarstjóri hjá Matís á Höfn, segir að hugmyndin sé að erlendri fyrirmynd. „Það sem stendur smá- framleiðslu í matvælageiranum helst fyrir þrifum er mikill stofn- kostnaður í vöruþróun og aðstöðu- leysi. Ef fólk hefur góðar hugmynd- ir getur það komið til okkar og leigt sér aðstöðu til að prufukeyra vör- una. Þá er hægt að þreifa á mark- aðnum og ef vel gengur er hægt að fara út í stofnfjárfestinguna. Ef markaðssetningin eða vöruþróunin gengur ekki upp hefur lítið tapast.“ Guðmundur segir að vöruþróun hjá smáframleiðendum hafi staðið veikum fótum fram til þessa. „Mestallir peningar sem fara í ný- sköpun á Íslandi hafa endað í rann- sóknum á meðan vöruþróun hefur setið eftir. Það vantar stuðning við að koma framleiðslu af stað.“ Nú þegar eru nokkur verkefni komin á koppinn og að sögn Guð- mundar eru þau flest tengd suð- austurhorni landsins. „Þetta þýðir að fólk getur komið með hráefni til okkar og farið út með framleidda vöru. Ég tel þetta verða mikla lyfti- stöng.“ freyr@24stundir.is Smáframleiðendur fá aðstöðu til að þróa vörur sínar á Höfn í Hornafirði Vöruþróunarhótel Matís mun efla nýsköpun ➤ Hægt verður að nýta aðstöð-una til þróunar fisk- og kjöt- afurða, svo og grænmetis. ➤ Guðmundur segir að ef velgangi eigi hann jafnvel von á að vöruþróunarhótel af sama tagi rísi víðar um land. VÖRUÞRÓUNARHÓTEL Vöruþróun Guðmundur er á fullu við að koma að- stöðunni í gagnið. VIKUTILBOÐ OPIÐÖLL FIMMTUDAGSKVÖLD TIL KL. 21:00 Í SUMAR VÍKURHVARF 6 SÍMI 557 7720 WWW.VIKURVERK.IS flugfelag.is Skráðu þig í netklúbbinn Fáðu bestu nettilboðin - ávallt ódýrast á netinu REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR VESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.