24 stundir - 14.08.2008, Blaðsíða 15

24 stundir - 14.08.2008, Blaðsíða 15
24stundir FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 15 Gísli Marteinn Baldurssonborgarfulltrúi hefur getiðsér gott orð að undanförnu fyrir að hjóla á hina mik- ilvægu fundi í borg- arstjórn Reykjavík- ur. Næsta vetur mun hann hins veg- ar mæta á þotu,“ segir á Vefþjóð- viljanum og er þá vitnað til frétta þess efnis að Gísli Marteinn sé á förum til Skotlands í nám en ætli sér engu að síður að fljúga á borg- arstjórnarfundi. Mörgum finnst skrítið að svo umhverfisvænn maður ætli að fljúga á milli. Væri ekki nær að tölvutengja borg- arstjórn við útlönd þannig að borgarfulltrúinn geti stundað nám sitt í útlöndum janframt því að sinna borgarstjórnarmálum? Jóhannes Gunnarsson, for-maður Neytendasamtak-anna, biður Dr. Gunnar að hætta að kalla sig umboðsmann neytenda á heima- síðu samtakanna. „Það er bara verst að Dr. Gunni sé far- inn að kalla sig um- boðsmann neyt- enda. Við þurfum umboðsmann neytenda að nor- rænni fyrirmynd (opinbert emb- ætti),“ segir Jóhannes. „Kæri vin- ur, Dr. Gunni, breyttu þessu umboðsmannanafni þínu, það þvælist bara fyrir og ég veit að þú hefur gott hugarflug.“ Menn velta því fyrir sér hvort Jóhannes sé að hæðast að emb- ætti talsmanns neytenda eða hvort honum finnist þörf á öðru slíku opinberu embætti enda tals- maðurinn áhrifalaus. Stjórnarkreppan í borginni erungum framsókn-armönnum hugleikin en þó er aðallega að finna ergelsi út í Samfylkinguna á bloggsíðunni Al- freð. Ungu fram- ararnir eru svekktir yfir því að Dagur B. og félagar vilji ekki lengur R-lista- samstarf. „Óskar Bergsson hefur verið að standa sig vel í sínum málum en fylgið hefur ekki fylgt, enda hafa „samstarfsmenn hans“ í minnihlutanum ekki gefið Framsókn neitt, þó það sé alþekkt að það var Framsókn sem var límið í R-listanum og grundvall- arflokkur í þeim mikla árangri sem náðist á tímum R-listans.“ Eru þeir að hvetja til þess að Ósk- ar fari yfir til Sjálfstæðisflokksins og F-lista? elin@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Fjölmiðlar hafa talsvert fjallað um ákvæði laga um nálgunarbann. Eins og fram hefur komið, hefur allsherjarnefnd Alþingis til með- ferðar lagafrumvarp frá dómsmála- ráðherra um það efni og er að því stefnt að ljúka þeirri umfjöllun nú á haustdögum. Nauðsynlegt er að ný lög um nálgunarbann taki gildi um næstu áramót samhliða nýrri heild- arlöggjöf um meðferð sakamála, þar sem þá falla úr gildi núgildandi ákvæði um nálgunarbann í lögum um meðferð opinberra mála, sem nýju sakamálalögin leysa af hólmi. Frumvarp dómsmálaráðherra gerir að mestu leyti ráð fyrir óbreyttum efnisreglum um nálgunarbann, með þó þeim undantekningum að lagðar eru til breytingar í sambandi við að- draganda að kröfugerð lögreglu til dómstóla um að nálgunarbanni verði beitt og að opnað verði fyrir kæruleið til handa þeim sem fer fram á nálgunarbann, ákveði lög- regla að gera ekki slíka kröfu. Að öðru leyti gerir frumvarpið ráð fyrir að reglurnar verði með sama hætti og verið hefur frá árinu 2000. Rétt er hins vegar að geta þess, að dóms- málaráðherra gerði grein fyrir því í framsöguræðu sinni fyrir frumvarp- inu, að fleiri álitamál væru uppi varðandi nálgunarbannið og að hann gerði ráð fyrir að þau kæmu til skoðunar við meðferð allsherjar- nefndar. Þau álitamál, sem ráðherra vísaði þarna til, voru annars vegar að núgildandi reglur gengju ekki nógu langt, ákvæðin væru of þung í vöfum og gætu orðið til þess að brotaþoli veigraði sér við því að óska eftir þessari leið og einnig gat hann þess að skiptar skoðanir væru um hver ætti að fara með valdið til að úrskurða menn í nálgunarbann. Þessar mismunandi skoðanir hafa endurspeglast í umsögnum þeirra aðila, sem allsherjarnefnd hefur leit- að álits hjá. Í dag er dómstólum fal- ið það hlutverk að kveða upp þessa úrskurði, að undangenginni kröfu frá lögreglu. Sjónarmið hafa verið uppi um að réttara væri að lögregla eða saksóknari hefði þetta úrskurð- arvald en slíka niðurstöðu mætti síðan bera undir dómstóla eftir á. Hér er um að ræða mikilvæga spurningu sem allsherjarnefnd mun taka afstöðu til við meðferð frum- varpsins. Um leið hlýtur að koma til skoðunar hvort tilefni sé til að breyta efnisreglum og málsmeð- ferðarreglum að öðru leyti með það að markmiði að gera nálgunarbann að virkara úrræði. Inn í fjölmiðla- umfjöllun um nálgunarbannið hef- ur blandast umræða um hina svo- kölluðu austurrísku leið, sem í stuttu máli gengur út á að lögreglu verði í ákveðnum tilfellum falið vald til að fjarlæga menn af heimili í heimilisofbeldismálum. Felur hún þannig í sér, að það verði gerandi en ekki fórnarlömb sem þurfi að yf- irgefa heimili í þessum tilvikum. Slík ákvörðun taki þegar gildi en heimilt verði innan tiltekins tíma að bera hana undir dómstóla. Mikil- vægt er að hafa í huga, að nálgunar- bann og austurríska leiðin eru tvö mismunandi úrræði, þótt vissulega gæti komið til þess að þeim yrði báðum beitt í heimilsofbeldismál- um. Nálgunarbann er hins vegar leið sem komið getur til skoðunar í mun fjölbreyttari málum og mis- munandi forsendur geta verið fyrir því að þessum leiðum verði beitt. Því er eðlilegt að greina á milli þess- ara tveggja úrræða í umfjöllun, bæði á þingi og í fjölmiðlum. Innan alls- herjarnefndar er nálgunarbanns- málið lengra komið og er niður- stöðu að vænta nú haust eins og áður kom fram. Ég er þeirrar skoð- unar að austurríska leiðin þurfi meiri umfjöllun áður en til laga- breytingar kemur. Það má vissulega sjá fyrir sér tilvik þar sem þetta úr- ræði gæti átt við en um leið verður að hafa í huga að það er viðurhluta- mikil ákvörðun að fjarlægja mann af heimili sínu og meina honum að koma þangað. Allsherjarnefnd ræddi austurrísku leiðina nokkuð á síðasta kjörtímabili án þess að kom- ast að niðurstöðu en að mínu mati er fullt tilefni til að taka hana aftur til umfjöllunar, án þess að hægt sé að gefa sér niðurstöðuna fyrirfram. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík og formaður allsherjarnefndar Nálgunarbann og austurríska leiðin VIÐHORF aBirgir Ármannsson Um leið verð- ur að hafa í huga að það er við- urhlutamikil ákvörðun að fjarlægja mann af heimili sínu og meina honum að koma þangað. HAPPATALAN 289548 Þú hefur fundið lykilnúmerið í sumarleik 24 stunda TIL HAMINGJU! *Eldsneytiskortið er að verðmæti 63.720 kr. Sendu textann 24stundir 289548 með sms á símanúmerið 1900 (ekkert aukagjald er tekið fyrir sms-ið). Laugardaginn 16. ágúst drögum við 24 heppna lesendur úr innsendingum og þú færð sms um vinninginn ef þú dettur í bensínpottinn og hreppir eldsneytiskort frá OLÍS sem dugar flestum í þrjá mánuði.* Opið: mán-fös 12-18 Laugardaga 11-16 Dalvegi 16a Kóp. 201 Rauðu múrsteinshúsunum www.nora.is Útsölulok! Vallý s.510 3728 Böddi s.510 3726 atvinna@24stundir.is PANTIÐ GOTT PLÁSS Í TÍMA ATVINNUBLAÐIÐ

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.