24 stundir - 13.08.2008, Síða 19
24stundir MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 19
KYNNING
Margir foreldrar kannast við versl-
unina Exit en hún hefur verið
mjög vinsæl hér á landi undanfarin
ár eða allt frá árinu 1995 er versl-
unin var fyrst opnuð hér á landi.
Vinsældir Exit má ekki síst rekja til
þess að þar má fá frábærar vörur á
mjög góðu verði.
Exit hefur verið ört vaxandi fyr-
irtæki í heiminum og heldur nú
innreið sína á nýja markaði með
nýju nafni, Name It. Name It-
vörurnar hafa verið á boðstólum í
Exit fyrir börn á aldrinum 0-3 ára
og eftirleiðis munu allar verslanir
Exit í heiminum kallast Name It.
Name It mun því halda áfram að
selja vinsælan og flottan barnafatn-
að fyrir börn á aldrinum 0-12 ára
og þeirra helsti metnaður liggur í
að færa gleði, frelsi og þægindi inn
í líf barna.
Exit hefur verið starfrækt frá árinu
1986 en það er hluti af danska
stórfyrirtækinu Bestseller. Bestsell-
er starfrækir meðal annars Vero
Moda, Vila, Jack&Jones, Selected,
Outfitters Nation og fleiri fram-
úrskarandi fyrirtæki.
Lífrænt ræktuð fatalína
Í tilefni af nafnbreytingunni hef-
ur hin gullfallega Helena Christi-
ansen, ljósmyndari og fyrirsæta,
léð Name It krafta sína og hún
hannar nú frábæra fatalínu fyrir
Name It. Fatalínan hefur vakið
mikla lukku, ekki síst þar sem hún
er gerð úr lífrænt ræktuðu efni sem
er nýjung í þessum geira. Auk
þessa fer hluti af ágóða af Helenu
Christiansen-fatnaðinum til
Chernobyl-fórnarlambanna, þá
sérstaklega barna, en þetta málefni
er Helenu mjög hugleikið. Helena
Christiansen ljósmyndar sjálf allar
sínar vörur og þar er sonur hennar
Mingus í aðalhlutverki.
svanhvit@24stundir.is
Exit skiptir um nafn og heitir nú Name It
Gleði, frelsi og þægindi
Name It Falleg fatalína úr lífrænt ræktuðu efni.
Flestum foreldrum finnst af-
skaplega ánægjulegt að fara með
tilvonandi skólabarni að versla
pennaveski og ritföng en betra er
að bíða eftir tilmælum kennara. Í
mörgum skólum er haft það fyr-
irkomulag að ritföngin séu geymd
í skólunum. Það er gert til þess að
ritföngin gleymist aldrei og séu
alltaf á sínum stað og til að koma í
veg fyrir að nemendur keppist um
flottustu pennaveskin.
Bíðið eftir til-
mælum kennara
Börn þurfa að eiga góð ritföng
heima hjá sér til að vinna heima-
vinnu. Þrátt fyrir að hún sé ekki
mikil fyrstu árin í lífi barnsins er
gott að kenna börnum frá fyrstu
stundu að hugsa vel um vinnutæk-
in sín, blýantinn, litina, yddarann
og strokleðrið. Þrátt fyrir að skól-
inn haldi utan um ritföngin og
engin sérstök þörf sé á kaupum á
pennaveski er ágætis hugmynd að
hafa eitt slíkt heimavið.
Pennaveskin
heima
Hvernig er best að skapa góða siði,
aga og metnað til góðrar ástund-
unar í námi sem helst um árabil?
Foreldrar þurfa að gæta að því
ábyrgðarhlutverki að börnin vinni
heimavinnu sína. Best er að börnin
vinni heimavinnuna á svipuðum
tíma dag hvern, á sama stað og að
þau fái frið og nærveru foreldra
sinna. Þau verða að finna að námið
sé mikilvægt en einnig tilhlökk-
unar virði.
Hlýleg heima-
vinna