24 stundir - 24.07.2008, Qupperneq 10
Stuðningsmenn Hópur manna mótmælti handtöku Karadzic á götum úti í Belgrad
10 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 24stundir
Áfrýjunardómstóll á Ítalíu hefur
snúið við fyrri úrskurði, þar sem
sagt var að ekki
væri hægt að
beita konur í
þröngum galla-
buxum kynferð-
islegu ofbeldi.
Þessi umdeildi
úrskurður féll
fyrir áratug, þeg-
ar meintur
nauðgari var sýknaður þar sem
dómurum þótti ljóst að svo erf-
itt væri að færa konur úr
þrengstu buxum, að það væri
varla hægt án þess að þær tækju
þátt í því. aij
Nauðgun á Ítalíu
Þröngar buxur
ekki afsökun
Kyndeyfð er meðal aukaverkana
sumra tegunda þunglyndislyfja,
en rannsóknir benda til þess að
kyndeyfðarlyfið Viagra geti unn-
ið gegn þessari aukaverkun. Áhrif
bláu pillunnar reyndust vera tals-
vert meiri hjá konum en körlum.
Reyndust 72% þeirra þunglyndu
kvenna sem vísindaamenn við
háskólann í Nýju-Mexíkó gáfu
Viagra njóta betra kynlífs. aij
Bláa kyndeyfðartaflan
Gagnast konum
Ákæra var gefin út á hendur
Warren Jeffs, leiðtoga fjölkvæn-
istrúarhóps í Texas, og fimm fylg-
ismönnum hans
á þriðjudag.
Fimm mannanna
eru kærðir fyrir
að hafa beitt
stúlkur undir 17
ára aldri kyn-
ferðisofbeldi.
Einn þeirra er
jafnframt kærður
fyrir fjölkvæni. Sjötta manninum
er gefið að sök að hafa ekki til-
kynnt ofbeldi gegn börnunum til
yfirvalda. „Allt kapp verður lagt á
að handsama mennina,“ segir
Greg Abbott saksóknari, sem ótt-
ast að mennirnir séu á flótta. aij
Fjölkvænishópur í Texas
Jeffs ákærður
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Ráðamenn í Kreml íhuga að út-
hluta sprengiflugvélum sínum öðr-
um verkefnum en að hnita hringa í
kringum Ísland. Hugmyndir eru
uppi um að senda þær lengra suður
á bóginn – til Kúbu, þar sem þær
myndu lenda og taka eldsneyti.
Bandarískum hershöfðingjum
þykir slíkt óheillaþróun.
Hugmyndin rædd
Rússneska blaðið Izvestia hefur
eftir heimildarmanni í flughernum
að hershöfðingjar ræði mögu-
leikann á að lenda langdrægum
sprengivélum á Kúbu. Tupolov-160
og Tupolov-95 vélarnar, sem eru ís-
lenska flugumsjónarsvæðinu að
góðu kunnar, hafa flugdrægi til að
komast til Karíbahafsins. Þær geta
báðar borið kjarnorkuvopn.
Í vitnaleiðslum fyrir þingnefnd
var Norton Schwartz, hershöfðingi
sem til stendur að skipa yfirmann
flughers Bandaríkjanna, spurður
hvaða ráð hann myndi gefa ef
Rússar tækju upp á því að staðsetja
kjarnorkusprengjuvélar á Kúbu.
„Ég myndi mæla með því að allt
yrði reynt til að fá Rússa ofan af
slíkum ráðagerðum,“ segir
Schwartz. „Ef það tækist ekki, þá
þyrftum við að gera þeim ljóst að
þetta væri eitthvað sem gengi of
langt, færi yfir rauða strikið í aug-
um Bandaríkjanna.“
Gleður baráttujaxla
Á sama tíma og bandaríska hers-
höfðingja óar við vígvæðingu í
Karíbahafinu þykir rússneskum
kollegum þeirra hugmyndin vera í
samræmi við aðstæður.
„Möguleg staðsetning rúss-
neskra sprengiflugvéla á Kúbu væri
afar góð viðbrögð við hugmyndum
Bandaríkjanna um að koma
NATO-herstöðvum fyrir nærri
landamærum Rússlands,“ hefur
Pravda eftir Pyotr Deinekin, fyrr-
verandi yfirmanni rússneska flug-
hersins.
Talsmenn Hvíta hússins hafa
ekki viljað tjá sig um fréttirnar, þar
sem opinber yfirlýsing hafi ekki
borist frá Rússlandi.
Björnunum
beint til Kúbu?
Rússar hugleiða að beina sprengiflugvélum sínum til Kúbu
Viðbrögð við varnarhlíf Bandaríkjanna í Austur-Evrópu
➤ Í Kúbudeilunni 1962 komustBandaríkjamenn á snoðir um
áform Sovétmanna um að
koma miðdrægum kjarn-
orkuflaugum fyrir á Kúbu.
➤ Sú deila stóð í tvær vikur, þartil Sovétmenn drógu hug-
myndir sínar til baka.
KÚBUDEILA
NordicPhotos/AFP
Björninn Sprengivél af gerðinni Tupolev-95 í fylgd orrustuvéla.
Eftir ársumfjöllun hefur per-
sónuvernd Danmerkur úrskurðað
að diskótekinu Crazy Daisy í Vi-
borg sé heimilt að halda ítarlega
skrá yfir viðskiptavini sína. Í
skránni verða meðal annars fingra-
för gestanna og mynd af þeim, auk
ýmissa persónulegra upplýsinga.
„Ég vona að þetta breyti nætur-
lífinu og hef trú á að þetta hafi for-
varnaráhrif,“ segir Henrik Karlsen,
eigandi skemmtistaðarins. Meðal
annars öryggisbúnaðar Crazy
Daisy eru 36 eftirlitsmyndavélar.
Vill Karlsen innleiða skráningar-
kerfið sem fyrst, svo hægt sé að
tryggja að óæskilegir gestir komi
ekki inn um dyr staðarins. Telur
hann eina fólkið sem ekki sam-
þykki skráningu vera þá, sem
óhreint mjöl hafi í pokahorninu. aij
Öryggi danskra samkvæmisljóna
Diskóteki leyft að
taka fingraför
„Karadzic mun hafa hóp lögfræðinga sér til aðstoðar í Serbíu en
hann mun sjálfur sjá um málsvörn sína,“ segir Sveta Vujacic, lög-
fræðingur Radovan Karadzic. Karadzic myndi þannig feta í fótspor
Slobodans Milosevic, fyrrum forseta Júgóslavíu, sem rak mál sitt
sjálfur fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag. aij
Karadzic hyggst verja sig sjálfur
Fyrir Þessum manni var leitað að Eftir Dulbúinn snéri hann á réttvísina
Fórnarlömbin Kona syrgir hluta þeirra 8000 sem myrtir voru í Srebrenica
Gallerí Fold · Rauðarárstíg og Kringlunni
Íslensk list
tilvalin brúðargjöf
· · ·
Opið laugardaga,
í Kringlunni 10–18, Rauðarárstíg 11–14,
lokað á sunnudögum í Galleríi Fold í sumar
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · Kringlan, sími 568 0400 · www.myndlist.is
H
allurKarlH
inriksson
Munið vaxtalausu listaverkalánin