24 stundir - 14.08.2008, Blaðsíða 6

24 stundir - 14.08.2008, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 24stundir Smiðjuvegi 5 + Höfðabakka 3 + Borgartúni 29 + Akureyri skólavörubúðin þín... www.a4.is Þú verslar skólavörur fyrir 5.000 kr. og við gefum þér miða í bíó Gísli Marteinn Baldursson borg- arfulltrúi ætti að fá tæpar 217 þús- und krónur á mánuði, sem borg- arfulltrúi sem situr ekki í neinni nefnd. Gísli Marteinn hefur ákveðið að fara í árslangt meistaranám í borgarfræðum við Edinborgarhá- skólann, en hann hyggst útskrifast með BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands í haust. Mun Gísli af þessum sökum hætta í borg- arráði og láta af nefndarstöfum. Hann mun þó áfram sitja sem borgarfulltrúi, og fljúga á borgarstjórnarfundi sem haldnir eru tvisvar í mánuði nema yfir sumartímann. Samkvæmt samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg eru grunnlaun borgarfulltrúa 80% af þingfararkaupi, en þingfarakaup er 541.720 krónur. Sitji borgarfulltrúi ekki í nefnd skerðast laun hans um 50%, sem gera 216.688 krónur í mánaðarlaun. Gísli Marteinn svaraði ekki símhringingum 24 stunda í gær. hos Um 200 þúsund á mánuði Tilaga um lagningu Mýrargötu og Geirsgötu í stokk verður ekki á dagskrá borgarráðs í dag en henni var frestað á síðasta fundi. Á sama fundi lagði borgarráðs- fulltrúi Vinstri grænna fram fyr- irspurnir varðandi fjármögnun og nauðsyn framkvæmdarinnar, en gert er ráð fyrir að kostnaður vegna hennar nemi að minnsta kosti 12 milljörðum króna. ejg Borgarráð fjallar ekki um stokk Rauði kross Ís- lands hefur sent 6 milljónir króna vegna neyð- arbeiðni Alþjóða Rauða krossins vegna aðgerða í kjölfar átakanna í Georgíu. Neyðarbeiðnin hljóðar upp á 600 milljónir íslenskra króna (8 millj- ónir svissneskra franka) og verð- ur fénu varið til að aðstoða tug- þúsundir manna sem hafa orðið verst úti í átökunum milli herliða Georgíu, Suður-Ossetíu og Rúss- lands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum. 6 milljónir í að- stoð til Georgíu Vinnustundirnir í hverri viku geta orðið miklu fleiri en 40 ef um mikið sjálfræði og sveigjanleika í starfi er að ræða, að sögn Guðbjargar Lindu Rafnsdóttur, dós- ents í félagsfræði við Háskóla Íslands. „Það var lögð rannsókn fyrir alla ríkisstarfsmenn ár- ið 2006. Til að fá meira kjöt á beinin tókum við viðtöl við akademíska starfsmenn þar sem þeir hafa mikið sjálfræði í vinnu. Þeir geta nokkurn veginn ráðið því hvar þeir undirbúa kennsluna og hvar þeir sinna rann- sóknum. Þeir eru ekki bundnir á klafa skrifstofutíma. Þeir eru ánægðir með þetta fyrirkomulag en vinna hugsanlega of mikið,“ segir Guðbjörg Linda. Viðmælendur rannsóknaraðila kváðust vinna mikið á kvöldin og um helgar og jafnvel næturnar þótt þeir færu á skrifstofuna sína að deginum. „Fólk sagði áreit- ið á vinnustaðnum mikið á vinnutíma. Við slíkar að- stæður er oft erfitt að sinna skrifum og rannsóknum. Margir nýta tækifærið og vinna heima en við slíkar að- stæður er oft erfitt að setja mörk og þá er hætta á að vinnan flæði yfir fjölskyldulífið og frítímann,“ bendir Guðbjörg Linda á. ingibjorg@24stundir.is Niðurstöður rannsóknar á sjálfræði og sveigjanleika í starfi Hætta á of mikilli vinnu 24 stundir/Árni Sæberg Háskóli Íslands Sveigjanleikinn getur verið mikill. Stjórn Læknafélags Íslands lýsir yfir stuðningi við ljósmæður í bar- áttunni fyrir leiðréttingu á launa- töflu í samræmi við menntunar- og hæfniskröfur ríkisins. „Efnislega erum við að berjast fyrir því sama í okkar kjarabar- áttu,“ segir Birna Jónsdóttir for- maður Læknafélags Íslands en tek- ur fram að félagsmenn hafi fellt samning um flata krónutöluhækk- un í síðasta mánuði. „Við teljum að grunnlaun lækna, miðað við sex ára háskólanám, vera skammarlega lág,“ segir hún og bætir við að því séu þau sammála ljósmæðrum. Birna tekur fram að samninga- nefndir beggja aðila þurfi að meta stöðuna og funda aftur. „Við mun- um að sjálfsögðu skoða tillögur að aðgerðum ef ekki semst, hugsan- lega verkfallsaðgerðum,“ segir hún og bætir við að allar hugmyndir um aðgerðir fari fyrst í atkvæða- greiðslu á meðal félagsmanna. „En við viljum fyrst og fremst reyna semja og við höfum óskað eftir samningafundi,“ segir hún. asab@24stundir.is Berjast fyrir því að menntun, hæfni og ábyrgð metist til launa Styðja ljósmæður í baráttunni 24stundir/Golli Læknar Rétta fram samningshönd eftir að hafa hafnað flatri krónutöluhækkun Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Dómsátt hefur náðst í deilunni um vegaframkvæmdir við Lund 1 í Kópavogi. Íbúarnir voru ósáttir við hversu nálægt húsinu ný akrein Nýbýlavegar skyldi hafa verið lögð og fengu lögbann á framkvæmd- irnar. „Okkar krafa var að farið yrði að skipulagi og það náðist. Það er bú- ið að koma veginum inn í skipulag- ið og hringtorgið verður fært frá húsinu eins og skipulag kveður á um. Íbúar eru sáttir við þessa lausn mála og það er ástæða fyrir alla til að fagna,“ segir Aðalsteinn Hall- grímsson, fyrrverandi formaður húsfélagsins að Lundi 1. Hringtorgið minnkað Lögbannið sem íbúarnir fengu sett á vegaframkvæmdirnar við húsið átti að standa þar til staðfest- ingarmál yrði dómtekið í næsta mánuði. Nú verður hringtorgið hins vegar minnkað og færist því um sex metra frá horni hússins, að því er Steingrímur Hauksson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Kópavogsbæjar, greinir frá. Tuga milljóna kostnaður Strætisvagnabiðstöð verður jafn- framt færð aðeins fjær húsinu auk þess sem gönguleið sem liggur meðfram húsinu að sunnan verður færð norður fyrir húsið. „Það á einnig að ganga frá hljóð- vist eins og gert var ráð fyrir í for- sendum skipulagsins. Skilin milli bílaumferðar og göngu- og hjól- reiðastíga verða betri en gert var ráð fyrir. Þetta er nú orðið vist- vænna,“ greinir Aðalsteinn frá. Steingrímur Hauksson segir ekki búið að endurreikna kostnaðar- auka vegna breytinganna. „Við töl- uðum um 30 til 50 milljónir í upp- hafi. Við höfum ekki endurreiknað þetta á ný.“ Íbúarnir höfðu sigur í deilunni  Hringtorgið verður minnkað og færist þess vegna um sex metra frá Lundi 1  Svæðið vistvænna  Kostnaður tugir milljóna Nýbýlavegur Liggur nú alveg við Lund 1. ➤ Lögmaður íbúa Lundar 1 íKópavogi, Sigurður G. Guð- jónsson, sagði landslags- arkitekta hafa komist að því að hringtorgið við húsið væri næstum sex metrum nær húsinu en það ætti að vera samkvæmt deiliskipulagi. LAGNING NÝBÝLAVEGAR

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.