24 stundir - 13.08.2008, Side 26

24 stundir - 13.08.2008, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir Eftir Hildi E. Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Leikritið Vinir eftir Símon Birgis- son verður frumsýnt í gömlu síld- arverksmiðjunni á Djúpavík næst- komandi föstudag. Hópurinn sem stendur að sýningunni kallar sig Kreppuleikhúsið og samanstendur af leikurunum Vigni Rafni Val- þórssyni, Þórunni Örnu Kristjáns- dóttur og Walter Geir Grímssyni, búningahönnuðinum Judith Amalíu Jóhannsdóttur, leikmynda- hönnuðinum Hlyni Páli Pálssyni og leikstjóranum Þorleifi Erni Arn- arssyni. Að sögn Þorleifs ber hóp- urinn nafn með rentu. „Þetta heitir Kreppuleikhúsið af því að það er kreppa og skilyrði fyrir því að taka þátt var að gefa vinnuna sína. Það hefur hingað til ekki verið mikil krafa á ríkið að veita meira fé í listirnar af því að einkafyrirtækin áttu að sjá um það. En í ljósi þess að nú er komin kreppa eru einkafyrirtækin hætt að verja eins miklu fé í listirnar og þá þarf listsköpun bara að eiga sér stað þar sem fólk gefur vinnuna. Við er- um kreppan,“ segir hann. Krefjandi spurningar Leikritið fjallar um þrjár mann- eskjur sem voru góðir vinir á menntaskólaaldri, en svo átti sér stað atvik þar sem tvö þeirra sviku þann þriðja. „Þetta fjallar í raun um lífslyg- ina. Áhorfendur hitta þremenn- ingana núna, löngu seinna, og þau hafa hvorki horfst í augu við þetta atvik né afleiðingar þess á líf þeirra. Tvö þeirra hófu ástarsamband upp úr þessum atburði, en af því að grunnur ástarsambandsins er byggður á þessum svikum er í raun búið að grafa undan öllum sam- skiptum þeirra. Við köstum þarna fram ýmsum spurningum. Eru samskipti, sem eru byggð á blekk- ingum, raunveruleg samskipti? Og ef maður er búinn að byggja líf sitt á blekkingu, þolir það þá dagsljós- ið?“ segir Þorleifur. Leikritið verður frumflutt á svo- kölluðum Djúpavíkurdögum, sem fram fara um helgina. „Símon skrifaði verkið að hluta til hjá þeim yndislegu hjónum, Evu Sigur- björnsdóttur og Ásbirni Þorgils- syni, sem reka þar hótel. Þar sem þau lögðu sitt á vogarskálarnar fannst okkur þau eiga það inni hjá okkur að við færum til þeirra og frumsýndum verkið þar,“ útskýrir Þorleifur. Hann segir gömlu síldarverk- smiðjuna vera tilvalda fyrir sýn- ingu Kreppuleikhússins. „Á sínum tíma var ofsalegur uppgangur og allir að vinna í síld og þá voru byggðar síldarverksmiðjur á hverju horni. Síðan hvarf síldin bara rétt eins og gjaldeyririnn núna í dag. Þess vegna er svo upplagt að fara í þessa táknmynd um þær sam- félagsbreytingar sem urðu þegar síldin, silfur hafsins, hvarf, og end- urtaka leikinn núna þegar það er krónan sem er horfin.“ Aðspurður segist Þorleifur telja meiri líkur en minni á því að Kreppuleikhúsið eigi eftir að vinna saman að fleiri verkefnum í fram- tíðinni, enda hafi samstarfið geng- ið mjög vel. „En við einbeitum okkur auðvitað að einu verkefni í einu og við ætlum að sjá hvernig þetta gengur,“ segir hann. Sjálfur er hann nýútskrifaður frá hinum virta Ernst Busch-leik- stjórnarskóla í Berlín. „Svo var ég að klára uppsetningu á verkinu Ge- gen die Wand í þjóðleikhúsinu í Mecklenburg sem gekk vonum framar. Ég á eftir að gera útskrift- arsýningu í skólanum og er að fara að skrifa hana. Skrifdraugurinn kallar óneitanlega á mann, ekki síst þegar maður er að vinna með svona glænýtt íslensk leikrit.“ Þorleifur Örn „Allir í Kreppu- leikhúsinu gefa vinnuna.“ Kreppuleikhúsið sýnir nýtt íslenskt leikrit Við erum kreppan Nýtt íslenskt leikrit, Vinir eftir Símon Birgisson, lít- ur dagsins ljós á Djúpavík næstkomandi föstudag. Að sýningunni stendur Kreppuleikhúsið sem ber nafn með rentu. ➤ Var tilnefndur til Grímuverð-launanna árið 2007 fyrir leik- ritið Eilíf hamingja sem hann skrifaði ásamt Andra Snæ Magnasyni og leikstýrði. ➤ Er að fara að setja upp leik-ritið um Rómeó og Júlíu í St. Gallen í Sviss. ÞORLEIFUR Mál og menning hefur sent frá sér nýja spennusögu, Svartnætti, eftir metsöluhöfundinn Michael Connelly í þýðingu Brynhildar Björnsdóttur. Þegar smáglæpa- maðurinn Edward Gunn finnst myrtur hittast Terry McCaleb, fyrr- verandi rannsóknarmaður alríkis- lögreglunnar, og útbrunni sérfræð- ingurinn Harry Bosch. Bosch sérhæfir sig í rannsókn á hættu- legum glæpamönnum en virðist ekki lengur greina mun á réttu og röngu. Á morðvettvangi eru fjöl- margar vísbendingar sem benda beint til hans. Fyrir vikið dregst McCaleb inn í margbrotna og óvænta atburðarás. Tekst honum að leysa ráðgátuna? Michael Connelly er einn vin- sælasti spennusagnahöfundur heims. Áður hafa verið þýddar á ís- lensku þrjár skáldsögur eftir hann, Skáldið (2004), Blóðskuld (2005) og Englaflug (2006). Svartnætti er frumútgefin í kilju. Svartnætti í kilju LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Eru samskipti, sem eru byggð á blekkingum, raunveruleg samskipti? menning Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 www.belladonna.is Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Stærðir 40-60 990-2990 kr. slár Útsala 30-50% afsláttur 25% a ukaafs láttur af útsö luvöru m Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík Sími: 591 9000 · www.terranova.is Akureyri sími: 461 1099 Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 - 4 í íbúð í viku. Sértilboð 31. ágúst og 7., 14. eða 21. september. Aukavika kr. 15.000. Sértilboð á Planetarium Village - glæsileg gisting! Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Aðeins örfáar íbúðir í boði! Bibione í ágúst og september frá kr. 49.990 Terra Nova býður einstakt tilboð á gistingu á Planetarium Village 31. ágúst og í brottförum í september. Glæsilegt nýtt íbúðahótel á Bibione ströndinni stutt frá miðbænum. Frábær aðbúnaður og einstaklega fallegar og glæsilegar íbúðir þar sem hvergi hefur verið til sparað. Stórt sundlaugasvæði með frábærri aðstöðu, móttöku, sundlaugarbar og skemmtilegu leiksvæði fyrir börnin. Skemmtidagskrá í boði. Góð eldunaraðstaða, öryggishólf, gervihnattasjónvarp, loftkæling o.fl í öllum íbúðum. Frábær gistivalkostur á ótrúlegum kjörum! Bibione er sannkölluð paradís, fyrir fjölskyldur jafnt sem einstaklinga, með einstak- ar strendur, frábæra veitingastaði og fjölbreytta afþreyingu.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.