24 stundir - 13.08.2008, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir
Sláturfélag Suðurlands undirbýr
nú fjórða árið sitt með Hollt í há-
deginu, skólamáltíðir í grunn-
skólum. Elín Einarsdóttir er einn
af umsjónarmönnum skólamöt-
uneytanna og vinnur meðal annars
að því að útbúa matseðlana í sam-
vinnu við aðra starfsmenn. „Við
munum kynna 2-3 nýja rétti í vet-
ur en við eldum venjulegan heim-
ilismat sem þarf ekki mikið að
endurnýja. Við munum áfram
gæta þess að hafa nóg af fersku
grænmeti og ávöxtum en munum
bjóða upp á grófara brauð en áður
og fituminna kjötálegg,“ segir Elín.
Foreldrar kannast eflaust flestir við
að barnið komi ósátt heim vegna
þess að maturinn var ekki nógu
góður en að sögn Elínar tekur fyr-
irtækið út þá rétti sem mælast illa
fyrir. „Við buðum tvisvar upp á
eggjaköku sem krakkarnir vildu
ekki sjá og tókum við hana því út.
Það sama á við um nokkrar súpu-
tegundir þó að þær séu yfirleitt
vinsælar. Við pínum krakkana ekki
til að borða eitthvað sem þau
hafna á þennan hátt.“
iris@24stundir.is
Pína börnin ekki til að borða
Hollur matur í skólum
Skemmtilegt og hollt? Og tekur
engan tíma að smyrja? Í mörgum
skólum er boðið upp á heita máltíð
í hádeginu, slík máltíð kostar for-
eldra frá 7000 krónum á mánuði.
Máltíðin er ekki nóg fæði fyrir
barn heilan dag í skóla og foreldrar
þurfa að smyrja nesti ofan í börn
sín sem þau neyta fyrir hádegi og í
kaffitímanum. Sumir foreldrar
sleppa því að kaupa heita máltíð og
hafa því nóg að gera við að fram-
leiða hollt og gott nesti sem full-
nægir orkuþörf barnsins, er fjöl-
breytt og girnilegt!
En nestisframleiðslan vex mörg-
um í augum. Þrátt fyrir að í hádeg-
inu sé borið á borð á vegum skól-
ans óhollusta á borð við kakósúpu
sem inniheldur nánast engin nær-
ingarefni og bjúgu sem innihalda
mikið magn fitu og salts þá er blátt
bann lagt við sykruðum mjólk-
urvörum og ávaxtasöfum í nest-
isboxið. Tilmæli frá umsjón-
arkennurum eru að börn komi
með gróft brauð, vatn að drekka,
ávöxt og grænmeti. Enga óhollustu
takk! Foreldrar verða því að standa
sig. Betur en skólaeldhúsið sjálft!
Bento fyrir krakkana
Hér eru nokkrar tillögur að
skemmtilegri hollustu í nestisboxið
fyrir hugmyndasnauða og ráðvillta
foreldra þar sem stuðst er við að-
ferðir við að búa til bento. Bento er
tegund af japönsku nesti. Því er
pakkað í box sem hafa mörg hólf
með mismunandi mat í hverju
hólfi. Bento er ekki síður skreytilist
en matseld og krakkarnir opna
spenntir nestisboxið sitt og vekja
líklega mikla hrifningu félaga
sinna. Til að búa til bento-nesti
þarf nestisbox með hólfum fyrir
mismunandi rétti. Ef slíkt box er
ekki fyrir hendi má einfaldlega búa
til hólf með því hráefni sem er til
staðar eða múffuformum.
dista@24stundir.is
Nýjasta æðið í nestisframleiðslu foreldra
Bento-nesti!
Hreint skyr
með ávöxtum
Örlítið af van-
illusykri út á.
Eggert á grænu beði Börn-
um þykir ágætt að tína í sig ber
og smátómata.
Málamiðlun Nesti í bentostíl. Egg, jarðarber,
annanas, kirsuber, rúgbrauð og orkustöng.
Þegar börn hefja skólagöngu
sína hefst mikilvægt tímabil í lífi
þeirra og það er ekki síst vinunum
að þakka. Þótt vissulega eignist
börn vini í leikskóla þá er það oft
sem börn eignast sína fyrstu raun-
verulegu vini í grunnskóla. Oft er
það vinátta sem endist út lífið.
Þessir sömu vinir eru að sama
skapi oft traustustu vinirnir sem
standa með viðkomandi í gegnum
súrt og sætt.
Vinskapurinn sjálfur getur líka
verið ansi súr á stundum, sér-
staklega á þessum fyrstu árum.
Ákveðið þroskaferli
Það slettist því ansi oft upp á
vinskapinn og það er fullkomlega
eðlilegt. Oft er talað um að stúlkur
geti aldrei leikið sér þrjár saman
því þá er ein alltaf skilin út undan.
Hvort sem það er rétt eður ei er
það staðreynd að oft slettist upp á
vinskapinn og einhver ágreiningur
verður. Í þeim aðstæðum er mik-
ilvægt að börnin fái sjálf að leysa úr
sínum deilumálum, svo lengi sem
deilurnar eru ekki komnar á alvar-
legt stig. Börn þroskast mikið á því
að leysa sjálf úr lítilsháttar deilum
og læra sömuleiðis að meta hvert
annað að verðleikum. Þau læra að
öll eru þau ólíkir einstaklingar en
þrátt fyrir það geta þau vel átt skap
saman. Eins læra þau að virða til-
finningar hvert annars.
Orsök deilnanna
Þegar um alvarlegri deilur er að
ræða þurfa foreldrar jafnvel að
skipta sér af og reyna að aðstoða
við að leysa deiluna. Þá er mik-
ilvægt að vera hlutlaus og muna að
sjaldan veldur einn þá tveir deila.
Gott er að láta börnin ræða málið
út og kanna hvar orsök deilnanna
liggur. Oft getur verið gott að gera
þetta á hlutlausum og þægilegum
stað. Til dæmis má fara á veit-
ingastað eða skella sér í sund og
ræða málin í heita pottinum. Mik-
ilvægt er þó að gera ekki lítið úr
vandanum því þó hann sé smá-
vægilegur í augum fullorðna fólks-
ins getur hann verið grafalvarlegur
hjá sex ára gömlum börnum. Þótt
svona lagað komi upp á er tilvalið
að brýna fyrir börnunum að þrátt
fyrir alla misklíð þá séu þau vinir
og það muni ekki breytast. Þótt
þetta geti alltaf verið leiðinlegt
tímabil í lífi flestra barna má ekki
gleymast að reynsla sem þessi er
mikilvæg öllum börnum og þetta
er ákveðið þroskaferli sem þau
þurfa að ganga í gegnum.
svanhvit@24stundir.is
Sannur vinskapur hefst oft í grunnskóla
Vinir í gegnum súrt og sætt
Súrsætur vinskapur Öll
börn lenda upp á kant við
vini sína en þau læra af því
að leysa úr vandanum.
Nýr TT flokkur og ný tímasetning
í hinu sívinsæla
“Toppi til Táar„ námskeiði
Nýir tímar kl: 10:15 og 10:30 – þrisvar í viku – mán – mið – fös – barnapössun
Ekkert lát hefur verið á aðsókn á þetta frábæra aðhaldsnámskeið okkar og höfum því bætt
nýjum tímum við.
- Þessir tímar ættu meðal annars að höfða sérstaklega til hinnar heimavinnandi mömmu
og því bjóðum við einnig upp á barnapössun á þessum tímum.
Staðurinn - Ræktin
telpurS onuK r
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732
jsb@jsb.is • www.jsb.is
Nýtt Nýtt!
Aðrir tímar í boði: • 6:15 – mán, mið, fös • 6:15 - þri, fim, lau (9:30) • 7:20 - mán, mið, fös
• 10:15 - mán, mið, fös •12:05 - mán, mið, fös - barnapössun • 14:20 - mán, mið, fös
• 16:40 - mán, mið, fös - barnapössun • 17:40 - mán, þri, fös - barnapössun
• 19:20 - mán, mið, fim (19:45)