24 stundir - 13.08.2008, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir
Polarolje
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarma starfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Liðina
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verlsun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
og Melabúð
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur
Fiskbúðinni Trönuhrauni
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Marta María Sæberg, Týr Fáfnir
Stefánsson og Páll Bjarnason eru
öll að byrja í skóla nú í haust og
eiga það sameiginlegt að bíða full
eftirvæntingar eftir því að fyrsti
skóladagurinn renni loksins upp.
Blaðamaður ræddi við spenntu ný-
nemana og spurði þá út í biðina
löngu og ströngu og þeirra helstu
hugðarefni þessa dagana.
„Ég er að fara að byrja í Hlíða-
skóla,“ segir Marta María. „Ég
hlakka til að byrja í skólanum. Ég
fæ skólatösku sem ég get geymt lit-
ina mína í og svo er önnur taska í
töskunni ef ég þarf að fara og læra
sund.“ Marta María segist sér-
staklega spennt fyrir því að fara í
sund enda kunni hún að fara í kaf
og sé nýbúin að eignast forláta
froskalappir. „Ég get haldið í mér
andanum þegar ég fer í kaf!“
Páll andvarpar þegar blaðamað-
ur spyr hann hvort hann hlakki til
að byrja í Kópavogsskóla innan
skamms „Æi, þetta verður svolítið
erfitt, þú skilur það, er það ekki?“
spyr hann blaðamann. „Að byrja
að læra og svona,“ bætir hann við
þótt hann segist halda að það verði
stuð í frímínútum.Týr Fáfnir mun
hefja nám í Hofsstaðaskóla og hef-
ur augljóst jafnaðargeð. „Ég hlakka
til en ég kvíði líka smá fyrir,“ legg-
ur hann til málanna og segist
hlakka langmest til að læra að
reikna almennilega, hann kunni að
lesa og reyndar að reikna og skrifa
líka.
„Ég hlakka líka til að læra að
lesa, skrifa og reikna,“ segir Marta
María spennt. „Ég kann að lesa og
skrifa,“ segir Páll frá. „Ég lærði að
lesa þegar ég var fimm ára svo
hvarf það en núna er það komið
aftur,“ bætir hann við.
„Ég á bláa og rauða skólatösku
sem stendur McQueen á,“ segir
Týr Fáfnir. „Mín er blá og hún er
núna í geymslunni, ég verð að vera
fljótur að biðja mömmu að ná í
hana,“ segir Páll og biður ljós-
myndara að taka mynd af sér með
töskuna fínu.
„En hvað skyldi þau langa til að
verða þegar þau verða stór?“
Marta María segist helst langa
að verða flugfreyja eða slökkviliðs-
kona þegar hún er orðin stór. „Áð-
ur en ég varð til í maganum á
mömmu var hún flugfreyja og það
langar mig líka til að verða. Sér-
staklega svo ég geti farið og séð öll
dýrin í Ameríku. Ef ég verð ekki
flugfreyja þá verð ég slökkviliðs-
kona,“ segir Marta María. „Hef-
urðu séð The Incredibles,“ spyr
hún blaðamann í beinu framhaldi
og lýsir þar magnaðri senu sem
inniheldur brennandi hús og
hetjudáðir og blaðamaður getur
ekki annað en hrifist af framtíð-
arsýn ungrar konu um slökkviliðs-
störf.
„Ég ætla að verða flugmaður,“
segir Týr Fáfnir. „Mér finnst svo
skemmtilegt að vera í flugvél og
ferðast. En mér fannst reyndar
ekki skemmtilegt að fara til Sví-
þjóðar því þá fór ég í skipi og
gubbaði,“ bætir hann við.
„Ég er alveg óviss um hvað ég
ætla verða,“ segir Páll. Ég verð eitt-
hvað, ég veit bara ekki núna hvað
það verður,“ bætir hann hugsi við.
Páll og Týr Fáfnir eiga báðir vini
í hverfinu sem byrja með þeim í
skóla. Marta María segist ekki
þekkja marga en hún eigi frænku
sem sé mikill fengur í.
„Ég á stóra frænku sem er tíu
ára og ratar um allan skólann,“
segir Marta María Sæberg full
sjálfstrausts og hvergi bangin.
„Hún hjálpar mér líka stundum ef
strákar eru að stríða mér,“ bætir
hún við.
Marta María, Týr Fáfnir og Páll eru öll að springa úr tilhlökkun
Full eftirvæntingar
Fyrsti skóladagurinn
markar tímamót í lífi
barna og flest þeirra eru
full eftirvæntingar. „Ég á
stóra frænku sem er tíu
ára og ratar um allan
skólann,“ segir Marta
María Sæberg, full sjálfs-
trausts og hvergi bangin.
„Æi, þetta verður svolítið
erfitt, þú skilur, er það
ekki?“ spyr Páll Bjarna-
son. „Að byrja að læra og
svona,“ bætir hann við
þótt hann segist halda að
það verði stuð í frímín-
útum.
„Ég hlakka til en ég kvíði
líka smá fyrir,“ leggur Týr
Fáfnir til málanna.
Hlíðaskóli Marta María
hlakkar til og á stóra frænku
sem hún treystir á. .
Kópavogsskóli Páll er
hugsi yfir skólagöngunni
og þýðingu hennar en
hlakkar til að blanda sér í
frímínútnastuðið.
Hofsstaðaskóli Týr
Fáfnir er ansi flinkur en
hlakkar helst til að læra
að reikna meira.
Waldorfskólinn Sólstafir rekur
tvo leikskóla og einn grunnskóla í
Reykjavík. Skólinn er sérstakur að
því leyti að hann er sjálfstætt starf-
andi og hefur því ákveðinn sveigj-
anleika til framsækni í kennslu og
námsframboði þó svo að þar sé
auðvitað uppfyllt lögbundin skóla-
skylda.
„Það er þó nokkur munur á
Waldorf-stefnunni og öðrum skól-
um. Við leggjum t.d. jafnmikla
áherslu á bóknám og handverk og
við leggjum upp úr því að krakk-
arnir nái að vinna á öllum sviðum í
öllum námsgreinum, þ.e. lík-
amlega, tilfinningalega og hug-
lægt,“ segir Sigurbjörg Agnes Auð-
unsdóttir, kennari í skólanum.
„Listgreinar eru tengdar inn í allar
námsgreinarnar og við erum t.d.
ekki með hefðbundnar skólabækur
heldur vinnubækur sem þau búa
til alveg sjálf frá grunni. Hefð-
bundnu námsgreinarnar koma svo
fyrst inn á unglingastigi.“
Áhersla á frjálsan leik
Að sögn Sigurbjargar er lagt
mikið upp úr frjálsum leik hjá
nemendunum. Á það sérstaklega
við um sex ára bekkinn. Leikföngin
eru heldur ekki alveg hefðbundin.
„Við reynum að vera með fallega
hluti úr náttúrulegum efnum eins
og t.d. tré, en ekki úr plasti. Og
þetta á sérstaklega við á leik-
skólastiginu.“
Þar að auki er boðið upp á holl-
an og góðan mat og er þá ávallt um
að ræða lífrænt ræktað grænmet-
isfæði.
Grunnurinn að Waldorf-
uppeldisfræðinni var lagður á öðr-
um og þriðja áratug síðustu aldar
af austurríska náttúruvísinda-
manninum og heimspekingnum
Rudolf Steiner. Fyrsti skólinn var
stofnaður í Stuttgart árið 1919.
Takmark hans var að víkka út sjón-
deildarhring mannsins inn í innri
veruleika sinn.
haukurj@24stundir.is
Waldorfskólinn Sólstafir í Reykjavík
Framsækin kennsla
Börn að leik Mikil
áhersla er lögð á
frjálsan leik.