24 stundir - 14.08.2008, Síða 1

24 stundir - 14.08.2008, Síða 1
24stundirfimmtudagur14. ágúst 2008153. tölublað 4. árgangur . . . þjónusta í þína þágu Kjúklingatilboð 30% a fsláttu r um he lgina bringur, heill, læri og leggir Melabúðin Hagamel Reykjavík Þín verslun Seljabraut Reykjavík Spar Bæjarlind Kópavogi Kassinn Norðurtanga Ólafsvík Kostur Holtsgötu Njarðvík BILALAND.IS GRJÓTHÁLSI 1 & SÆVARHÖFÐA 2 FINNDU RÉTTA BÍLINN Á WWW.BILALAND.IS! Á nýja vefnum okkar, bilaland.is, geturðu fundið nákvæmlega þann bíl sem þú leitar að með einfaldri leit. Þú gramsar og rótar og færð allar upplýsingar um hvern bíl og skoðar fjölda mynda áður en þú kemur á staðinn - þannig verða bílakaupin miklu markvissari. Hinn 17 ára gamli Bliki, Jóhann Berg Guðmundsson, hefur báða fætur á jörðinni þrátt fyrir að hafa slegið í gegn í Landsbankadeild- inni í sumar. Ungur og efnilegur VIÐTAL»32 Hjálmar Ævarsson segir að skot- veiðimenn séu mun meðvitaðri um veiðiskapinn en áður var. Margir taka þátt í skotveiðimóti um helgina þar sem þeir geta æft sig í skotfimi. Æfing fyrir skotveiði ÚTIVIST»28 »14 12 12 16 12 12 VEÐRIÐ Í DAG »2 Áhugi á þríþraut vex hægt en stöð- ugt hér á landi. Æ fleiri Íslendingar taka þátt í járnkarlinum sem er lengsta og erfiðasta þrí- þrautin. Áhugi á þríþraut »26 Bjarni Gunnar Kristinsson, yf- irkokkur á Grillinu og margverð- launaður matreiðslumeistari, gefur lesendum góð grillráð og uppskriftir. Flott á grillið Ívar Örn Sverrisson hyggst blanda saman „parkour“, hjólabrettabruni og Shakespeare í nýrri uppsetn- ingu á hinu klassíska verki Óþelló. Jaðarútgáfa af Óþelló »38 NEYTENDAVAKTIN »4 Eyðing geit- unga misdýr Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Gildissvæðum bílastæðakorta íbúa miðborgarinnar verður fjölgað úr þremur í átta, þau munu kosta 6.000 krónur árlega í stað 3.000, hver íbúð mun einungis fá eitt kort og bann verður sett á útgáfu slíkra korta til atvinnubifreiða og annarra stærri bíla. Tillaga um endurskoðun þeirra reglna sem gilda um kortin var samþykkt ein- róma í umhverfis- og skipulags- ráði Reykjavíkur á þriðjudag en á eftir að fara fyrir borgarráð. „Við erum að skerpa á því sem við höfum verið að reka okkur á,“ segir Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs. „Hugmyndin að baki þessum íbúakortum er sú að fólk geti lagt fyrir utan heimili sitt. En eins og þetta var gat fólk lagt hvar sem er á mjög stóru svæði í miðborginni. Gamla B-svæðið náði til dæmis frá Þverholti niður að Lækjartorgi. Þá eru stæðin yfirfull allan daginn vegna þess að fólk þarf ekkert að borga.“ Verið að losna við svindlara Við breytinguna verður þeim sem nálgast íbúakort án þess að búa í miðborginni gert mun erf- iðara fyrir. Þannig fær meðeigandi bifreiðar ekki slíkt nema aðrir meðeigendur eigi sama lögheimili. Þá þarf umsækjandi að vera skuldlaus við Bílastæðasjóð. Kolbrún segir allt of mikið vera um það að fólk sveigi reglur til að fá frí stæði. Með breytingunum verði komið í veg fyrir það. Hún er einnig mjög ánægð með að hömlur verði settar á að ákveðnar tegundir bifreiða fái kortin. „Hummer er til dæmis of langur í bílastæði í þessum þröngu götum og tekur auk þess tvö slík. Ef við ætlum að vera með miðborg með nítjándu aldar götumynd þá er ekki pláss fyrir svona bíla.“ Fá ekki kort í stæði fyrir stóru bílana  Bílastæðakort miðborgarbúa munu gilda á þrengra svæði  Kostnaður tvöfaldast ➤ Bílastæðakort íbúa munukosta 6.000 í stað 3.000 áður. ➤ Svæðin sem hverjum íbúa erheimilt að leggja á þrengjast mjög. BOÐAÐAR BREYTINGAR TILLAGA AÐ NÝRRI SVÆÐASKIPTINGU BÍLASTÆÐAKORTA ÍBÚA MIÐBORGAR A* 24stundir/bms *Nýtt A-svæði nær frá Landakoti, niður Túngötu, Garðastræti, Öldugötu, Bárugötu, Ránargötu og Vesturgötu. Heimild: Bílastæðasjóður C E G H F D B Svæðaskipting í dag Ný svæðaskipting Þeim sem hljóta óskilorðsbundna refsingu sem er meira en þriggja ára fangelsi hefur fjölgað gífurlega á undanförnum árum. Fjöldi kyn- ferðisbrotamanna hefur fjórfaldast. Fleiri dvelja lengi í fangelsi »4 Snarræði flugmanns Iceland Ex- press bjargaði lífi konu um þrítugt, sem missti meðvitund á leiðinni frá Barcelona til Íslands. Sjálfur segist flugmaðurinn ekki hafa drýgt hetjudáð. Snarræði bjarg- aði mannslífi »2 Dómsátt náðist í deilu um vega- framkvæmdir við Lund 1 í Kópa- vogi. Umdeilt hringtorg verður minnkað og fært sex metrum fjær íbúðablokk. Íbúar segj- ast sáttir við lausnina. Hringtorgið minnkað og fært »6 Útblástur á gróðurhúsaloftteg- undum vegna bíla í Reykjavík hef- ur aukist um 54% frá árinu 1990. Þá hefur bílum fjölgað um 71% á sama tímabili og um 41% á hverja 1000 íbúa. 54% aukning á útblæstri bíla »8 »27

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.