24 stundir - 14.08.2008, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 24stundir
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
30 bitar
2.930 kr.
20 bitar
2.650 kr.
FERSKT
EINFALT&
ÞÆGILEGT
PANTAU SÓMAVEISLUBAKKA
Pantaðu í síma5656000eða á www.somi.isFrí heimsending*
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
Útblástur koltvírsýrings (CO2) frá
bílaumferð í Reykjavík hefur auk-
ist um 54 prósent frá árinu 1990.
Þetta kemur fram í samantekt
sem ráðgjafarfyrirtækið Alta gerði
fyrir umhverfis- og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar og kynnt var
fyrir umhverfis- og samgönguráði
á þriðjudag. Þar kemur einnig
fram að fólksbílum hefur fjölgað
um 71 prósent.
Þarf að bæta strætó
Þorleifur Gunnlaugsson borg-
arfulltrúi situr fyrir Vinstri græn í
umhverfis- og samgönguráði.
„Mengun er að aukast mjög mik-
ið í borginni og það er mjög mik-
ilvægt að borgarfulltrúar líti þetta
mjög alvarlegum augum og taki
þetta föstum tökum,“ segir hann
og bætir við: „Það er mjög athygl-
isvert að í skýrslunni kemur fram
að fimm farþegar í strætó menga
álíka og fjórir einkabílar. Það seg-
ir okkur hvað sé best að gera, sem
er að bæta almenningssamgöng-
ur.“
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
á einnig sæti í nefndinni. „Öll
þessi mál, eins og Strætó og þessi
grænu mál sem við höfum verið
að vinna að, eru auðvitað til þess
að mæta þessari auknu bílaeign
sem er auðvitað aðalmálið,“ segir
hún og bætir við: „Við erum mjög
meðvituð um þetta og við erum
að skoða hvernig við getum hvatt
fólk meira til þess að fara leiðar
sinnar á annan máta.“
Misskilningur á milli fulltrúa
Þorleifur telur það vera óheppi-
legt að á sama fundi og skýrslan
var kynnt skuli hafa verið kynntar
hugmyndir um niðurskurð á
þjónustu Strætó. „Svo er líka ver-
ið að tala um að gera stokk undir
Geirsgötu og Mýrargötu upp á 12
milljarða króna sem mun einkum
þjóna einkabílum,“ segir hann og
bætir við: „Menn geta rétt ímynd-
að sér hvað hægt er að gera við 12
milljarða til þess að efla almenn-
ingssamgöngur borgarinnar.“
Þorbjörg Helga segir Þorleif
vera að misskilja. „Það er ekki rétt
að tala um niðurskurð. Við erum
að fara að setja meiri pening í
Strætó til þess að mæta hærra ol-
íuverði og auknum kostnaði
vegna lækkandi gengis krónunnar.
Almennt ætlum við að skoða
hvernig hægt er að hagræða en
jafnframt bæta við framlög,“ segir
hún og bætir við: „Það sem við
erum að gera með stokknum er
að bæta aðgang gangandi og hjól-
andi á milli tónlistarhússins og
miðbæjarins í stað þess að hafa
þunga umferð í gegn.“
Útblástur hefur
aukist um 54%
Ný skýrsla um útblástur gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík
Hún sýnir að hann hefur aukist um 54% frá árinu 1990
➤ Í skýrslu Alta kemur fram aðmikið hafi dregið úr akstri hjá
Strætó árin 2006 og 2007.
➤ Þá kemur fram að 4 farþegar ístrætó menga jafn mikið og 4
einkabílar.
➤ Meðalbensínbíll losar 251g/km af CO2 á hvern kílómetra.
Borgin skilgreinir þá bíla sem
losa 120 g/km eða minna sem
visthæfa.
➤ Markmið íslenskra stjórn-valda er að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda um
50-75% fyrir árið 2050, miðað
við 1990.
➤ Þyngd og afl nýskráðra bens-ínbíla virðist vera að aukast
að meðaltali.
➤ Hlutfall dísilbíla hefur aukistnokkuð.
ÚTBLÁSTUR Í REYKJAVÍK
CO2 ÚTBLÁSTUR Í REYKJAVÍK ÁRIN 1990 OG 2007
Fólksbílar
1990 2007
164.037 tonn 258.383 tonn
58% aukning
Strætisvagnar
1990 2007
6.955 tonn 5.476 tonn
22% minnkun
Fólksbílum hefur fjölgað um 71% í Reykjavík frá
árinu 1990. Þá voru þeir 46.653, eða 478 á
hverja 1000 íbúa. Árið 2007 voru þeir
79.562, eða 676 á hverja 1000 íbúa
sem er 41% aukning.
24
st
un
di
r/
bm
s
Lilja Björk Sigurdórsdóttir, blað-
beri Árvakurs, hlaut stafræna
myndavél frá
Olympus sem
viðurkenningu
fyrir framúrskar-
andi blaðburð í
júlí. Lilja Björk
ber út blöðin í
Teigaseli og Ysta-
seli í Breiðholti.
Í júlí og ágúst hefur dreifing-
ardeild Árvakurs verið í samstarfi
við BT með sumarkapplaup hjá
blaðberum sínum.
Í hverri viku þessa tvo mánuði
hljóta sex kvartanalausir og
stundvísir blaðberar ýmsa vinn-
inga. Einn blaðberi hvors mán-
aðar fær veglega viðurkenningu
fyrir góðan árangur. kyg
Framúrskar-
andi blaðberi
„Ég er ótrúlega spenntur,“ segir
Elfar Pétursson, tvítugur Kínaf-
ari, en tekur fram að hann hafi
áður búið í Asíu. „Þá var ég í
skiptinámi í Malasíu og bjó hjá
kínverskri fjölskyldu.“ Elfar heill-
aðist af menningunni og ákvað
því að læra kínversku.
„Við erum tveir tvítugir í hópn-
um af sjö nemendum sem för-
um,“ segir hann en hópurinn er á
öðru ári í austur-asíufræðum við
Háskóla Íslands. Nemendurnir
læra í níu mánuði kínversku í
borginni Ningbo en þar búa um
fimm milljónir manns. „Við er-
um að læra sögu Kína. Landið er
búið að taka ákveðnum breyt-
ingum frá því sem áður var, þó
enn sé langt í land til dæmis í
mannréttindamálum.“ áb
Hópur háskólanema flytur til
Ningbo í Kína nú í september
„Það hafa ekki farið fram form-
legar viðræður við Óskar,“ segir
einn viðmælandi 24 stunda sem
er í borgarstjórnarflokki Sjálf-
stæðisflokksins en bætir því þó
við: „Auðvitað hittum við hann
oft í tengslum við starfið í borg-
inni.“ Umræðuefnið er að sjálf-
sögðu sá orðrómur sem farið hef-
ur stigvaxandi að undanförnu að
Sjálfstæðisflokkurinn vilji losna
úr meirihlutasamstarfi við við
Ólaf F. Magnússon og mynda nýj-
an meirihluta með Óskari Bergs-
syni, borgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins.
Þreytt á einleikjum
Sjálfstæðismenn munu vera
þreyttir á einleikjum Ólafs í emb-
ætti borgarstjóra. „Ég veit ekkert
hvað er í gangi nema það er verið
að reyna leysa úr ágreiningsmál-
unum,“ segir annar úr borgar-
stjórnarflokki sjálfstæðismanna
og bætir við að það hafi verið rætt
um að styrkja meirihlutann til
þess að betur sé hægt að takast á
við efnahagsvandann. Ágreining-
ur mun vera um mörg mál, bæði
stór og smá. Þeir sem standa ná-
lægt Ólafi segja að hann telji alla
umræðuna vera knúna áfram af
landskjörnum fulltrúum flokks-
ins og öðrum áhrifamönnum
innan hans og segja að nú reyni á
styrk Hönnu Birnu.
Stefnir í stjórnarkreppu?
Fólk úr borgarstjórnarflokkum
Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna virðist ekki kippa sér
mikið upp við umræðuna og þau
segja öll að Óskar hefði svarið af
sér öll samtöl við Sjálfstæðisflokk-
inn. Sumir sögðu þó augljóst að
það stefndi í stjórnarkreppu í
borginni. „Sjálfstæðisflokkurinn
er augljóslega að reyna að berja á
Ólafi og sýna honum að hann sé
ekki ómissandi og Ólafur lætur
varla bjóða sér það,“ segir einn og
bendir á að sjálfstæðismönnum
standi ekki margt til boða. Annar
útilokar ekki að Ólafur verði tek-
inn aftur yfir í Tjarnarkvartettinn.
Til í málamiðlanir
Ólafur F. Magnússon hefur
þótt vera mjög staðfastur, sumir
segja óhaggandi, síðan hann hóf
samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Viðmælendur blaðsins sem eru
nákomnir Ólafi segja að hann vilji
bara halda við það samkomulag
sem gert var í upphafi samstarfs-
ins. Sömu heimildir segja að í ljósi
umræðunnar sé hann þó farinn
að gera sér grein fyrir því að hann
verði stundum að gera málmiðl-
anir.
Það eina sem virðist augljóst af
samræðum við borgarfulltrúa að
dæma er að þeir eru ekki með
hugann við að stjórna borginni.
Hvað gengur á í
Reykjavíkurborg?
Elías Guðjónsson
elias@24stundir.is
FRÉTTASKÝRING