24 stundir - 24.07.2008, Síða 17
24stundir FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 17
Það voru margir sem misstu hökuna niður
á maga af undrun þegar bandaríska golf-
konan Michelle Wie tilkynnti að hún ætlaði
sér að taka þátt á PGA-mótaröðinni í golfi í
næstu viku. Wie hefur sjö sinnum á ferlinum
leikið á atvinnumótaröð fyrir karla og aðeins
einu sinni hefur henni tekist að komast í
gegnum niðurskurðinn.
Wie hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir
þátttöku sína á þessum mótum þar sem hún
hefur þegið boð frá styrktaraðilum mótanna.
Reno-Tahoe-golfmótið nær ekki að draga til
sín bestu kylfinga heims þar sem WCG-
heimsmótið fer fram á sama tíma. Wie ákvað
að þiggja boð forsvarsmanna mótsins þar
sem hún var ekki viss um að fá keppnisrétt á
Opna breska meistaramótinu sem hefst á
Sunningdale-vellinum á fimmtudag í næstu
viku. Wie heldur sínu striki þrátt fyrir að
hafa verið vísað frá State Farm-mótinu á
LPGA-kvennamótaröðinni í Bandaríkjun-
um. Wie, sem er 18 ára gömul, gleymdi að
skrifa nafn sitt á skorkortið að loknum öðr-
um keppnisdegi á síðasta móti en hún var á
þeim tíma aðeins einu höggi frá efsta sæti
mótsins. Það atvik er gleymt og grafið.
„Það er ekki á hverjum degi sem kona fær
tækifæri til þess að leika á bestu mótaröð
heims. Ég fæ tækifæri til þess að læra af þeim
bestu og ég lít á þetta mót sem eitt skref fram
á við á mínum ferli,“ sagði Wie en hún er
ekki með fullan keppnisrétt á LPGA-kvenna-
mótaröðinin og getur aðeins tekið þátt í einu
LPGA-móti til viðbótar í ár. seth@24stundir.is
Kylfingurinn Michelle Wie tekur umdeilda ákvörðun
Reynir á ný við karlana
Umdeild Michelle Wie fer sínar
eigin leiðir í golfíþróttinni
Mýrarboltafélag Íslands hef-
ur á undanförnum árum
staðið fyrir stórmóti í mýr-
arbolta á Ísafirði í tengslum
við verslunarmannahelg-
arhátíð þar vestra. Hálfdán
Bjarki Hálfdánarson, verk-
efnastjóri dómaramála Mýr-
arboltafélags Íslands, segir
að fleiri dómara þurfi til
þess að mótið geti staðið
undir þeim væntingum sem
til þess eru gerðar. „Við er-
um að leita að dómurum
fyrir næsta mót og við höf-
um samræmt ýmislegt í leik-
reglunum. Það má t.d. ekki
skora beint úr hornspyrnu
og við höfum einnig skerpt
á áherslum hvað varðar
tæklingar og annað slíkt.
Reglurnar eru því skýrari en
áður og það ætti að auð-
velda dómgæsluna,“ sagði
Hálfdán í gær við 24 stundir
en þeir sem hafa áhuga á því
að taka að sér dómgæslu
geta haft samband við Hálf-
dán í gegnum vefsíðuna
myrarbolti.com.
Í fyrra tóku um 280 kepp-
endur þátt en leikið er á
þremur völlum í næsta ná-
grenni við golfvöll Ísfirðinga
í Tungudal.
Ertu drullu-
dómari?
Liðin sem eru í fallsætum
Landsbankadeildarinnar
misstu bæði leikmenn úr sín-
um röðum í gær. Atli Guð-
jónsson óskaði eftir því að
verða leystur undan samningi
sínum við ÍA en hann er sonur
Guðjóns Þórðarsonar sem var
sagt upp störfum sem þjálfara
ÍA á mánudag. Hermann Geir
Þórsson hefur ákveðið að
leika með Víkingum úr Ólafs-
vík það sem eftir er leiktíðar
en hann lék 11 leiki með botn-
liði HK fyrri part sumars.
Farnir, bless