24 stundir - 13.08.2008, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir
Launþegar á vinnumarkaði
greiða iðgjald í lífeyrissjóð og fé-
lagsgjöld til verkalýðsfélaga af
vinnu sinni og öðlast með því móti
ákveðin réttindi sem eru samnings-
atriði í kjarasamningum hvers fé-
lags fyrir sig. Það er því mjög mik-
ilvægt að launamenn séu vel
upplýstir um sinn rétt, þegar að
töku lífeyris kemur við aldursmörk
eða þá ef viðkomandi þarf vegna
heilsubrests að leita sinna réttinda
fyrr. Almannatryggingakerfið,
Tryggingastofnun, hefur einnig að
geyma ýmis réttindi sem jafn
nauðsynlegt er að menn fái vitn-
eskju um frá hinu opinbera með
reglubundnum hætti.
Fólk veit ekki um sín réttindi
Því miður er misbrestur á því að
aldraðir og sjúkir hafi fengið upp-
lýsingar um þau réttindi sem þeir
eiga í lífeyrissjóðum sem og í al-
mannatryggingakerfinu. Ég tel að
ASÍ þurfi að stuðla að því að verka-
lýðsfélög kynni félagsmönnum sín
réttindi reglulega, og jafnframt þarf
að kynna almannatryggingalög-
gjöfina og hvers konar breytingar
mun betur en verið hefur. Ýmsar
stofnanir ganga að því sem gefnu
að allir geti leitað upplýsinga í
tölvutæku formi á netinu en þar
gleymist að þar hafa ekki allir að-
gang eða hafa nokkurn tímann
notað tölvur. Hér þarf annað hvort
að gefa út meira fræðsluefni, eða
nota miðla sem ná til alls almenn-
ings í landinu. Sjómenn geta til
dæmis hafið töku lífeyris eftir 25 ár
til sjós, við 60 ára aldur, þótt ellilíf-
eyrir almannatrygginga taki ekki
gildi fyrr en við 67 ára aldur en ekki
er ég endilega viss um að allir sjó-
menn viti um það atriði.
Forsenda þess að fólk fái notið
réttinda sinna er vitneskja um þau
hin sömu, og það er öllum til hags-
bóta að hver og einn þekki vel sín
réttindi sem þeir hafa áunnið sér.
Höfundur er þingmaður Frjálslynda
flokksins í Suðurkjördæmi
Fræðslu
þarf að bæta
UMRÆÐAN aGrétar Mar Jónsson
Því miður er
misbrestur á
því að aldr-
aðir og sjúkir
hafi fengið
upplýsingar
um þau rétt-
indi sem þeir eiga í lífeyr-
issjóðum sem og í al-
mannatryggingakerfinu.
Orkubúskapur heimsins tekur
nú um stundir talsverðum breyt-
ingum. Fjárfestingar í endurnýjan-
legum orkulausnum margfaldast
og sjá ríki og fjárfestar tækifæri í
vistvænum lausnum til framtíðar.
Á árinu 2006 var fjárfest í fyrirtækj-
um sem sérhæfa sig í endurnýjan-
legri orku fyrir 5680 milljarða ís-
lenskra króna og fer þessi tala
hækkandi. Fjölmörg verkefni eru
því í gangi á sviði endurnýjanlegra
orkugjafa sem munu m.a. stuðla að
því að dregið verði úr útblæstri á
gróðurhúsalofttegundum og vinna
þannig gegn hnattrænni hlýnun
jarðar.
Hagnaðaraukning álfyrirtækja
Til þess að ná slíkum árangri er
bent á að iðnríkin verði að draga úr
útstreymi gróðurhúsalofttegunda
um að minnsta kosti 30 prósent
fyrir árið 2020. Ríkisstjórn Íslands
ætlar hins vegar að gera alveg öfugt
við það sem er lagt upp með og
auka hér þátt mengandi iðnaðar.
Búið er að taka skóflustunguna að
álveri í Helguvík og stefnt er að ál-
veri að Bakka við Húsvík. Hvort ál-
ver um sig átti upphaflega að fram-
leiða 250.000 tonn af áli en
forstjóri Alcoa hefur nú þegar gefið
út að hann vilji helst reisa allt að
346.000 tonna álver ef nægjanleg
orka fæst fyrir Bakkaálverið. Það
segir okkur að þessi álver eru strax
orðin of lítil þó ekki sé byrjað að
reisa þau. Þessu til stuðnings er Al-
coa að auka álframleiðslu í álveri í
Sao Paolo úr 370.000 í 433.000
tonn á ári. Drifkraftur meiri frum-
framleiðslu á áli í heiminum er
tekju- og hagnaðarauking álfyrir-
tækjanna. Í þessu samhengi má
benda á að Bandaríkjamenn urða
ál á rúmlega tveimur mánuðum
sem nemur væntanlegri ársfram-
leiðslu álveranna á Bakka og
Helguvík.
Þjóðhagslega hagkvæmt
Mikil sóknarfæri eru í að nýta
auðlindir til hagsbóta fyrir okkur í
stað þess að halda áfram með stór-
iðjuuppbyggingu í anda ,,Lowest
energy prices“. Sem dæmi má
nefna að innan tveggja ára koma á
markað svokallaðir tengitvinnbílar
sem eru knúnir að mun meira leyti
rafmagni en bensíni og hægt verð-
ur að hlaða með venjulegri heim-
ilisinnstungu. Íslendingar flytja inn
eldsneyti og olíu fyrir rúmlega 25
milljarða og þess vegna væri það
ekki einungis umhverfisvænt held-
ur einnig þjóðhagslega hagkvæmt
og atvinnuskapandi verkefni að
taka þátt í að byggja upp starfsemi
varðandi orkugjafaskipti bílaflot-
ans. Spurning er hvar eigi að afla
orkunnar þegar þessi möguleiki
opnast fyrir landsmenn ef erlendir
auðhringir eru búnir að leggja
undir sig helstu orkulindir lands-
ins.
Skynsamlegir kostir
Mörg spennandi verkefni eru nú
á teikniborðinu á sviði endurnýj-
anlegra orkugjafa sem við getum
tekið okkur til fyrirmyndar. Í kon-
ungsríkinu Abu Dhabi hefur verið
lagður hornsteinn að borginni
Masdar þar sem öll orka, hvort sem
það er til heimilisnota eða til að
knýja samgöngutæki, mun koma
frá endurnýjanlegum orkugjöfum.
Fyrirtæki fjárfesta í rannsóknar-
setrum sem hjálpa til við þróun á
endurnýjanlegum orkugjöfum í
Masdar og við það skapast hundr-
uð starfa. Er rétt að halda áfram að
nota takmarkaðar orkuauðlindir
landsins í að byggja upp fleiri álver
eða væri ekki skynsamlegt að hug-
leiða aðra kosti í stöðunni?
Höfundur er náttúrufræðikennari
Orka og ál
UMRÆÐAN aÓlafur Örn Pálmarsson
Er rétt að
halda áfram
að nota tak-
markaðar
orkuauðlind-
ir landsins í
að byggja
upp fleiri álver eða væri
ekki skynsamlegt að hug-
leiða aðra kosti í stöð-
unni?
Álframleiðsla „Mikil sókn-
arfæri eru í að nýta auðlindir
til hagsbóta fyrir okkur.“
Í júlí og ágúst verða fjölmargir blaðberar verðlaunaðir fyrir að vera
kvartanalausir og stundvísir. Vinningar í hverri viku.
Sumarkap
phlaup
BT og 24-stunda
Upplýsingar um laus hverfi til afleysinga eða til framtíðar í síma
blaðadreifingar, 569-1440 eða í bladberi@mbl.is
Aðalvinning vikunnar MP3 spilari frá Sandisk hlýtur
Ingunn Katrín Jónsdóttir, Kleppsvegi 18, 105 Reykjavík
Eftirtaldir blaðberar fá DVD mynd af topplista BT
Benedikt Sigurleifsson, Laugarteig 29, 105 Reykjavík
Hallvarður Jón Guðmundsson, Karfavogi 34, 104 Reykjavík
Steinar Örn Erlendsson, Hæðargarði 5, 108 Reykjavík
Davíð Þór Þorgrímsson, Safamýri 23, 108 Reykjavík
Ísak Eldjárn Tómasson, Kerhólar 12, 800 Selfossi
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Mallorca
20. ágúst í 2 vikur
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til Mallorca 20. ágúst á einstökum
kjörum í 2 vikur. Mallorca er er ein perla Miðjarðarhafsins og hér nýtur
þú sumarsins til hins ítrasta í sólinni og traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða. Þú bókar flug og gistingu og 4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir.
Allra síðustu sætin!
Verð kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð. Stökktu tilboð 20. ágúst í 2 vikur.
frá kr. 49.990