24 stundir - 13.08.2008, Side 23
24stundir MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 23
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is
frí legugreining
og fagleg ráðgjöf
á heilsu- og
sjúkradýnum
SuMArTilBOÐ 10-40% AfSláTTur
bylting í
SVefnlauSnum
eitt beSta úRVal landSinS á heilSudýnum
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Hér á Jörfa erum við í samvinnu
við Breiðagerðisskóla allt árið.
Við förum í heimsóknir til þeirra,
í kennslustundir og leikfimissal-
inn, sækjum leikrit og sýningar
og ýmsar skemmtanir,“ segir Sæ-
unn. „Þau koma líka til okkar í
heimsókn. Það er mikilvægt fyrir
þau að kynnast næsta skrefi í
námsferlinum vel.“
Sæunn leggur áherslu á að leik-
skólavistin sé skipulagt nám og
síðasta árið sé mikilvægt. „Við
köllum fimm ára börnin meist-
ara.Börnin eru að ljúka námi sínu
í leikskólanum og eru yngri börn-
unum mikilvægar fyrirmyndir.
Þau eru meistarar í leikskól-
anum.“
Að reima eða ekki reima?
„Það er ekki aðalmálið að
kunna að reima,“ segir Sæunn.
„Þó að auðvitað sé ágætt að
kunna það. Þetta er ekki vanda-
mál lengur það er bara hægt að
setja börnin í skó með frönskum
rennilás,“ bætir hún við. „Ég held
að áherslan ætti frekar að vera á
tilfinningalega þáttinn og á það
leggjum við áherslu hér. Lífsleikni
og tilfinningatjáningu,“ bætir hún
við. „Meistarastundir í Jörfa fela í
sér ótal margt fleira en samstarf
við grunnskóla, við höfum farið í
rannsóknarleiðangra út í náttúr-
una þar sem við höfum safnað
efnivið úr umhverfinu og rann-
sakað hann, förum í heimsóknir á
söfn, þjálfum börnin í að skilja
hugtök eins og þungt/létt, stór/
lítill, stærri en/minni en og svo
framvegis. Í lok maí förum við
svo með börnin í útskriftarferð á
Úlfljótsvatn .“
24stundir/Frikki
Útskrifar meistara í lok sumars Sæunn Elfa Karlsdóttir, leikskólastjóri
Jörfa, er í samstarfi við Breiðagerðisskóla.
Meistararnir í leikskólanum Jörfa
Ekki aðalmálið að
kunna að reima
„Við köllum fimm ára
börnin meistara og hér
fer fram meistarastarf,“
segir Sæunn Karlsdóttir,
leikskólastjóri í leikskól-
anum Jörfa, um und-
irbúning barna fyrir
grunnskólann. Sæunn
segir síðasta ár barna í
leikskóla fela í sér nám.
„Í leikskólanum fer fram
skipulagt nám með
áherslu á lífsleikni og til-
finningatjáningu.“
KYNNING
Þótt börn hafi alltaf gaman af að
fara í verslunarmiðstöðvar getur
erillinn stundum orðið heldur
mikill og foreldrar vilja þá fá
tækifæri til að sinna börnum sín-
um í ró og næði. Í Kringlunni
má finna fullkomna aðstöðu til
þessa á 3. hæð en þar er Hreiðr-
ið. Hreiðrið er notaleg aðstaða
þar sem foreldrum gefst tækifæri
til að sinna börnum sínum í ró
og næði, gefa þeim að borða og
skipta á þeim. Þar er öll aðstaða
til fyrirmyndar, mjúkir, þægilegir
sófar og púðar sem veita góðan
stuðning og henta vel fyrir
brjóstagjöf. Auk þess sem pela-
hitari er á staðnum. Skipti- og
salernisaðstaðan er einnig með
besta móti og þar er nægt rými
til að skipta á börnunum.
Í Hreiðrinu hefur líka verið
hugsað fyrir eldri börnunum og
þar eru leikföng og bækur fyrir
þau ásamt borði og stólum í
þeirra hæð. Eldri börnin geta því
lesið bækur og leikið sér á meðan
þeim yngri er sinnt. Fiskabúr og
plöntur skapa síðan hlýlegt and-
rúmsloft og gera Hreiðrið að
góðum stað til að slaka á enda
hefur Hreiðrið fengið mjög góð-
ar viðtökur hjá gestum Kringl-
unnar. Til að tryggja foreldrum
og börnum næði þarf sérstakan
aðgangslykil til að geta nýtt sér
aðstöðuna og má nálgast slíkan
lykil hjá öryggisvörðunum á 3.
hæð.
svanhvit@24stundir.is
Notaleg aðstaða í Kringlunni
Börnunum sinnt í næði
Hreiðrið Notaleg að-
staða fyrir foreldra sem
vilja sinna börnum sínum
í næði.