24 stundir - 13.08.2008, Page 10
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
„Mér finnst nánast mega kalla
þessa meðferð pyntingar,“ segir
Kristinn Sigurjónsson, sem þurfti
að dúsa í 15 daga í fangageymslum
í Bandaríkjunum, sakaður um að
hafa stundað þar vinnu án tilskil-
inna pappíra. Hann segist einungis
hafa verið að hjálpa til á sveitabæ
vinafólks síns.
Kristinn hafði verið á ferðalagi
um Bandaríkin á húsbíl sem hann
keypti eftir komuna til landsins um
miðjan maí. „Eftir að bensínverðið
rauk upp fór bíllinn að valda mér
vandræðum. Ég ákvað því að aug-
lýsa hann til sölu á netinu.“
Að aðstoða vinafólk
Þannig komst Kristinn í sam-
band við fólk í Minnesota, sem
sýndi bílnum áhuga. Fólkið hætti
við að kaupa bílinn, en bauð hon-
um að dvelja á sveitabæ sínum á
meðan hann seldi bílinn.
„Mér tókst að selja hann tveimur
dögum síðar. En þar sem ég hafði
kynnst fólkinu vel og tók eftir því
að maðurinn var mjög hjartveikur
og árið var búið að vera erfitt hjá
þeim hjónum, bauðst ég til að vera
aðeins lengur og hjálpa til á sveita-
bænum.
Ég var hjá þeim í tæpar fjórar
vikur, en fékk ekkert borgað fyrir
enda fór ég ekki fram á það,“ segir
Kristinn.
Miðvikudaginn 23. júlí var hann
svo handtekinn við landamæri
Kanada, grunaður um að hafa
stundað vinnu ólöglega.
Fékk ekki að hringja
Eftir að hann var settur í fanga-
geymslur reyndi hann að hafa sam-
band við sendiráð Íslands í Wash-
ington. Í fangelsinu var honum
tjáð að hann fengi ekki að hringja
þar sem hann væri ekki með til-
skilið símakort. Honum tókst þó
með hjálp eiginkonu klefafélaga
síns að hafa samband við sendiráð-
ið tveimur dögum síðar.
Þriðjudaginn eftir það var Krist-
inn fluttur til Minneapolis, þar sem
hann átti að fara fyrir dómara.
Rúmri viku síðar, eða hinn 7.
ágúst, var hann leiddur fyrir dóm-
arann. Þá hafði hann verið í fang-
elsi í 15 daga.
„Ég fékk nánast ekkert, fékk ekki
að hringja allan þennan tíma og
ekki að reykja né nikótínplástra til
að deyfa fíknina. Ég var látinn sofa
á steinsteyptu rúmi með fimm
sentimetra dýnu í vondu ástandi,
sem er slæmt fyrir mig sem er bak-
veikur. Það olli mér talsverðum
verkjum, en ég fékk aldrei verkjalyf
þrátt fyrir að biðja um það.“
Barinn af lögreglumanni
Þá segist hann hafa verið barinn
af lögreglumanni fyrir það eitt að
krefjast túlks. „Hann barði mig í
hliðina með barefli og sagði mér að
rifja upp enskuna mjög hratt. Ann-
ars skyldi hann tryggja að ég fengi
þriggja mánaða fangelsisdóm.“
Þegar fyrir dómarann var komið
tjáði lögmaður Kristins honum að
hún hefði samið við saksóknarann.
Ef hann játaði á sig brotið, yrði
honum sleppt með því skilyrði að
hann notaði flugmiða sinn heim til
Íslands þann 16. ágúst.
Kristinn segist hafa játað á sig
glæpinn þrátt fyrir að vera saklaus,
til þess eins að sleppa úr haldi. „Ég
hefði játað á mig morðið á Ken-
nedy fyrir að vera sleppt,“ segir
Kristinn og hlær. Hann dvelst nú
hjá vinafólki sínu í Minnesota þar
til hann flýgur heim til Íslands.
Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðla-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins, seg-
ir að ræðismenn fyrir Ísland í
Bandaríkjunum hafi gert það sem í
þeirra valdi stóð til að aðstoða
Kristin. Það hafi m.a. orðið til þess
að milda dóminn yfir honum.
Í fangageymslum í hálfan mánuð sakaður um að stunda vinnu án tilskilinna pappíra
Ósáttur við meðferðina í bandarísku fangelsi
➤ Kristinn var handtekinn viðlandamæri Kanada 23. júlí.
➤ Fimmtán dögum síðar losnaðihann úr fangelsi, gegn loforði
um að fara úr landi.
HÁLFUR MÁNUÐUR
Segist saklaus Kristinn
var að eigin sögn ekki að
vinna launuð störf.
10 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir
Lögmál 1: Bikarinn skal vera tandurhreinn, þveginn
upp úr fitulausri sápu og skolaður í köldu vatni þar
til hann nær sama hitastigi og ölið. Þannig verður
froðan þéttari og heldur hvítum hlífiskildi sínum
lengur yfir hinum dýrmæta vökva. Minnstu óhrein-
indi geta spillt fyrir og mengað fullkomin bragðgæði
Stellu Artois.
Lögmál 2: Þegar byrjað er að hella er bikarnum hallað um
45 gráður. Þá sjáum við hvernig dýrmætur vökvinn hringar
sig ofan í bikarinn og myndar iðuna sem er galdurinn við
fljótandi gullgerðarlist. Þegar ölið kemst í samband við súr-
efni myndast smám saman þétt froða sem innsiglar inni-
haldið og verndar það frá fyrsta sopa til hins síðasta.
Lögmál 3: Þegar bikarinn, sem
hingað til hefur hallað um
45 gráður, hefur verið fylltur að
þremur fjórðu skal hann réttur
við. Með jafnri hreyfingu er hann
samtímis færður niður frá flösku-
opi um sem nemur hæð bikarins.
Þannig krýnum við ölið þéttri
froðu sem skýlir innihaldi bikars-
ins og tryggir ferskleika og líf
þessa fljótandi gulls.
„Hér vantar okkur fólk í störf
sem krefjast sérmenntunar,“ segir
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á
Ísafirði. „Það fólk þarf að vera með
sérmenntun í tölvumálum, verk-
fræði, tæknifræði og aðra iðn-
menntun. Þetta fólk vantar okkur,“
bætir hann við.
Halldór segir þetta vera eitt af
því sem komið hafi fram í fyrir-
tækjaheimsóknum sem atvinnu-
málanefnd bæjarins hafi staðið fyr-
ir. „Aðeins er búið að fara í 14
fyrirtæki og í flestum kom fram að
þar vantaði svona fólk,“ segir hann
og bætir við: „Við höfum verið að
reyna að bæta úr þessu með því að
efla hér háskólasetur og fleira en
það tekur tíma.“
Næg tækifæri á Ísafirði
Halldór segir að atvinnumark-
aðurinn hafi verið að breytast.
„Það hefur verið að gerast svolít-
ið á Íslandi að þessum verka-
mannastörfum hefur fækkað,“ seg-
ir hann og bætir við: „Hér er sama
og ekkert atvinnuleysi. Hér eru
tækifæri fyrir fagmenntað fólk.“
elias@24stundir.is
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði
Næg tækifæri
„Við vorum nokkrir félagar
staddir í þyrluskíðaferð í Kirgisist-
an í vetur og fórum að ræða það
hvað það væri leiðinlegt að skálinn
væri farinn að drabbast niður,“
segir Sveinn Friðrik Eydal Sveins-
son, félagi í Íslenska Alpaklúbbn-
um, en félagar í honum sóttu um
síðastliðna helgi fjallaskála í Tind-
fjöll sem færa á í upprunalegt horf.
„Það var farið að ræða um að
það þyrfti að gefa einhverjum skál-
ann sem hefði tök á að gera við
hann en við hringdum frá Kirg-
isistan inn á aðalfund Alpaklúbbs-
ins og sögðum að við ætluðum að
taka þetta að okkur,“ segir hann.
Sveinn segir hugmyndina að
skálanum hafa kviknað hjá Guð-
mundi Einarssyni frá Miðdal sem
hann kallar föður nútímafjalla-
mennsku á Íslandi auk þess sem
hann var fjölhæfur listamaður.
Um 1940 fór skíðafólk að flykkj-
ast upp í Tindfjöll um páska og ár-
ið 1945 byggðu Fjallamenn, fé-
lagsskapur Guðmundar, skálann.
„Seinna eignast Íslenski Alpa-
klúbburinn þennan skála en hann
er meðal fyrstu háfjallaskála á Ís-
landi og er enn mjög mikið not-
aður bæði af fjallamönnum og
björgunarsveitum. Þarna er magn-
að fjalllendi og sannkölluð vetrar-
paradís,“ segir Sveinn.
Hann segir að erfitt hefði verið
að gera við skálann þar sem hann
var svo ákveðið hafi verið að færa
hann til Reykjavíkur. „Um helgina
fórum við svo af stað með tvo
vörubíla og smágröfu, grófum frá
húsinu og stífuðum það af og það
var komið í bæinn innan við sólar-
hring eftir að við byrjuðum.“
Nú á eftir að finna heppilegan
stað fyrir skálann þar sem hægt er
að vinna við hann auk þess sem
viðræður standa yfir um styrki til
endurgerðarinnar. Öll vinna við
skálann er unnin í sjálfboðavinnu
og segir Sveinn markmiðið að skila
honum fullkláruðum á sama tíma
að ári. fifa@24stundir.is
Félagar í Íslenska Alpaklúbbnum gera við einn elsta háfjallaskálann
Skálinn kemur af fjöllum
Skálinn fluttur
Fjallamenn eiga hús
að vernda.