24 stundir - 24.07.2008, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 24stundir
og
• Hjarta og æðakerfi
• Kólesteról í blóði
• Blóðþrýsting
• Liði
• Orkuflæði líkamans
• Minni og andlega líðan
• Námsárangur
• Þroska heila og miðtaugakerfi
fósturs á meðgöngu
• Rakastig húðar
Í fitusýrum er að finna undirstöðefni sem eru okkur
lífsnauðsynleg á sama hátt og prótín, vítamín, steinefni o.fl.
Lífsnauðsynlegar
fitusýrur á hverjum degi!
Udo's choice 3•6•9 olíublandan er blanda
af lífsnauðsynlegum fitusýrum sem geta
byggt upp ónæmiskerfið og haft áhrif á:
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla & Selfossi
STÓRÚTSALA
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.
50–70% afsláttur
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Ferðalag til sjálfsþekkingar – Sköp-
un, gleði og leikur er yfirskrift
námskeiðs sem Björg Einarsdóttir
og Ólöf Sverrisdóttir verða með á
Sólheimum í Grímsnesi helgina 8.-
10. ágúst. Þar beita þær leiklist,
dansi og öðrum listgreinum í
bland við hefðbundnar hugleiðslu-
aðferðir. „Við byrjum mjúklega
með hugleiðslu og dansi til að
hrista hópinn saman. Á laugardag-
inn förum við inn í ákveðið ferli
sem er byggt á dramaþerapíu,“ seg-
ir Ólöf og bætir við að inn í það
fléttist hugleiðsla, dans, myndlist
og skrif. „Síðan lýkur þessu von-
andi með gleði, dansi og jákvæðum
anda,“ segir Ólöf.
Fjarri skarkala borgarinnar
„Við höfum ágætis hlé inn á
milli þannig að fólk geti notið þess
að fara í göngutúra og svo er þarna
sundlaug og heitur pottur,“ bætir
hún við. Einnig verður boðið upp á
heilnæmt grænmetisfæði og er
nánast allt grænmetið ræktað á
staðnum.
Námskeiðið fer fram í gistiheim-
ilinu Veghúsum, fjarri skarkala
borgarinnar. „Það hjálpar mikið til
því að það er náttúrlega svo mikið
áreiti alls staðar, sérstaklega í
Reykjavík,“ segir hún.
Áttar sig á styrk sínum
Námskeiðið byggist meðal ann-
ars á hópavinnu en um leið er lögð
áhersla á að hver og einn kynnist
sjálfum sér betur.
„Fólk áttar sig betur á hvar
styrkur þess liggur og hvaða þætti
þarf að styrkja. Það er líka mark-
miðið að hafa gleði í þessu og slök-
un frá amstri dagsins,“ segir hún.
Leiða saman hesta sína
Ólöf og Björg eru ekki óvanar
námskeiðahaldi þó með ólíkum
hætti sé. Ólöf hefur meðal annars
staðið fyrir námskeiðum í leiklist
og tjáningu en Björg hefur aftur á
móti haldið námskeið í hugleiðslu,
heilun og nuddi.
„Ég veit hvernig hún vinnur og
hún veit hvernig ég er og vinn
þannig að við þekkjumst mjög vel.
Þetta er í fyrsta sinn sem við
vinnum svona saman. Við hlökk-
um mikið til og ég hef á tilfinning-
unni að þetta takist voðalega vel,“
segir Ólöf að lokum.
Sköpun og hugleiðsla Björg Ein-
arsdóttir og Ólöf Sverrisdóttir nota
hefðbundna hugleiðslu í bland við
sköpun og tjáningu.
Nýstárlegt námskeið á Sólheimum
Sköpun, gleði
og sjálfsþekking
Ólöf Sverrisdóttir og
Björg Einarsdóttir leiða
saman hesta sína á nám-
skeiði. Þær nota leiklist,
dans, skapandi skrif
ásamt hefðbundnum
hugleiðsluaðferðum til
að hjálpa fólki að kynn-
ast betur sjálfu sér.
➤ Námskeiðshaldarar komahvor úr sinni áttinni. Ólöf er
leikkona, leikritahöfundur og
leikstjóri en Björg er sjúkra-
nuddari og reikimeistari.
➤ Mæting er milli kl. 17 og 18föstudaginn 8. ágúst. Nám-
skeiðinu lýkur kl. 16 sunnu-
daginn 10. ágúst.
➤ Hægt er að skrá sig eða leitafrekari upplýsinga hjá Ólöfu
(s: 845 8858) og Björgu (s:
862 7675).
NÁMSKEIÐ
Ef maður ætlar að spila á tromm-
ur í rokkhljómsveit er eins gott
að vera í góðu formi. Ný rann-
sókn leiðir í ljós að rokktromm-
arar þurfa að hafa úthald á við
íþróttamenn í fremstu röð.
Trommuleikarinn Clem Burke
sem gerði garðinn frægan með
hljómsveitinni Blondie gekkst
undir mælingar á vegum vísinda-
manna við tvo breska háskóla.
Vísindamennirnir mældu hjart-
slátt, súrefnisupptöku og magn
mjólkursýru í blóði trommarans.
Í ljós kom að á tónleikum var
hjartsláttur hans að meðaltali
140-150 slög á mínútu en fór
hæst upp í 190 slög. „Á einum
tónleikum getur trommuleikari
brennt 400 til 600 hitaeiningum,“
sagði dr. Marcus Smith, sem
stjórnaði rannsókninni, í viðtali
við Breska ríkisútvarpið. Þá getur
álagið jafnvel verið meira en hjá
atvinnuíþróttamönnum. „Knatt-
spyrnumenn mega búast við því
að leika 40-50 leiki á ári. En á 12
mánaða tímabili kom Clem fram
á 100 tónleikum sem stóðu hverj-
ir um sig í 90 mínútur,“ sagði dr.
Smith og bætti við að þegar þeir
væru á tónleikaferðalagi þyrftu
trommarar stundum að leika á
hverjum degi.
Með úthald á við íþróttamenn
Gildi góðrar loftræstingar á
vinnustað verður seint ofmetið.
Flæði lofts hefur áhrif á líðan
starfsmanna og um leið á
frammistöðu þeirra og afköst.
Starfsmaður sem þarf að vinna í
loftlitlu rými finnur gjarnan til
þreytu og á erfitt með að einbeita
sér. Það á ekki síst við á sumrin
þegar hlýtt er í veðri og sól skín í
heiði. Þá getur verið gott að opna
glugga eða setja jafnvel upp litla
rafmagnsviftu. Hún kemur loft-
inu á hreyfingu og lyftir starfs-
andanum á æðra plan.
Áhrif lofts á
starfsandann
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Fólk áttar sig betur á hvar styrkur þess liggur og
hvaða þætti þarf að styrkja. Það er líka markmiðið
að hafa gleði í þessu og slökun frá amstri dagsins.
heilsa