24 stundir


24 stundir - 13.08.2008, Qupperneq 22

24 stundir - 13.08.2008, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir Eftir Hauk Harðarson haukurh@24stundir.is „Krakkarnir hlakka mikið til að byrja í skólanum og ég mæli með því að foreldrarnir séu ekkert að slá á þá tilhlökkun. Ég geri ráð fyrir því að foreldrarnir séu búnir að segja krökkunum að þetta sé tals- verð breyting frá leikskólanum,“ segir Björn Pétursson, skólastjóri Melaskóla í Vesturbæ. Ekki setja of miklar kröfur „Þetta snýst allt um að vera já- kvæður gagnvart skólagöngunni og ekki setja of miklar kröfur eða væntingar á krakkana, hafa and- rúmsloftið frekar afslappað. Það á alls ekki að segja krökkunum að þau þurfi að vera orðin læs fyrir einhvern ákveðinn tíma. Best er að stilla væntingunum í hóf og leggja áherslu á að umhverfið sé jákvætt og að krökkunum líði vel. Það er aðalatriðið,“ segir Björn en í Mela- skóla er fyrsti skóladagurinn hjá sex ára börnum þannig upp- byggður að þau hitta umsjón- arkennarann og fara í viðtal ásamt foreldrum sínum. „Þar er strax byrjað að búa til þetta jákvæða andrúmsloft.“ Alltaf mikil tilhlökkun Björn segir að krakkarnir upplifi fyrsta skóladaginn mjög sterkt. „Maður sér tilhlökkunina í aug- unum á þeim. Þau koma með nýj- ar skólatöskur og það er allt klárt fyrir fyrsta daginn. Þeim finnst rosalega spennandi að vera komin í grunnskóla,“ segir Björn sem er að hefja sitt annað ár sem skóla- stjóri en hann hefur unnið í fjölda ára í Melaskóla sem kennari og að- stoðarskólastjóri. Gefur starfinu mikið gildi Björn bætir við að það gefi starf- inu mikið gildi að sjá ný andlit í skólanum á hverju ári. „Það er bara yndislegt að sjá nýja krakka á hverju ári í skólanum og það gefur starfinu alveg rosalega mikið gildi. Fyrsta árið er mikilvægasta árið því þá er grunnurinn byggður upp fyr- ir framhaldið. Við leggjum að sjálf- sögðu áherslu á alla árganga en það er rosalega mikils virði að það gangi vel í fyrsta bekknum og við leggjum mjög mikið upp úr því að það skapist strax jákvæð tengsl á milli kennaranna, foreldranna og barnanna. Að það séu allir með það á hreinu að við séum að vinna að hag barnanna. Það er númer eitt, tvö og þrjú,“ segir skólastjór- inn að lokum. Björn Pétursson, skólastjóri Melaskóla, hugsar um vellíðan barnanna Fyrsti bekkurinn sá mikilvægasti ➤ Björn Pétursson, skólastjóri íMelaskóla, segir að það sé mikilvægt að foreldrar byggi upp jákvætt andrúmsloft. ➤ Það er ekki æskilegt að setjakröfur um námsárangur barna í fyrsta bekk. ➤ Björn segir það gefa starfinumikið gildi að sjá ný andlit á hverju ári. FYRSTI BEKKURINNFyrsti skóladagurinn er stór dagur í lífi allra sex ára barna. Björn Pét- ursson, skólastjóri hins fornfræga Melaskóla, fer yfir það helsta sem for- eldrar barnanna þurfa að hafa í huga fyrir stóra daginn. Björn Pétursson, skólastjóri Melaskóla Mikilvægast að börnunum líði vel. „Ég man eftir fyrsta skóladeg- inum, ég hitti Gummu sem var fyrsti kennarinn minn og við lærð- um íslensku. Svo fórum við líka í myndmennt og bjuggum til hluti,“ segir Theodór Ásbjarnarson, átta ára nemandi í Smáraskóla í Kópa- vogi. Theodór er að fara í 3. bekk í haust en hvað skyldi honum hafa fundist skemmtilegast við að byrja í skólanum. „Það var skemmtileg- ast að kynnast krökkunum. Ég kynntist Ágústi, hann er núna besti vinur minn,“ segir Theodór. Var rosalega spenntur „Ég var rosalega, rosalega, rosa- lega, rosalega spenntur,“ segir Theodór og leggur áherslu á orð sín. Hann gat þó sofið nóttina fyrir fyrsta skóladaginn. „Ég gat nú al- veg sofið en ég var mjög spenntur þegar ég vaknaði. Ég man að ég var með Superman-skólatösku fyrir allt dótið mitt. Ég var með penna- veski, liti, regnföt og kuldaföt.“ Theodór byrjar eins og áður segir í 3. bekk í Smáraskóla í haust og það er ekki að merkja neinn skólaleiða hjá stráknum. „Ég er mjög spennt- ur að byrja í skólanum aftur. Það er alltaf gaman í skólanum, alltaf rosalega, rosalega, rosalega gam- an,“ segir þessi lífsglaði og hressi ungi herramaður að lokum. haukurh@24stundir.is Theodór Ásbjarnarson man ennþá eftir fyrsta skóladeginum Skemmtilegast að hitta krakkana Theodór Var rosa- lega spenntur fyrir fyrsta skóladaginn. Foreldrar verða að passa sig að falla ekki í þá gryfju að kaupa næstu stærð fyrir ofan núverandi skóstærð barnsins vegna þess að barnið mun „hvort sem er“ vaxa í þá stærð innan fárra mánaða. Góðir skór eru afar mikilvægir heilsu barnsins og þeir mega hvorki vera of þröngir né lausir. Fjárfesting í heilsu barnsins Barnsfætur eru mjög frábrugðn- ir fullorðinsfótum. Þeir eru öðru- vísi í laginu, beinin eru mýkri, vöðvar og liðamót eru að þroskast og fætur barna eru mun viðkvæm- ari fyrir þrýstingi. Ef of þröngir skór eru keyptir á barnið getur það valdið því að barnið svitnar óeðli- lega á fótunum sem getur leitt til vörtumyndunar, inngróinna tá- nagla og sveppasýkinga. Auk þess geta of þröngir skór valdið hælsæri og óeðlilegrar þróunar á fætinum. Hafa áhrif á göngulag Á hinn bóginn geta of stórir skór haft áhrif á göngulag barnsins og valdið almennum óþægindum við göngu. Skór sem passa ekki geta þar að auki haft áhrif á frammistöðu barna í íþróttum sem getur haft áhrif á sjálfsímynd barnsins. Það á líka við um knatt- spyrnuskó. Börn taka oft ekki eftir því þegar skór valda þeim óþæg- indum og því er mikilvægt að velja réttu skóna í samráði við sérfræð- inga. haukurh@24stundir.is Góðir skór sem passa vel eru lykilatriði Réttu skórnir mikilvægari en margir halda Góðir skór mikilvægir Það skiptir miklu máli fyrir heilsu barnsins að vera í góð- um skóm sem passa vel. Þessir skór hlytu ekki náð fyrir augum sérfræðinga. Auglýsingasímar: Katrín Rúnarsd. 510 3727 kata@24stundir.is Kolbrún Dröfn 510 3722 kolla@24stundir.is Í sérblaði 24 stunda um mat og matargerð sem kemur út föstu- daginn, 15. ágúst, kennir ýmissa grasa. Haustið er í nánd og börnin fara að taka upp úr skólagörð- unum.Við fræðumstumuppskeruá kartöflum og grænmeti og hvernig matreiða má þetta holla hrá- efni þannig að öllum líki. Berja- sprettan er góð og margt hægt að gera við bæði kræki- og bláber. Einnig er umfjöllun um svokallað hráfæði og blaðamaður prófaði ekta ,,brunch” á einum af nýjustu veitingastöðunum. Hafðu samband og fáðu gott pláss fyrir auglýsinguna þína Matu r 15. ágúst 2008 Sérblað 24 stunda Ókeypis -heim til þín - kemur þér við

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.