24 stundir - 13.08.2008, Side 2

24 stundir - 13.08.2008, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir Er mikið álag í vinnunni? LGG+ er fyrirbyggjandi vörn! Oft koma fyrstu einkenni streitu fram sem stöðug þreyta og óþægindi í maganum og ónæmiskerfið starfar af minni krafti en áður. Rannsóknir sýna að LGG+ vinnur gegn þessum neikvæðu áhrifum og dagleg neysla þess tryggir fulla virkni. H V Í T A H Ú S IÐ / S ÍA VÍÐA UM HEIM Algarve 25 Amsterdam 20 Alicante 35 Barcelona 30 Berlín 24 Las Palmas 26 Dublin 14 Frankfurt 19 Glasgow 15 Brussel 20 Hamborg 19 Helsinki 22 Kaupmannahöfn 18 London 20 Madrid 27 Mílanó 25 Montreal 18 Lúxemborg 19 New York 18 Nuuk 5 Orlando 24 Osló 19 Genf 20 París 23 Mallorca 30 Stokkhólmur 21 Þórshöfn 11 Hæg vestlæg átt. Bjart veður að mestu á landinu, en þó líkur á síðdegisskúrum suð- vestan- og vestanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast í innsveitum. VEÐRIÐ Í DAG 11 12 14 12 14 Bjart að mestu Suðvestan 8-13 m/s norðvestantil síðdegis, annars hægari vindur. Skúrir um landið vest- anvert, en léttskýjað austanlands. Hiti 10 til 16 stig. VEÐRIÐ Á MORGUN 12 12 13 12 12 Hiti 10 til 16 stig Fulltrúar Listaháskóla Íslands munu kynna tillögu sína að nýju húsi skólans við Laugaveg á fundi skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í dag og er fundurinn upphafið að faglegu ferli þar sem fjallað verður um tillöguna. Pólitískar deilur hafa staðið um tillöguna eftir að borgarstjórinn í Reykjavík, Ólafur F. Magnússon, lýsti því yfir að hún væri ekki í samræmi við stefnu meirihlutans um að vernda 19. aldar götumynd við Laugaveg. Í kjölfarið skipaði borgarstjórinn Magnús Skúlason sem fulltrúa sinn í skipulagsráði í stað Ólafar Guðnýjar Valdimars- dóttur. Síðan þá hefur Magnús lýst því yfir að verðlaunatillagan sé „ekki góð byggingarlist“ og að Listaháskólinn ætti jafnvel að vera annars staðar en í miðbænum. elias@24stundir.is Listaháskólinn á fund skipulagsráðs Kynna sína tillögu Umdeild Tillaga Listahá- skólans er umdeild. Umhverfisnefnd Alþingis kemur saman á morgun til þess að ræða úrskurð Þórunnar Sveinbjarnar- dóttur umhverfisráðherra um að framkvæmdir vegna álvers Alcoa á Bakka fari í heildstætt umhverfis- mat. Þórunn hefur tilkynnt að hún komist ekki á fundinn vegna þess að hún verði stödd á Húsavík. Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni, sem óskaði eftir fundinum segist vonsvikin yfir því að Þórunn sjái sér ekki fært að mæta. „Mér finnst lélegt af ráðherra að senda embætt- ismenn í sinn stað,“ segir hann. Höskuldur segist einnig hafa lagt til að nefndin færi í heimsókn til Húsavíkur í tengslum við málið en það hafi ekki verið áhugi fyrir því. elias@24stundir.is Umhverfisnefnd fjallar um úrskurð ráðherra Þórunn kemur ekki á nefndarfund „Við fengum mjög gott tilboð, rúm 70% af kostnaðaráætlun,“ segir Kristján Möller samgönguráðherra og bætir við að tilboðin hafi öll ver- ið góð. „Þetta er eitt af verkefnum sem ríkisstjórnin setti í flýtifram- kvæmd á síðasta ári, enda búið að tala um Suðurstrandarveg síðan 1999,“ segir Kristján og bætir við að gamla áætlunin hafi gert ráð fyr- ir því að vegurinn yrði tilbúinn 2015-2018. Kristján tekur fram að stefnt verði að því að opna veginn á árinu 2011. Alls bárust 13 tilboð í Suðurstrandarveg, þ.e. kaflann milli Krýsuvík- urvegar og Þorlákshafnarvegar en KNH ehf. á Ísafirði átti lægsta til- boðið og hljóðaði það upp á rétt ríflega 697 milljónir króna, eða 73,5 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Verkið hljóðar upp á 33,6 km langan kafla ásamt 2,3 km löngum tengingum og smíði 12 m steyptrar brúar auk annars. Seinni hluti vegarins verður boðinn út fljótlega. áb Tilboð í Suðurstrandarveg Líðan ökumanns jeppa sem hafn- aði framan á rútu í árekstri á Suð- urlandsvegi á mánudagsmorgun er óbreytt. Manninum er haldið sof- andi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Tveir slösuðust lít- illega í slysinu og þáðu um þrjátíu farþegar rútunnar áfallahjálp. áb Haldið sofandi í öndunarvél Nú eru á lífi 34 Íslendingar sem náð hafa hundrað ára aldri en tíu eru á 99. aldursári. Þuríður Samúelsdóttir, sem var elst Íslendinga, lést 2. ágúst síð- astliðinn 105 ára að aldri. Áður höfðu 24 náð svo háum aldri, tuttugu konur og fjórir karlar (fimm úr þessum hópi áttu heima í Kanada). Upplýsingar og fróð- leik um langlífi, skoðað frá ýms- um hliðum, stétt, hjúskaparstöðu og búsetu má finna á www.lang- lifi.net. Þuríður var fædd 19. júní 1903 í Miðdalsgröf í Kirkjubóls- hreppi í Strandasýslu. áb Elsta kona Íslands látin 105 ára Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is 136 fangar hafa setið í íslenskum fangelsum að meðaltali á degi hverjum það sem af er árinu 2008. Samkvæmt upplýsingum frá Fang- elsismálastofnun eru alls 137 rými í fangelsum landsins að meðtöld- um einangrunarrýmum, sem eru samtals átta talsins. Því er nánast hundrað prósenta nýting á fangels- unum það sem af er ári. Fleiri afplána en rými er fyrir Í dag afplánar 131 einstaklingur óskilorðsbundna dóma í íslensk- um fangelsum. Auk þeirra sitja fjórtán einstaklingar í gæsluvarð- haldi, þar af fjórir í einangrun. Hinir tíu eru í svokallaðri lausa- gæslu og fylla því venjuleg afplán- unarrými. Alls sitja því 145 manns í fangelsi hérlendis. Rýmin í ís- lenskum fangelsum að meðtöldum einangrunarklefum nægja því ekki til að hýsa þá alla. Líkt og kom fram í 24 stundum í gær þurfa alls fjórtán fangar að deila klefum með öðrum um þess- ar mundir þrátt fyrir að endurbætt fangelsi á Akureyri sé komið í fulla notkun. Þar af er tvímennt í þrem- ur klefum á Litla-Hrauni. Við þessari miklu fjölgun hefur verið brugðist meðal annars með því að láta þá sem dæmdir eru til vara- refsingar vegna fésekta sinna sam- félagsþjónustu. Meðaltalsfjöldi þeirra sem afplána slíkar í fangelsi hefur því hríðlækkað. Um átta manns sátu í fangelsum á degi hverjum árið 2004 vegna vararefs- inga, en meðaltal þeirra nær ekki einum það sem af er þessu ári. Ástandið á eftir að versna Þessu til viðbótar hafa 148 manns verið boðaðir til afplánunar án þess að hafa hafið hana. Hluti þess hóps hefur sótt um að taka út refsingu sína með samfélagsþjón- ustu, en slíkt býðst öllum þeim sem hljóta hálfs árs óskilorðsbund- inn dóm eða skemmri. Þeir sem hafa fengið frestun á að hefja af- plánun tilheyra einnig þessum hóp. Auk þessara 148 hafa um 60 óskilorðsbundnir fangelsisdómar borist Fangelsismálastofnun ný- verið til fullnustu. Því eru alls 208 dómar sem á eftir að afgreiða. Ekkert pláss í fangelsunum  Fangelsin eru að meðaltali fullnýtt á hverjum degi allt þetta ár  208 óskilorðsbundnir dómar bíða fullnustu eða afgreiðslu Allt fullt Fjöldi ein- staklinga bíður þess að komast í afplánun. ➤ 145 einstaklingar sitja í fang-elsum hérlendis, annað hvort til að afplána dóma eða í gæsluvarðhaldi. ➤ Í íslenskum fangelsum eru137 rými fyrir fanga ➤ Þar af eru átta einangr-unarrými. ➤ Fjórir einstaklingar sitja í ein-angrun um þessar mundir. RÝMI Í FANGELSUM STUTT ● Sótti um hæli Hæstiréttur staðfesti í gær að erlendur karl- maður skuli sæta gæslu- varðhaldi til 1. september. Maðurinn kom til landsins 7. júlí og var með falsað belgískt vegabréf. Hann var fjórum dögum síðar dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals. Tveim- ur vikum síðar var manninum tilkynnt að honum yrði vísað úr landi. Þá óskaði hann eftir pólitísku hæli sem flóttamaður. ● Stútar undir stýri Nítján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborg- arsvæðinu um helgina. Sjö þeirra reyndust jafnframt vera próflausir. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Hluti flugeldasýningarinnar á setningarhátíð Ólympíu- leikanna í Peking, sem birtist umheiminum í sjónvarpi, var tölvugerður. Sjónvarpsáhorf- endur sáu flugelda mynda risavaxin fótspor yfir Torgi hins himneska friðar, en skipuleggjendur notuðust við tölvutækni af ótta við að vandamál sem fylgja beinum útsendingum myndu draga úr stórfengleika sýningarinnar. aí Setningarhátíð ÓL Fölsuð spor SKONDIÐ

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.