24 stundir - 24.07.2008, Page 20

24 stundir - 24.07.2008, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 24stundir Lögmál 1: Bikarinn skal vera tandurhreinn, þveginn upp úr fitulausri sápu og skolaður í köldu vatni þar til hann nær sama hitastigi og ölið. Þannig verður froðan þéttari og heldur hvítum hlífiskildi sínum lengur yfir hinum dýrmæta vökva. Minnstu óhrein- indi geta spillt fyrir og mengað fullkomin bragðgæði Stellu Artois. Lögmál 2: Þegar byrjað er að hella er bikarnum hallað um 45 gráður. Þá sjáum við hvernig dýrmætur vökvinn hringar sig ofan í bikarinn og myndar iðuna sem er galdurinn við fljótandi gullgerðarlist. Þegar ölið kemst í samband við súr- efni myndast smám saman þétt froða sem innsiglar inni- haldið og verndar það frá fyrsta sopa til hins síðasta. Lögmál 3: Þegar bikarinn, sem hingað til hefur hallað um 45 gráður, hefur verið fylltur að þremur fjórðu skal hann réttur við. Með jafnri hreyfingu er hann samtímis færður niður frá flösku- opi um sem nemur hæð bikarins. Þannig krýnum við ölið þéttri froðu sem skýlir innihaldi bikars- ins og tryggir ferskleika og líf þessa fljótandi gulls. Þó svo að feitt kjöt, kartöflu- flögur og grillsósur geti verið mikið hnossgæti og að margir kjósi að gera vel við sig í mat í fríum er ekki þar með sagt að útilegugrillmaturinn þurfi alltaf að vera hitaeiningaríkur. Hollur og hitaeiningasnauður matur getur verið enn bragðbetri fyrir utan að vera léttari í maga og þar með hentugri fyrir útilegurnar. Fyrir utan að skera sem mest af fitunni af grillkjötinu getur verið gott að sleppa alveg grill- sósunni og marinera kjötið þess í stað í sítrónusafa, víni, ediki og alls kyns jurtum og kryddi, áður en það fer á grillið. Til er fjöld- inn allur af heilsusamlegum leið- um til þess að marinera kjöt og gefa því sterkt og ljúffengt bragð án þess að skella á það sósu eftir að búið er að grilla það. Meðlæti á borð við kartöflu- salat með majónesi má skipta út fyrir fjölbreytilegt grænmetissalat með léttri salatsósu. Þá er svo að segja allt grænmeti gott grillað og því upplagt að grilla það með kjötinu. Mörgum finnst gott að borða brauð með grillkjöti og í stað þess að skella á það smjöri og öðru feitmeti er til fjöldinn allur af uppskriftum að góðum og hollum hummus sem gott er að útbúa áður en haldið er af stað í útileguna. Smávegis óhollusta kemur ef til vill ekki alltaf að sök í ferða- lögum eða í garðveislum á sól- ríkum dögum. En með því að gæta að hollustunni á sem flest- um sviðum er auðveldlega hægt að gera matinn fjölbreytilegri og ennþá ljúffengari en ella. Ýmsar leiðir til að bragðbæta mat á heilsusamlegan hátt Hollustu á grillið Grillmatur Gott er að marinera kjötið. Ameríkanar er miklir grillmeist- arar og frá þeim hafa komið hinar ýmsu uppskriftir fyrir grillið. Hér er uppskrift að hinni ekta amerísku BBQ-sósu sem Kanarnir eru svo frægir fyrir. Sósuna má bæði nota sem marineringu fyrir kjöt en einnig sem grillsósu með nauta- og svínasteik eða kjúklingi. Uppskriftin er miðuð við átta manns. Sósan geymist vel í ísskáp. Það sem þarf í sósuna:  1 laukur  2 rauður chili-pipar, tvö stk.  2 msk. olía  2 msk. sojasósa  2 dósir niðursoðnir tómatar  ¾ dl eplacider-edik  1 msk. Dijon-sinnep  ½ msk. Worcestershire-sósa  2 msk. púðursykur  1 ½ msk. paprikuduft  1 tsk. cayenne-pipar  1 tsk. salt  2 tsk nýmalaður pipar Aðferð: Afhýðið laukinn og saxið smátt, fræhreinsið chili-pipar og saxið hann einnig smátt. Steikið á pönnu í olíu þar til laukurinn mýkist. Bætið restinni af því sem er upptalið hér fyrir framan og sjóðið upp. Lækkið hitann og látið malla í eina og hálfa klst. Hrærið í af og til. Kælið sósuna aðeins og setjið hana í matvinnsluvél eða notið töfrasprota til að mauka hana. Kælið sósuna alveg niður áður en hún er sett í krukku eða í annað geymsluílát. Ef sósan reynist of þykk má þynna hana með smáveg- is vatni þegar hún verður notuð. Geymist í góðu íláti í eina viku í ísskáp. Vinsæl sósa á grillkjötið Ekta amerísk BBQ-sósa Þessi kjúklingagrind fæst í versl- unum Byko og er sniðugur fylgi- hlutur fyrir grill. Í grindinni brúnast kjúklingurinn jafnt og öll fitan fer beint í skálina. Grindin er ryðfrí og hana má setja í uppþvottavél. Hún fæst einnig á heimasíðu Byko, byko.is, og kostar 1250 krónur. Kjúklingagrind fyrir grillið LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Núna fer allur minn tími í að stúdera hráefnið en hér sleppum við sykri og hvítu hveiti og aukum vægi grænmetisins. Sætar kartöflur bjóða upp á mjög marga möguleika. Þær eru ekki síst góðar grillaðar og fram- reiddar með grilluðu kjöti af hvaða tagi sem er. Hér er hins vegar góð uppskrift að dísætum, grilluðum sætum kartöflum með eplum, kan- il og smjöri. Þessi réttur bragðast vel einn og sér. Sætar kartöflur og epli fyrir fjóra:  2 stórar sætar kartöflur.  1 grænt epli.  115 grömm af smjöri  kanilsykur eftir smekk. Aðferð: Afhýðið eplið og kartöflurnar, skerið í þunna báta og blandið í stóra skál. Stráið kanelsykri yfir og látið standa á meðan grillið er hit- að. Skiptið eplunum og kartöflun- um síðan í fjóra jafnstóra skammta og setjið á álpappír. Bætið síðan smjöri ofan á hvern skammt fyrir sig. Smjörið má minnka eða auka eftir smekk hvers og eins. Vefjið síðan álpappírnum vel utan yfir hvern skammt fyrir sig og grillið í um hálftíma. Snúið á um það bil fimm mínútna fresti. Kartöflurnar og eplin eiga að vera mjúk og sæt og bragðast best á meðan þau eru ennþá heit. Eins og fyrr segir bragðast þessi réttur vel einn og sér en hann er einnig góður sem hluti af eftirrétti með vanilluís. Sætar kartöflur, epli og smjör Sætar kartöflur Góðar með grillmatnum. Grillmatur er mjög góð- ur á ferða- lögum um landið eins og vanir ferðalangar þekkja hvað best. Mjög mikilvægt er að ganga varlega um og fara gæti- lega með grill og gastæki, hvort sem gist er á tjaldsvæðum eða úti í guðsgrænni náttúrunni. Ráðlegt er að kynna sér almennar tjald- svæðareglur áður en haldið er af stað í útilegu og hafa í huga að þegar einnota grill er notað er mjög mikilvægt að leggja það á steina eða hellur í stað þess að setja það beint á jörðina. Það gildir bæði á tjaldsvæðum og ut- an þeirra. Eldamennska í útilegu grillið

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.